Læknablaðið - 01.04.1974, Blaðsíða 54
90
LÆKNABLAÐIÐ
3. mynd.
Hormónabreytingar í sermi í eðlilegum tíðahring. Þrír hormónar eru mældir, LH
(RIA), Estradíól (RIA án grómskilnaðar, sjá 2. mynd) og Prógesterón (CPBA). LH-
toppurinn og prógesterónhækkun (prógesterón er ekki mælanlegt með þessari aðferði á
fyrri helmingi normals tíðahrings) benda til, að egglos hafi átt sér stað. Estradíól-
toppurinn er allatf á undan LH-toppinum (varptoppinum?).
kallast. Venjulega er um að ræða yfir-
verkun skyldra sameinda og, ef algers sér-
hæfis er krafist, verður stundum að nota
einhvers konar grómskilnaðaraðferðir
(chromatography) á undan RIA. Það eru
þó sífellt að koma fram klókindalegri að-
ferðir við að hengja hnýtla (hapten) á
mótefnavaka, sem framkalla sérhæfari
mótefni. T. d. voru mótefni gegn estradíóli
fyrst framkölluð með því að hengja kol-
efnisfrumeind nr. 17 á mótefnavakann, og
þurfti þá að grómskilja á undan RIA til
þess að geta mælt hreint estradíól. Nú
eru notuð mótefni, sem framkölluð voru
gegn mótefnavaka, sem kolefnisfrumeind
nr. 6 hefur verið hengd á, og er yfirverkun
annara estrógena nú minni en 1% (sjá
skýringartexta við 3.mynd).
Að síðustu er hollt að minnast þess, að
ekki eru öll kurl komin til grafar varð-
andi RIA. Eitt og annað, sem ennþá hefur
ekki mætt á, kann að koma fram í dags-
ljósið með tímanum, en greinar hafa verið
að birtast um ýmis atriði, sem hafa áhrif
á RIA. Geislatópar, sem hafa verið tekn-
ir eða gefnir inn á einhvern hátt vegna
mælinga eða meðferðar, geta komið í veg
fyrir sumar RIA-mælingar, lyf gætu haft
sérhæf eða ósérhæf áhrif á mælinguna,
plasma mælist oft lægra en serum o. s. frv.
Þessi atriði verður að taka til greina þeg-
ar niðurstöður eru túlkaðar, og það er
stundum snjallt að endurtaka mælinguna.
NOKKUR EFNI, SEM ÞEGAR HAFA
VERIÐ MÆLD MEÐ RIA
Fyrir þá, sem fást ef til vill meira við
að borða brauðið en baka, er hér birtur
listi fáeinna efna, sem mæld eru með