Læknablaðið - 01.08.1974, Síða 37
LÆKNABLAÐIÐ
127
með sér, að á þeim tveim árum muni um
90% ífarandi krabbameina í leghálsi, í
aldursflokkunum 25-59 ára, hafa verið
greind í Leitarstöð B.
Erfiðlega gengur að fá konur í hinum
hærri aldursflokkum til að mæta til skoð-
unar. Þannig mættu 79.3-33.9% þeirra,
sem fæddar eru á árunum 1926-1940 til
skoðunar í 1. sinn, en aðeins 30% þeirra,
sem fæddar eru á árunum 1900-1910. Af
heildarfjölda þeirra kvenna, sem boðaðar
voru, mæittu 24.5% aldrei til skoðunar. I
þessum hópi er tíðni ífarandi legháls-
krabbameins há og meinið í mörgum til-
fellum langt gengið. Ljóst má vera, að
tregða þessara kvenna við að mæta til
skoðunar, hefur veruleg áhrif á það, að
dánartíðni leghálskrabbameinssjúklinga
lækkar ekki sem skyldi.
Af niðurstöðum og samanburði á vefja-
rannsókn og frumurannsókn, sbr. töflu
IX, sést, að hátt hlutfall af grunsamleg-
um frumubreytingum kemur fram, þegar
vefjabreytingar í legopi sýna dysplasia
(væga, miðlungs eða mikla). Af alls 413
dysplasia vefjagreiningum hafa 113 eða
hart nær 1/4 hluti verið flokkaður í
„grunsamlegan B“ flokk (III. flokk)
og 13 voru jákvæðar samkvæmt írumu-
rannsókn (IV. flokkur). Hæst verður
hlutfallið af grunsamlegum B (III. flokk-
ur) eða jákvæðum (IV. flokkur), þegar
greind hefur verið mikil dysplasia við
vefjarannsókn, sbr. töflu IX. En þar kem-
ur fram, að af 88 sjúkdómstilfellum með
mikla dysplasi hafa 57 verið greind grun-
Tafla X framh.
Mortality Ratí
Total 5 years
Number %
24 5 20.8
4 2 1
17 13 | 71,4
45 20
Number of invosive Cancer of the cervix reported
to the lcelondic Cancer Registry 1965- 1970
(4 caset missed not included)
% of populotion
born 1911- 1940
Mynd 2.
samleg B (III. flokkur), en 12 greind já-
kvæð (flokkur IV), þ. e. með illkynja
frumur.
í flokka, sem auðkenndir eru í töflum
„grunsamlegir“ A og B falla sýni, þar sem
koma fram frumubreytingar, sem oft má
rekja til bólgubreytinga og hormónaverk-
ana (A) og frumubreytingar, sem eru
lengra gengnar og valda ákveðnum grun
um illkynja breytingar í þekjufrumum
(B). Þegar slíkar „grunsamlegar“ A
breytingar koma fram við endurteknar
skoðanir, og hverfa ekki við meðferð á
bólgu- eða hormónatruflun, er regla að
fá tekið vefjasýni, frekar en bíða eftir
að frumumyndin breytist til hins betra
eða verra. Það er einnig regla að fylgjast
með þeim konum, sem greindar hafa ver-
ið með dysplasia.
Ástæða er til að geta þess að mikil
breyting hefur orðið á hlutfalli mismun-