Læknablaðið - 01.08.1975, Side 46
64
LÆKNABLAÐIÐ
ar til umfjöllunar og gangi þær fram, verður
að gera ráð fyrir nýjum samningi milli ríkis
og Reykjavíkurborgar í stað samnings þess,
sem gerður var um lóðamái Landspítalans á
árinu 1969.
2. Byggingaframkvæmdir á vegum sveitar-
félaga, sem styrktar eru með fjárfram-
lagi úr ríkissjóði.
Á gildandi fjárlögum er gert ráð fyrir 39
aðskildum fjárveitingum til 32ja staða, alls
553 millj. og níu hundruð þúsund. Rar að auki
er gert ráð fyrir 38.3 millj. til 15 elliheimila
og 15.6 millj. til 14 læknisbústaða. Heildar-
framlag ríkisins á þessum fjárlagalið er því
608 millj. og 700 þúsund.
Niðurskurður á árinu af þessum fjárlaga-
liðum nam tæplega 90 millj. króna samtals.
Á móti framlögum ríkisins eiga sveitar-
félög að greiða samtals 112.235.000.- kr. svo
að heildarframkvæmdafé á þessu ári til
bygginga á sviði heilbrigðisþjónustu var rétt
rúmlega einn milljarður króna, áður en niður-
skurður fór fram.
Þær byggingaframkvæmdir, sem hafist
hafa á þessu ári, eru þessar:
1. Viðbygging við sjúkrahúsið í Keflavík.
2. Bygging þjónustuálmu við Borgarspítal-
ann í Reykjavík.
3. Bygging heilsugæslustöðvar í Búðardal
4. Viðbygging (heilsugæslustöð) við sjúkra-
húsið á Patreksfirði.
5. Bygging heilsugæslustöðvar í Bolungar-
vík.
6. Bygging sjúkrahúss og heilsugæslustöðv-
ar á ísafirði.
7. Bygging heilsugæslustöðvar á Dalvík.
8. Bygging heilsugæslustöðvar á Kirkju-
bæjarklaustri.
9. Bygging heilsugæslustöðvar í Vík í Mýr-
dal.
Byggingaframkvæmdir, sem hafnar voru
og hafa gengið fram með áætluðum hætti á
þessu ári eru þessar:
1. Bygging hjúkrunar- og endurhæfingar-
heimilis í Arnarholti.
2. Áframhald byggingar sjúkrahúss á Akra-
nesi.
3. Áframhald byggingar heilsugæslustöðv-
ar í Borgarnesi.
4. Áframhald viðbyggingar við sjúkrahúsið
á Akureyri.
5. Lok byggingar heilsugæslustöðvar og
sjúkraskýlis á Egilsstöðum.
6. Viðbygging við sjúkrahúsið í Neskaup-
stað.
7. Bygging læknismóttöku í Breiðdalsvík og
Stöðvarfirði.
8. Bygging heilsugæslustöðvar á Höfn í
Hornafirði.
9. Bygging sjúkrahúss á Selfossi.
Auk þess eru á allmörgum stöðum í gangi
byggingar læknisbústaða og elliheimila með
styrk frá ríkissjóði.
Það er auðsætt, að verkefnafjöldinn í upp-
byggingu heilsugæslustöðva og sjúkrahúsa
er mjög mikill og krefst stöðugt vaxandi fjár-
magns, ef halda á uppi eðlilegum byggingar-
hraða á næstu árum.
Ráðuneytið gerði við gerð fjárlaga ársins
1975 tillögur um, að fjárveitingum ársins
yrði veitt til tiltölulega fárra staða, en reynt
yrði að flýta uppbyggingu þeirra.
Alþingi vildi ekki fallast á þessa málsmeð-
ferð og veitti fé til fleiri staða með lægri
fjárveitingu á hverjum stað.
Ráðuneytið hefur miðað tillögur sínar ti!
gerðar fjárlaga fyrir árið 1976 í samræmi
við þetta og gert tillögur um að hönnunar-
vinna fari af stað við alla þá staði, þar sem
gert er ráð fyrir að heilsugæslustöðvar verði
samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu,
þannig að bygging þeirra gæti í síðasta lagi
hafist á árinu 1977.
V. LYFJAMÁL
Á sviði lyfjamála hafa síðastliðin ár verið
sett lög og reglugerðir, sem einkum miða að
bættu eftirliti með lyfjum.
Reglugerð um lyfjaeftirlit ríkisins nr. 412/
1973, færði lyfjaeftirlitið í þær skorður, sem
nú er. Sú reglugerð hóf eftirlitið reyndar upp
úr því að vera einungis lyfjabúðareftirlit.
Við bættist m. a.:
1. Framleiðslueftirlit
í desember síðastiiðnum voru gefnir út
grundvallarstaðlar um góða framleiðsluhætti
í lyfjagerð í íslenskri þýðingu. Staðlar þessir
eru gerðir af starfshópi lyfjaeftirlitsmanna
innan EFTA í samræmi við alþjóðasamning
um gagnkvæma viðurkenningu á eftirliti með
framleiðslu lyfja, sem undirritaður var 1970
Haldnir hafa verið tveir fundir með fram-