Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Blaðsíða 30
föstudagur 2. mars 200730 Sport DV
Gylfi Freyr Guðmundsson varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn í fyrra. Endaði með 245 stig, eða einu stigi meira en Valdi-
mar Þórðarson. Hann er 21 árs og býr
í Keflavík. „Ég var áður í fótbolta og
körfubolta en datt inn í mótorkross
þegar ég var 16 ára. Eftir það var ekki
aftur snúið og þetta er langskemmti-
legasta íþróttin sem ég hef prófað.
Ég æfi mest í Sólbrekkubraut sem
er við Grindavíkurafleggjara. Síðan
eru komnar brautir á Þorlákshöfn,
Álfsnesi og Bolöldu og maður fer á
milli brauta.“ Fyrir ekki svo mörg-
um árum voru einungis þrjár brautir
nothæfar hér á landi en fjöldinn hef-
ur nú tvöfaldast. Gylfi segir að stjórn-
völd standi sig ágætlega í að úthluta
landi til íþróttarinnar en alltaf megi
þó gera betur.
„Miðað við fjöldann sem stundar
sportið mættu alveg vera fleiri braut-
ir, okkur vantar alltaf meiri pening til
að gera fleiri brautir, gera þær betri
og halda þeim við.“
Gríðarleg söluaukning hefur
orðið á mótorhjólum á undanförn-
um árum. Það hefur skilað sér inn
í íþróttina því fjöldi keppenda hef-
ur margfaldast. Gylfi segir að þessi
fjölgun komi sér ekki mjög á óvart
þar sem íþróttin sé svo skemmtileg
og fjölskylduvæn. „Íþróttin býður
upp á svo margt, það eru framleidd
hjól fyrir alla aldurshópa, alveg nið-
ur í fjögurra ára. Það þarf reyndar að
vera 12 ára til að keyra hjól hér en úti
er keppt í fjögura ára aldursflokki.“
Æfði í Bandaríkjunum
Þrjú afbrigði eru af mótorkrossi.
Ísakstur, þolakstur og hinn hefð-
bundni brautarakstur. Gylfa finnst
ísaksturinn og þolaksturinn ágætur
en er þó mest fyrir að aka í brautum.
„Ísaksturinn getur verið skemmti-
legur en það er meira eins og að vera
á götuhjóli. Það eru engin stökk en
maður æfir sig í að keyra við mis-
munandi aðstæður. Þetta er ekki mitt
uppáhald en mjög góð æfing.“
mótorkross er talin ein erfiðasta
íþrótt sem til er og ökumaðurinn þarf
að vera í góðu líkamlegu formi ætli
hann sér að keppa og ná árangri.
„Það þarf ekki að vera í formi til
að keyra mótorkrosshjól, en til að ná
árangri þarf að vera vel á sig kom-
inn líkamlega. Ég reyni að verja sem
mestum tíma á hjólinu og hægt er,
það er það sem skiptir mestu máli en
ef ekki er hægt að fara út að hjóla, þá
fer ég í líkamsrækt eða út að hlaupa.
Ég reyni að hjóla á hverjum degi á
sumrin en á veturna er meira farið í
líkamsrækt eða tekið á því í útihlaup-
um.“
Gylfi dvaldi við æfingar og keppni
í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum
í fimm mánuði. Bæði var hann í
Tennessee og Texas. Hinn margfrægi
mótorkrosskappi Travis Pastrana
steig sín fyrstu skref í sömu keppni
og Gylfi tók þátt í. Gylfi segir að allt sé
hægt ef viljinn er fyrir hendi.
„Það er allt hægt ef maður vill
það. Maður getur farið út og orðið at-
vinnumaður ef maður virkilega æfir
og einbeitir huganum að því. Mót-
in úti voru fyrir þá sem eru við það
að komast í atvinnumannaflokkinn,
Pastrana keppti þarna þegar hann
var 16 ára og það voru nokkrir góð-
ir þarna.“
Lenti í áttunda sæti í Bretlandi
Karen Arnardóttir er ekki nema
15 ára og er í Foldaskóla í Grafar-
vogi. Hún varð Íslandsmeistari með
nánast fullt hús stiga en aðeins mun-
aði þremur stigum að hún næði því.
Endaði með 197 stig af 200 möguleg-
um. Þrátt fyrir ungan aldur eru sex ár
síðan hún byrjaði.
„Ég hef eiginlega ekki áhuga á
öðru sporti en þessu, finnst þetta
langskemmtilegasta sportið. Það er
allt svo skemmtilegt við þetta.“
Það er ekki bara fjölgun meðal
karlpeningsins í íþróttinni því mikil
fjölgun hefur einnig orðið í kvenna-
flokki.
„Þegar ég byrjaði að keppa vorum
LanGskemmtiLeGasta íþróttin
Ragnar Stefánsson ragnar dvelur nú á spáni í æfingarbúðum. guðmundur
guðmundsson tók þessa mynd af kappanum á æfingu í vikunni.
„Þegar ég byrjaði að keppa vorum við þrjár eða
fjórar en núna erum við um tuttugu. Það er alltaf
að bætast við. Ég er í bootcamp til að halda mér í
formi en er samt ekki mikill adrenalínfíkill.“
Þeim sem æfa mótorkrossíþróttina
hefur fjölgað mikið á undanförnum
árum. Þau Karen Arnardóttir og Gylfi
Freyr Guðmundsson eru Íslands-
meistarar í karla- og kvennaflokki og
vilja ekki vera í neinni annarri íþrótt.
Hvað er að Gerast?
HAndBoLti
Laugardagur 3. mars
kl. 16:30 stjarnan - fram (kk)
sunnudagur 4. mars
kl. 16:00 Ír - Haukar (kk)
kl. 16:00 HK - fylkir (kk)
kl. 16:00 Valur - akureyri (kk)
KöRFuBoLti
Föstudagur 2. mars
kl. 19:15 Haukar - Ír (kk)
kl. 19:15 Kr - Hamar/selfoss (kk)
sunnudagur 4. mars
kl. 19:15 Hamar/selfoss - fjölnir (kk)
kl. 19:15 Njarðvík - Haukar (kk)
kl. 19:15 Ír - Þór Þorl. (kk)
kl. 19:15 snæfell - skallagrímur (kk)
KnAttSpyRnA
Föstudagur 2. mars
kl. 19:00 fylkir - stjarnan (kvk)
kl. 19:00 Kr - Breiðablik (kvk)
kl. 21:00 Valur - Keflavík (kvk)
Laugardagur 3. mars
kl. 15:00 Keflavík - ÍBV (kk)
kl. 17:00 grindavík - HK (kk)
sunnudagur 4. mars
kl. 15:00 ÍBV - fjölnir (kk)
kl. 17:00 Kr - Þróttur (kk)
kl. 19:00 fH - Valur (kk)
kl. 16:15 tindastóll - dalvík/reynir (kk)
kl. 18:15 magni - Völsungur (kk)