Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.11.1972, Page 50

Læknablaðið - 01.11.1972, Page 50
180 LÆKNABLAÐIÐ heilbrigðisþjónustunni yfirleitt. Alltof fáir læknar kunna skil á þess- um hliðum starfseminnar. Þetta leiðir oft til óheppilegs klofnings og ágreinings milli þeirra, sem eingöngu eiga að sjá um fjármálin og hinna, sem eiga að sjá um meðferð sjúklinganna eða framkvæmd rann- sóknanna. Til þess að fyrirbyggja slíkan misskilning verða læknar að kunna nokkur skil á ýmsum félagsvísindum. Þessa þekkingu ættu þeir að afla sér snemma í náminu, annars vegar með náminu í öðrum grunngreinum, og hins vegar með náminu í félagslækningum, þegar að því kemur, að kennsla í þeim verður tekin upp. Auk þessa ættu læknar, sem síðar taka að sér stöður sem stjórnunarleg skylda fylgir, að fá nokkra framhaldsmenntun í stjórnunarfræði. Þetta er jafn nauð- synlegt fyrir lækna eins og fyrir forystumenn í ýmsum öðrum stétt- um, ef nýtingin á þeim kosti, sem okkur er fenginn, á að verða eins hagkvæm og auðið er. Slík menntun væri lækninum og mjög gagnleg í fleiri tilvikum. TJÁSKIPTI Það, sem oft hindrar teymisvinnuna, eru óvirk tjáskipti og skort- ur á skilningi og virðingu fyrir hlutverkum annarra þátttakenda. Þetta leiðir oft til persónulegra og stéttarlegra árekstra, veldur truflun i vinnunni og eyðileggur meðferðar-umhverfið, þannig að sjúklingarnir fá ekki þá þjónustu, sem þeir eiga rétt og kröfu tiL Slíka árekstra verður að fyrirbyggja og bæta, svo sem frekast eru tök á. Ef læknir á að geta gert það, þarf hann að bera gott skynbragð á persónuleg samskipti og samband milli einstaklinga, eins og það er tjáð í orðum og gerðum. Rétt er að minna á, að það er oft það, sem látið er ósagt, en gefið í skyn með hegðun og svipbrigðum, sem misskilst eða er mistúlkað. Til þess að tjáskiptin eða sambandið verði virkt, er nauð- synlegt fyrir lækninn að þekkja sjálfan sig og hafa heilbrigðan skiln- ing á eigin persónuleika og eigin félagslegum sérkennum, og þeirri þýðingu, sem þau hafa fyrir hlutverk hans í teyminu og hvaða árekstr- um þessi sérkenni hans geta valdið. Ef tjáskiptin í teyminu eru virk, er teymisvinnan menntandi og þroskandi fyrir þátttakendurna. Þetta á ekki sízt við fyrir lækna, sem hafa takmarkaða þekkingu á stjórnunarfræði og öðrum félagsvísind- um. Ef þeir taka þátt í slíkri vinnu með opnum huga og hæfilegri sjálfsgagnrýni, getur hún vafalaust orðið þeim talsverður stjórnunar- skóli. Því hef ég fjölyrt svo um skipulega hópvinnu, teymisvinnu, að hún gefur læknum möguleika á að undirbúa sig undir vaxandi stjórn- unarlýðræði í heilbrigðisstofnunum. í henni sjá menn líka fljótt við- brögð við því frumkvæði, sem lækninum er ætlað að hafa, og þar er einnig nauðsyn að byrja að ræða hugmyndir að breytingum, og hvern- ig hægt sé að hafa áhrif á þróun mála. Teymisvinnan leggur og sér- staka áherzlu á hinn mannlega þátt í stjórnuninni, sem ætti að vera okkur læknum sérstaklega hugstæður.

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.