Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.11.1972, Side 28

Læknablaðið - 01.11.1972, Side 28
166 LÆKNABLAÐIÐ þau einkenni, sem rekja má beint til skorts á insúlíni samfara háum blóðsykri og sykri í þvagi. Algengust eru: Þorsti, tíð og mikil þvaglát, megrun, þreyta og lympa, aukin matarlyst, sjóntruflun, önuglyndi, sljóleiki, meðvitundarleysi. Komi þessi einkenni fram fyrir fertugt, eru þau að jafnaði bráð og mögnuð, og leiða til dauða, nema sjúkling- urinn fái þegar meðferð. Eftir fertugt eru einkennin þó aðeins einum tíunda hluta sjúklinganna jafnskæð. Óbein kallast hins vegar þau einkenni, sem rekja má til hrörnunar- breytinga í æðum, smáum og stórum, er sjúkdómurinn veldur. Háræða- skemmdir koma einkum fram í augum og nýrum, en skemmdir slag- æða einkum í hjarta, heila og ganglimum. Algengustu einkennin eru: Sjóndepra/blinda, bjúgur/nýrnabilun, kransæðaþrengsli/bráð krans- æðastífla, brengluð heila- og taugastarfsemi/lömun, áreynsluverkur í kálfum/drep í fótum. Háttalag æðaskemmdanna er ákaflega breytilegt: Hvenær breytingarnar verða greindar við skoðun? Hvenær einkenni þeirra verða sjúklingnum Ijós? Hvar skemmdanna gætir mest og hversu útbreiddar þær eru? Hversu hratt skemmdirnar aukast? Hrörn- unarbreytingunum er það sameiginlegt, að þær fara nær ávallt vax- andi og verða sjúklingnum oftast ljósar, þegar líður á sjúkdóminn. MEÐFERÐ — MARKMIÐ Kemísk eða leynd sykursýki Þetta forstig klínískrar eða ljósrar sykursýki er misjafnlega langt, skemmra hjá ungum en gömlum. Rannsóknir hafa sýnt, að á 5 árum koma í ljós hjá um 20% og á 15 árum allt að 70% sjúklinganna bein einkenni klíníska eða Ijósa stigsins.8 9 Þetta forstig er ekki hættulaust til lengdar.9 Þótt bein ein- kenni komi ekki fram, þá geta slagæðaskemmdir sjúkdómsins, einkum í hjarta, greinzt. Kemur þetta oft upp um sjúkdóminn. Mjög margar rannsóknir víða um heim gefa til kynna, að tíðni kemískrar eða leyndrar sykursýki meðal kransæðasjúklinga sé 50- 80 %10, og er þessi tíðni því tífalt hærri en búast mætti við meðal þjóðfélagsþegna almennt. Á seinni árum hefur mikið kapp verið lagt á að finna sykursýki á þessu forstigi með það fyrir augum, að með meðferð mætti: 1. Hindra framgang veikinnar eða jafnvel uppræta mælanlega skerð- ingu á efnaskiptum. 2. Koma í veg fyrir æðaskemmdir. Þessar aðgerðir grundvallast á takmörkun kolvetna og hitaeininga með eða án lyfja, sem örva insúlínframleiðslu. Niðurstöður til þessa spá góðum árangri.11 12 13 14 15 Klínísk eða ljós sykursýki Með klínískri eða ljósri sykursýki hefst það stig sjúkdómsins, sem einkennist af hinum beinu og óbeinu einkennum, sem áður er lýst. Sjúklingurinn verður nú sjálfur að takast á hendur hið vandasama hlutverk að stjórna blóðsykri sínum og er líf hans, heilsa og hamingja gersamlega undir því komin, hvernig til tekst.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.