Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Page 14
Sigursteinn Másson, formaður
Öryrkjabandalags Íslands:
Vonir um velferð
„Ég geri mér vonir um að umhverf-
ismálin og velferðarmálin verði á
oddinum. Ég trúi því að fólk sé að
vakna til vitundar um það að við
þurfum að leggja sérstaka áherslu
á þessa tvo málaflokka. Ég tel að
það fari saman virðing fyrir öðru
fólki og fyrir náttúrunni. Við þurf-
um bara að breyta hér samfélag-
inu þannig að fólk geti tekið þátt í
samfélaginu. Í dag hólfum við fólk
niður eftir fötlun eða öðrum að-
stæðum en við eigum að hætta því
og við eigum að hafa hér samfélag
sem gerir ráð fyrir öllum.“
Árni Finnsson, framkvæmdastjóri:
Heiðarleika í
umhverfismálum
„Verndun hálendis Íslands verði
tryggð til langframa. Brýnt er að
stjórnmálaflokkarnir geri grein fyr-
ir áformun sínum varðandi virkjan-
ir á hálendinu og/eða hvaða svæði
þeir vilja vernda. Jafnframt er
brýnt að stjórnmálamenn feli sig
ekki á bak við innihaldslítið tal um
þjóðarsátt um nýtingu og verndun
heldur geri grein fyrir afstöðu sinni
með heiðarlegum hætti. Stóriðju-
stopp. Stöðva verður uppbygg-
ingu stóriðju til að Íslendingum
gefist færi á að rannsaka og ræða
eftir lýðræðislegum leiðum hvaða
svæði skuli vernda og hver nýta
til framtíðar. Nauðsynlegt er að
almenningi gefist kostur á að með
skipulögðum hætti ákveða hvaða
svæði megi ekki hrófla við. Stjórn-
málaflokkarnir verða fyrir kosning-
ar að leggja fram skýrar hugmynd-
ir um hvernig þeir vilja bregðast
við loftslagsvandanum hér heima
og hvernig þeir vilja að Ísland beiti
sér á alþjóðavettvangi. Íslendingar
líkt og aðrar þjóðir verða að draga
verulega úr útstreymi gróðurhúsa-
lofttegunda en töluvert skortir á
að stjórnmálaflokkar hafi mótað
stefnu um hvernig það skuli gert.
Sjávarútvegur og verndun lífríkis
sjávar mun á næstu árum taka æ
meira pláss í umræðunni um um-
hverfismál. Fiskveiðistefna Íslands
verður að miðast við að byggja
upp þorskstofninn og sjávarút-
vegsráðherra verður að fara að
ráðleggingum Hafrannsóknar-
stofnunar varðandi veiðiálag á
þorskstofninn. Það hefur því miður
ekki verið gert undanfarin ár.“
föstudagur 2. mars 200714 Fréttir DV
Helgi Jóhannsson í Góu, ritari Aðstandendafélags aldraðra:
Gerum vel við gamla fólkið
„Það sem ég sé í hvelli er að ég er
svakalega ánægður að lífeyris-
sjóðirnir hafi fengið 277 milljarða
í vexti og gjöld í fyrra til að leggja
inn á sjóði. Þegar þeir voru að
ganga frá þessu í janúar fengu þeir
svo fimmtíu milljarða til viðbótar.
Ég ætla að biðja um að þeir taki
eitt prósent af þessu og setji í að
byggja íbúðir fyrir gamla fólkið
okkar. Ég er hættur að vilja fá af
höfuðstólnum. Hann er orðinn svo
stór, en ef við gætum fengið eitt
prósent af því sem þeir fá í vexti
væri hægt að gera mikið fyrir það.
Væri ekki gott ef fólk gæti selt hús-
ið sitt í lok starfsævinnar og leigt
góða stúdíóíbúð?
Mér finnst, sem atvinnurekandi
með fullt af fólki í vinnu, að fyrst
við höfum verið svona dugleg að
greiða í sjóðinn sé kominn tími til
að við gerum eitthvað með það.
Við höfum ekkert gert fyrir pening-
ana okkar. Þess vegna er þrengra
um gamla fólkið okkar en það
þyrfti að vera. Ef við hefðum gert
meira þyrftum við ekki að troða
gamla fólkinu inn í herbergi eins
og vörum á lager.“
Eiríkur Tómasson, varaformaður LÍÚ:
Umhverfismál og vinstristjórn
„Ég myndi halda að miðað við
það sem er að gerast í þjóðfélag-
inu verði umhverfismálin mjög
ofarlega. Það verður tekist á um
þá stefnu hvort við eigum að selja
raforkuna til stóriðju eða ekki. Svo
verður örugglega talsvert tekist á
um það hvort eigi að halda áfram á
þeirri braut mikillar uppbyggingar
sem verið hefur á öllum sviðum at-
vinnulífsins. Þá takast á hefðbund-
in vinstri og hægri öfl. Eitthvað
mun koma inn á velferðarmál.
Atvinnumál í víðum skilningi eru í
umræðunni.
Ég hef ekki mikla trú á að sjávarút-
vegsmál verði eitthvert átakamál
núna. Það er komið í ákveðinn
farveg. Vægi sjávarútvegsins hef-
ur auðvitað minnkað verulega á
síðasta kjörtímabili með vexti ann-
arra atvinnugreina. Nú er fókusinn
á fjármálalífinu.
Svo verður kosið um hvort verði
vinstristjórn eða ekki vinstri-
stjórn hérna. Miðað við þær skoð-
anakannanir sem hafa verið að
undanförnu mun fólk örugglega
velta því fyrir sér og kíkja kannski
ofan í budduna í leiðinni til að at-
huga hvort það sé nóg til að leyfa
vinstristjórn að valsa um í eitt kjör-
tímabil eða svo.“
um Hvað verður kosið?
Þingkosningarnar nálgast og það líður að
því að kjósendur verða að gera upp hug sinn
um hvað þeir ætla að kjósa. Sú ákvörðun
ræðst ekki síst af því hvaða málefni hvíla
þyngst á fólki þegar á kjörstað er komið. DV
leitaði til átta einstaklinga og spurði þá um
hvað yrði kosið 12. maí næstkomandi.