Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Blaðsíða 31
við þrjár eða fjórar en núna erum við
um tuttugu. Það er alltaf að bætast
við. Ég er í bootcamp til að halda mér
í formi en er samt ekki mikill adren-
alínfíkill,“ segir hún og hlær. Karen
hefur þegar farið utan og spreytt
sig. Hún fór til Bretlands og náði þar
mjög góðum árangri. „Ég lenti í átt-
unda sæti en það voru bara stelpur
að keppa. Það er allt miklu hraðara
þar, ökumenn og brautir.“ Þegar hún
er spurð hvert sé markmið henn-
ar í mótorkrossinu er svarið einfalt.
„Bara að hjóla þangað til ég verð
gömul,“ segir þessi magnaða íþrótta-
kona að lokum.
Alltaf að læra eithvað nýtt
Ragnar Ingi Stefánsson er nífaldur
Íslandsmeistari í mótorkrossi. Hann
varð í þriðja sæti í heildarkeppninni
síðasta sumar og til að endurheimta
titilinn dvelur Ragnar nú í æfinga-
búðum á Spáni. Þar nýtur hann leið-
sagnar tífalds heimsmeistara Stefans
Evert og föður hans, Harrys Evert,
sem sjálfur er fjórfaldur heimsmeist-
ari.
„Maður er alltaf að læra í þessari
íþrótt. Ég er búinn að læra margt nýtt
á undanförnum dögum þannig að
ég mæti sterkari næsta sumar. Það
eru um 30 manns á þessu vikulanga
námskeiði og við erum á hjólunum
nánast allan daginn.Frá klukkan 10
til17 erum við að baukast. Maður
getur alltaf bætt sig, þetta er svo mik-
il tækni og mörg smáatriði sem þurfa
að vera í lagi og maður er aldrei of
gamall til að læra,“ segir Ragnar og
hlær.
Eins og áður hefur komið fram er
mótorkross sú íþrótt sem vex hvað
hraðast hér á Íslandi. Ragnar segir að
þegar tollalögum var breytt hafi orð-
ið mun auðveldara að verða sér úti
um mótorkrosshjól.
„Fyrir um sjö árum fóru tollarnir
úr 70 prósentum niður í 30 prósent
á mótorkrosshjólum og fólk er að
uppgötva hvað þetta er skemmtileg
íþrótt. Þetta er mjög fjölskylduvæn
íþrótt, ég er sjálfur með tvo stráka
sem eru á fullu í þessu. Einn 12 ára
og annan 7 ára. Við förum út að hjóla
og eigum góða dagstund saman, allir
að gera það sama og allir að tala um
það sama.“
Eitt stærsta íþróttamót á Íslandi
í einstaklingsgreinum er í mótor-
krossi. Á Kirkjubæjarklaustri fer fram
sex tíma þolakstur og eru keppendur
um 400 talsins og áhorfendur um tvö
þúsund.
„Það er mikill samhugur í hópn-
um þegar keppnir fara fram utan
höfuðborgarsvæðisins. Það tjalda
allir saman, það myndast nokkurs
konar útihátíðarstemning og allir
skemmta sér vel. Það voru 400 kepp-
endur á Kirkjubæjarklaustri fyrir
tveimur árum og tvö þúsund áhorf-
endur þannig að þetta er eins stórt
og íþróttaviðburður getur orðið.“ Auk
þess að fara til Spánar hefur Ragnar
einnig farið til Englands að æfa og
stefnir á að fara eina ferð til viðbót-
ar utan.
„Það eru svo margir ungir strákar
farnir að gera þetta og þeir eru virki-
lega hraðir. Þannig að ef maður ætl-
ar sér að eiga einhvern séns í sumar
verður maður að gera það sama.“
benni@dv.is
DV Sport föstudagur 2. mars 2007 31
ÍÞRÓTTAMOLAR
RonAldo bestuR í heimi
Eftir fréttaflutning af illindum milli
Cristianos ronaldo og Waynes rooney
hafa þeir
kumpánar verið
duglegir við að
lýsa yfir dálæti á
hvor öðrum
síðustu mánuði.
Báðir leika þeir
fyrir manchester
united en sá enski
sagði í viðtali í gær
að ronaldo væri
besti leikmaður heims. „Það er frábært
að hafa hann með sér í liði. sem stendur
er hann besti leikmaður heims. Þá er ég
ekki að tala um besta unga leikmanninn
heldur um heildina,“ sagði rooney.
RúRik oRðAðuR við viking
fjölmargir Íslendingar hafa verið orðaðir
við Norska liðið Viking frá stafangri
síðustu mánuði og
greinilegt að þjálfari
liðsins uwe rösler er
hrifinn af íslenskum
leikmönnum. Hannes
Þ. sigurðsson bíður þess
að fá leikheimild með
liðinu en auk þess hefur Viking meðal
annars verið orðað við Helga Val
daníelsson og gylfa Einarsson. Í
norskum fjölmiðlum í gær var talsvert
fjallað um áhuga Viking á hinum nítján
ára rúrik gíslasyni sem er í herbúðum
enska úrvalsdeildarliðsins Charlton.
rúrik getur spilað allar stöður á
miðjunni og einnig frammi.
vAR ekki sleginn
frank Lampard, miðjumaður Chelsea,
segist ekki hafa verið sleginn af
Emmanuel
adebayor í
úrslitaleik enska
deildabikarsins um
síðustu helgi.
adebayor fékk að
líta rauða spjaldið í
slagsmálum sem
brutust út undir
lok leiksins og var
síðan refsað með
þriggja leikja banni af enska knatt-
spyrnusambandinu. arsenal reyndi að
áfrýja rauða spjaldinu en því var hafnað.
arsene Wenger, stjóri arsenal, hefur
sakað annan aðstoðardómara leiksins
um að hafa logið til um atburði.
Lampard viðurkenndi í viðtali í gær að
adebayor hefði ekki slegið sig.
ChelseA styRkiR kínA
Ensku meistararnir í Chelsea hafa gert
samning við knattspyrnusamband asíu.
Peter Kenyon,
stjórnarmaður hjá
Chelsea, segist
binda miklar vonir
við að samningur-
inn sem er til
fjögurra ára muni
færa félaginu góða
stöðu á hinum
umtalaða
asíumarkaði.
stefna Chelsea er að verða stærsta
félagslið heims árið 2014.
emRe með kynþáttAfoRdómA?
Enska knattspyrnusambandið ætlar að
rannsaka ásakanir á hendur tyrkneska
landsliðsmannin-
um Emre sem
leikur fyrir
Newcastle united.
al Bangura,
leikmaður Watford,
segir að Emre hafi
verið með
kynþáttafordóma í
sinn garð. Emre er
26 ára miðjumaður
og lék með ítalska stórliðinu Inter áður
en hann fór til Englands.
milAn vill CAnnAvARo
samkvæmt fjölmiðlum á spáni er ítalska
liðið aC milan búið að hefja viðræður
við real madrid
um hugsanleg
kaup á varnar-
manninum fabio
Cannavaro. meðan
forráðamenn
milan voru í
viðræðum við
spænska liðið
varðandi hinn
brasilíska ronaldo
lýstu þeir yfir áhuga á að fá Cannavaro
og fengu jákvæð viðbrögð. Cannavaro
fékk titilinn besti leikmaður heims fyrir
ekki alls löngu en hefur ekki fundið sig í
spænska boltanum og verið harðlega
gagnrýndur.
LAngskeMMTiLegAsTA ÍÞRÓTTin
karen Arnardóttir Þrátt fyrir að vera ung að árum hefur hún
náð góðum árangri á erlendri grundu.
gylfi freyr guðmundsson féll fyrir mótorkrossi 16 ára og vill
helst ekkert annað gera.
hjólin góðu Karen ekur um á Kawasaki KX 125 en gylfi er á Honda Crf 450.
íslandsmeistarar Þau
Karen arnardóttir og
gylfi freyr guðmundsson
eru núverandi Íslands-
meistarar í mótorkrossi.
dv myndiR gúndi