Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.04.1974, Side 24

Læknablaðið - 01.04.1974, Side 24
72 LÆKNABLAÐI& þessari, að margt skortir, sem nauðsynlegt verður að teljast, til að þjónustan verði viðunandi. Þannig er tækjakostur í flest- um tilvikum ófullkominn og því ekki unnt að gera jafnvel smæstu aðgerðir eða frum- stæðustu rannsóknir. Enda þótt tækjabún- aður væri betri og önnur aðstaða fyrir hendi til minni háttar rannsókna, skortir lækninn gjörsamlega tíma til að fram- kvæma þær einn síns líðs. Afleiðingin verður sú, að fleiri sjúklingum er vísað til sérfræðinga en ella væri þörf. En hvað er þá til úrbóta á þessu sviði? Ýmislegt hefur verið ritað og rætt um þau mál á undanförnum árum, en framkvæmd- ir verið litlar enn sem komið er. Nokkrar staðreyndir liggja þó að vissu leyti ljóst fyrir. Heimilisiæknar geta unn- ið nokkrir saman, þrír eða jafnvel fleiri, í sérstaklega hönnuðu húsnæði vel búnu tækjum. Til aðstoðar þyrftu þeir að hafa vel þjálfað fólk, svo sem hjúkrunarfólk, meinatækna, félagsráðgjafa og ritara. Þá má telja æskilegt, að læknanemar kynnt- ust strax á námsárum sínum starfsemi skipulagðrar heimilislæknisþjónustu. Gæti það vafalaust orðið þeim til einhvers gagns og glætt áhuga þeirra á þessu sviði læknisfræðinnar. Eðlilegt væri að slíkar læknamiðstöðvar væru staðsettar skipulega og svæðisbund- ið, þannig að þægilegt væri fyrir fólk að ná fundi læknis. Læknar slíkra stöðva gætu og tekið að sér ýmis önnur læknis- störf síns svæðis, t. d. skólalækningar, ónæmisaðgerðir o. fl. SAMANTEKT Á því tímabili, sem könnunin stóð, sinntu 9 læknar 3.744 einstaklingum á stofum sínum, þar af voru 2.229 konur, en karlar 1.515. Þar við bættust 285 vitjanir og 500 símaviðtöl sjúkiinga eða aðstand- enda þeirra. Af þessum hópi var 61 sjúklingur vist- aður á sjúkrahúsi, 24 karlar og 37 konur. Allmiklu fleiri konur en karlar leita læknis, eða 60% konur og 40% karlar. Sama hlutfall virðist haldast með tilliti til sjúkravitjana. Um 40% vitjana voru til fólks 67 ára og eldra. Af hverjum 1.000 samtölum sjúklings og læknis leiddi 187,5 rannsóknir. Sam- bærilegar tölur frá Lofoten í Noregi, voru 127,4 rannsóknir af 1.000 viðtölum læknis og sjúklings cg 60,5 af 1.000 samtölum í Sönderborg í Danmörku.1 Af rannsóknum ber mest á blóðstatus og röntgenrannsóknum. Á könnunartíma- bilinu voru 757 einstaklingar sendir í rann- sóknir, 285 karlar og 499 konur (34% karlar og 66% konur). Tilvísanir á sérfræðinga voru alls 694 á könnunartímabilinu. Þar er hlutfallið milli kynja enn mjög svipað eða 60% kon- ur og 40% karlar. Af öllum þeim sjúklingum, sem lækn- arnir fengu til meðferðar, var 18,5% vísað til sérfræðinga. í því sambandi má geta þess, að í könnun, sem þrír læknar gerðu í Hvammstangahéraði árið 1969, kemur fram, að 10% þeirra, sem sinnt var, var vísað til sérfræðinga.2 Sá læknir, sem hefur hæsta tíðni heim- sókna á stofu, fær hvern samlagsmann að meðaltali 6 sinnum á ári í heimsókn (2.4% á vinnudag). Fyrir þann, sem hefur lægsta tíðni, eru samsvarandi tölur 0.75 og 0.3%. Meðaltalið verður að allir sjúkrasam- lagsmeðlimir 9 lækna komi á stofu þeirra 2.38 sinnum á ári, eða tæplega 1% á dag. Hvað viðkemur húsnæði, starfsaðstöðu og vinnuálagi þeirra lækna, er þátt tóku í þessari könnun, verður látið nægja að vísa til þess, er hér er skráð að framan. HEIMILDIR 1. Bent Guttorm Bentsen. Arbeidet i almen Praksis. T. Norske Legeforen. 85:1403-1408. 1965. 2. Helgi Þ. Valdimarsson, Jón G. Stefánsson og Guðrún Agnarsdóttir. Læknisstörf í héraði. LæknablaÖið 55:15-35. 1969. 3. Rolf Hanoa og Björn Straume. Privat prak- tiserende leger i Oslo 1970 (bls. 37). Útg.: Pax Forlag A/S, Oslo. ÞAKKIR Ég vil þakka starfsbræðrum minum fyrir að hafa safnað gögnum til þessarar könnunar. Sérstakar þakkir vil ég færa hjónunum frú Kristínu Jónsdóttur og Helga Sigvaldasyni fyr- ir ómetanlega hjálp við úrvinnslu gagna.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.