Læknablaðið - 01.08.1975, Qupperneq 68
72
LÆKNABLAÐIÐ
7ÍKASETNIKC Á 3ÓLARHRING (KLST.)
MYND 2. — Tímasetning á sólarhring við
inntöku lyfs eða annars efnis að eigin frum-
kvæði. Sólarhringnum er skipt niður í tólf
2ja stunda tímabil, þannig að hvert tímabil
nær frá fyrri tiltekinni klukkustund og allt
að seinni tiltekinni klukkustund, t. d. 6-
7:55, en til hægðara,uka er ritað 6-8, o. s.
frv. Tilfellin á þessari mynd eru alls 203
af þeim 212 tilfellum þar sem orsök inn-
töku var eigið frumkvæði, þ. e. 108 börn
á aldrinum 0-2 ára og 95 börn á aldrinum
2-12 ára. Tímasetningin var ónákvæmari en
sem svaraði 2ja stunda tímabilunum eða
hana vantaði alveg í 9 tilfellum.
barnsins. Tvö tveggja-stunda tímabil skera
sig úr, þar sem áberandi flestar inntökur
áttu sér stað, þ. e. tímabilin kl. 10-12 og
kl. 18-20. Að öðru leyti virðist dreifingin
að mestu svara til þess tíma, sem börn eru
vakandi. Eftirtektarvert er, að börn á aldr-
inum 0-2 ára virðast ekki hafa aðra tíma-
bilsdreifingu við inntöku en börn á aldr-
inum 2-12 ára, nema hvað á tímabilinu kl.
18-20 eru þau yngstu hlutfallslega nokkru
fleiri.
Efnasambönd
Tafla III sýnir hvernig inntekin efni
skiptast í þrjá eftirtalda flokka: lyf, efni
á heimilum og önnur efnasambönd.
Lyf voru inntekin í alls 107 tilvikum
TAFLA III. Skipting inntekinna efnasam-
banda í flokka.
Efnasambönd Fjöldi
I. Lyf 107(46,3%)
Geðlyf 28
Róandi lyf 10
Svefnlyf 8
Hjarta- og æðalyf 10
Anticholinergica 8
Antihistaminica 6
Acetylsalicyl sýra 5
Önnur verkjalyf 5
Vöðvaslappandi lyf 5
Járn 4
Nefdropar 3
Önnur lyf (t. d. megrunarlyf, getnaðarvarnar- töflur cg blóð- þynningarlyf) 15
II. Efni á heimilum 94(40,7%)
Terpentína 30
Húsgagnaáburður 28
Þvotta- og hreinsiefni 10
Benzín og steinolía 6
Ediksýra 4
Salmíakspíritus 3
Bórsýra 2
Annað (t. d. hár- vökvi, bón, ilmvötn, naglalakkseyðir og límefni) 11
III. Önnur efnasambönd 30(13,0%)
Garðúðunarefni 5
Meindýra- og skordýraeitur 4
Sígarettu- og vindlastubbar 5
Áfengi 1
Annað (t. d. benzol, fenol, tréspíritus og kvikasilfur) 15
(46,3%). Þar af voru geðlyf, róandi lyf og
svefnlyf í 46 tilvikum, eða 43,0% af öllum
lyfjum. Athyglisvert er, að acetylsalicyl-
sýra var aðeins tekin í 5 tilvikum, eða
4,7% af lyfjum. Þar af voru húðaðar, er-
lendar töflur í tveim tilvikum og sam-
kvæmt fyrirmælum læknis í einu tilviki.
Ennfremur, að járn var aðeins í 4 tilvikum.