Læknablaðið - 01.08.1975, Side 49
LÆKNABLAÐIÐ
67
sem haldið var í Alsír, var ekki sótt frá (s-
landi nú og var það gert í sparnaðarskyni.
Á þessu ári voru í fyrsta skipti haldnir
fundir hópa frá Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
uninni í Reykjavík. Var hér um að ræða tvo
vinnuhópa og fjallaði annar um þátt hjúkrun-
ar í heilbrigðiskerfinu, en hinn um mat á
læknisþjónustu.
Þeirri könnun.sem verið hefur á vegum þró-
unarsjóðs Sameinuðu þjóðanna og í samráði
við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina á því,
hvort hagkvæmt sé að koma upp heilsufars-
upplýsingabanka hér á landi, er enn ekki
lokið og er ekki gert ráð fyrir að niðurstöð-
ur af þeirri könnun iiggi fyrir fyrr en á næsta
ári.
Hvað viðvíkur samvinnu við Norðurlönd á
sviði heilbrigðis- og tryggingamála, þá hefur
þessi samvinna færst í fastari skorður en
áður var eftir að skrifstofa ráðherranefndar-
innar kom á fót í Osló.
Félagsmálanefnd embættismanna hefur
verið endurskipulögð og fjallar nefndin nú
bæði um heilbrigðis-, félags- og trygginga-
mál og heldur nú reglulega fundi tvisvar á
ári. Ekki hafa verið tök á því af íslands hálfu
að sækja alla fundi, en reynt hefur verið að
sækja a. m. k. annan hvern fund.
X. NIÐURLAG
í þessu yfirliti hefur verið reynt að greina
frá störfum heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytisins í grófum dráttum á þessu ári
og hvaða störf bíða.
Það ætti að vera auðséð af þessari upp-
talningu að starf ráðuneytisins takmarkast
fyrst og fremst af því að það hefur ekki
mannafla til að vinna þau verk, sem þyrfti.
Áætlun sú um heilbrigðisstofnanir, sem lög
um heilbrigðisþjónustu gera ráð fyrir, hefur
enn ekki litið dagsins Ijós. Aðstoð við hönn-
un heilbrigðisstofnana og eftirlit með fram-
kvæmdum á því sviði er hvergi nærri nógu
gott af hálfu ráðuneytisins og kemur þar
eingöngu til mannaflaskortur.
Skólayfirlæknir hefur verið ráðinn í hluta
úr starfi til þess að vinna með hönnunar-
hópum sveitarfélaganna við uppbyggingu
heilbrigðisstofnana og hefur sú ráðstöfun
reynst mjög vel.
Eftirlit með gangi byggingarframkvæmda
er hins vegar ekki í höndum ráðuneytisins
og orkar mjög tvímælis hvort slíkt fyrir-
komulag er hentugt til frambúðar.
Áður hefur verið minnst á rekstur sjúkra-
húsanna og verður alls ekki hægt að ætlast
til að ráðuneytið geti sinnt eftirliti með
rekstri þeirra, meðan ekki kemur sérstök
öflug deild innan ráðuneytisins til að fjalla
um það verkefni.
Páll Sigurðsson