Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Qupperneq 19
neytenda. „Ef við segjum að fátækir
neytendur séu tíu prósent af heild-
inni, þá munu þeir fá um 350 millj-
ónir í sinn hlut. Þetta gætu verið tíu
þúsund manns sem þá fá 350 krónur
á mann,“ segir hann.
Rótgróin óhagkvæmni
“Matarverð hér á landi er miklu
hærra en það þarf að vera,“ segir Þor-
valdur. Hann segir þetta stafa fyrst og
fremst af rótgróinni óhagkvæmni í
landbúnaðinum. Þessi óhagkvæmni
sé afleiðing af því að landbúnað-
urinn hafi verið ofverndaður með
rangri stjórnarstefnu. „Innflutningur
á erlendri landbúnaðarvöru er heft-
ur með ofurtollum og þannig missa
bændur af heilbrigðri samkeppni,“
segir hann.
Guðmundur bendir á að ein-
falt væri að greiða bændum laun
í stað þess að verja þá með tollum
og miða styrki við framleidd kíló
og lítra. „Við gætum hætt að styrkja
skepnurnar og byrjað að styrkja fólk-
ið,“ segir hann.
Nefndin steytti á skeri
Halldór Ásgrímsson, þáverandi
forsætisráðherra, skipaði nefnd um
lækkun matvælaverðs í janúar í fyrra.
Nefndin deildi um leiðirnar til að
ná þessu takmarki og náði
engri niðurstöðu. „Það
var ágreiningur í nefnd-
inni ekki var hægt að
fá neina sameiginlega
niðurstöðu í þetta,“ seg-
ir Hallgrímur Snorra-
son hagstofustjóri.
Hann var formaður
nefndarinnar. Þau sjón-
armið voru reifuð í nefnd-
inni að engin aðferð væri
jafn árangursrík til þess
að lækka verð á matvöru
og að afnema verndartolla
og vörugjöld á innfluttri
landbúnaðarvöru. Þetta
varð helsta deiluefni nefnd-
armanna. Fulltrúar bænda í
nefndinni gátu ekki sætt sig
við þessi sjónarmið og eng-
in niðurstaða náðist.
Einfalt skattkerfi best
Þorvaldur segir einfalt skattkerfi,
þar sem skattprósentur séu fáar og
flest vara skattlögð á svipaðan hátt
að jafnaði, vera heilbrigðast. Matvör-
ur hafa hingað til verið verið skatt-
lagðar á margvíslegan hátt. Sumar
matvörur bera vörugjöld, aðrar ekki.
Þetta gjald er mishátt. Merihluti mat-
vöru hefur hingað til borið fjórtán
prósenta skatt, aðrar 24,5 prósent og
nú bætist við sjö prósenta þrep. Við
þetta bætist tollur sem er mishár eft-
ir því hvaða vara á í hlut. Í ofanálag er
svo undanþágukerfi sem er hannað
til þess að koma í veg fyrir margfalda
skattlagningu á innlendri vöru. Þetta
hefur meðal annars orðið til þess að
verðhlutföll brenglast og verðsam-
anburður og gagnsæi tapast að mati
Hallgríms Snorrasonar.
DV Fréttir FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 19
við Styrkjum
Skepnurnar
en ekki fólkið
Guðmundur Ólafsson
Guðmundur efast um að lækkun
virðisaukaskatts muni hjálpa þeim
verst settu í samfélaginu.
Verðbólga lækki um sinn en muni
rjúka upp á ný innan skamms.
Gott eða ekki? Hagfræðingar eru
ekki vissir um ágæti breytinganna.
Mjólkurvaran Eflaust mun
marga muna um lækkunina.
Gosdrykkir Þeir eru í þeim flokki
sem lækkar mest.