Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Side 7
DV Fréttir föstudagur 2. mars 2007 7 Eldri borgarar eru orðnir þreyttir á bútasaumi stjórnvalda við laga- setningu og mættu í mótmælaskyni ekki á fund með heilbrigðisnefnd í gær. Þeir segja kröfur sínar um end- urskoðun hundsaðar og sjá ekki ástæðu til að stíga dans með stjórn- völdum meðan svo sé. „Lög um aldraða eru úrelt og þau standa úr vegi fyrir allri þróun í þessum málum. Því verður ekki breytt nema þau verði tekin upp al- gjörlega,“ segir Margrét Margeirs- dóttir, formaður Félags eldri borg- ara í Reykjavík. Hún er meðal þeirra sem ákváðu að virða fundar- boð aldraðra að vettugi enda orðin langþreytt á að ekkert gerist í mála- flokknum. Heilbrigðisnefnd boðaði fulltrúa eldri borgara á sinn fund til að ræða tvö frumvörp sem liggja fyrir þing- inu. Annað er um greiðslur þeirra í framkvæmdasjóð aldraðra sem fá fjármagnstekjur en ekki launatekj- ur. Hitt snýr að mati á öldruðum borgurum sem þurfa vistun á dval- ar- eða hjúkrunarheimili. Ekkert gerist Borgþór Kjærnested, fram- kvæmdastjóri Landssambands eldri borgara, fékk fundarboðið í sínar hendur og ráðfærði sig við nokkra af forystumönnum aldr- aðra. Niðurstaða þeirra var sú að mæta ekki á fundinn. „Við teljum að kröfur okkar um að fara í allsherjar endurskoðun á lögunum séu algjörlega hunds- aðar,“ segir Borgþór og lýsir laga- setningum og verkefnum í málefn- um eldri borgara sem bútasaumi. Hann segir ekkert hafa verið gert í endurskoðun á lögum þrátt fyrir að slíkt hafi verið forsenda fyrir sam- komulagi eldri borgara og stjórn- valda síðasta sumar. Samkomulag- inu var ætlað að bæta aðbúnað og kjör eldri borgara. „Það átti að fara í þetta. Það gerist ekki neitt,“ segir Borgþór. Hundsað í báðar áttir Margrét Margeirsdóttir segist ekki hafa séð nokkra ástæðu til að fara á fundinn. Ástæðan fyrir því er áhugaleysi heilbrigðisráðuneytis- ins og stjórnvalda að verða við kröf- um eldri borgara. „Það geta fleiri hunsað en ráðuneytið. Þeir hafa hundsað okkur. Þá er mjög eðlilegt að hundsa þá líka.“ Þrátt fyrir langa baráttu eldri borgara bólar ekkert á heildarend- urskoðun laganna. „Við erum búin að berjast fyrir því í þrjú ár,“ segir Margrét. Hún segir engum árangri skila að breyta einstaka lögum. Nú- verandi lög séu vandamálið og ný lög þurfi í stað þeirra. Eldri borgarar setja á oddinn að málefni eldri borgara verði flutt frá heilbrigðisráðuneytinu til sveitar- félaga og vilja að fjármagnið sem fer í málaflokkinn fylgi með. hundsuðu heilbrigðisnefnd Fulltrúar eldri borgara mættu ekki á fund heilbrigðisnefndar sem hafði boðað þá til sín til að fá umsögn um tvö frumvörp sem liggja fyrir nefndinni. Eldri borgarar eru afar ósáttir við að ekkert tillit hefur verið tekið til krafna þeirra um heildarendur- skoðun á lögum um eldri borgara. „Það geta fleiri hundsað en ráðuneyt- ið. Þeir hafa hundsað okkur. Þá er mjög eðli- legt að hundsa þá líka.“ Brynjólfur Þ. Guðmundsson blaðamaður skrifar: brynjolfur@dv.is Alþingi hundsað Eldri borgarar mættu ekki á fund heilbrigðis- nefndar. með því vildu þeir mótmæla að ekki hefði orðið við óskum þeirra um heildarend- urskoðun á lögum um málefni aldraðra. margrét margeirsdóttir formaður félags eldri borgara í reykjavík segir enga ástæðu til að mæta á fund þeirra sem hundsi kröfur eldri borgara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.