Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Qupperneq 21
DV Fréttir föstudagur 2. mars 2007 21 Það er skoðun Hans Kristians að rannsóknin á Baugi Group og þau réttarhöld sem komu í kjölfarið hafi farið langt út úr réttum hlutföllum. „Það er engin ástæða til þess að verja svo miklum kröftum og fjármun- um, hvorki af hálfu Baugs né af hálfu skattborgaranna í mál sem skilar svo litlu sem raun ber vitni,“ segir hann. Hann segir málið vera blöndu af mismunandi aðstæðum og atvikum. Hluti þess sé smæð íslensks samfé- lags. Hann dregur heldur ekki dul á þá skoðun sína að máið eigi sér pól- itískan uppruna. „Þetta er lítið land og við höfum hliðstæður í Noregi. Frá mínum bæjardyrum séð er það nokkuð ljóst að fyrrum forsætisráð- herra á hlut að upphafi Baugsmáls- ins, en í þessu tvinnast saman mis- munandi þræðir.“ Hátt vöruverð Þegar talið berst að verði á mat- vöru bendir Hans á skyldleika við Noreg. „Það sem er sérstakt við mat- vörumarkaðinn á Íslandi er hið sama og í Noregi. Varnarmúr hefur verið reistur kring um framleiðslu, eink- um á landbúnaðarafurðum, í báð- um löndunum. Það er þessi múr sem veldur háu matvöruverði í báðum löndum.“ Þessi skoðun Hans Kristi- ans á sterkan samhljóm með sjón- armiðum þeirra sem gagnrýnt hafa skattalækkanir ís- lenskra stjórnvalda á matvæli. „Ef við lítum til þess sem Jón Ásgeir og Jóhannes hafa gert með rekstri Bónuss, má halda því fram að þeir séu í allra fremstu röð í Evrópu með tilliti til afkasta. Ég þekki enga verslunarkeðju í Evrópu sem vinnur með jafn lága brúttóálagningu. Og þar með má halda því fram að Jó- hannes tróni á toppnum í Evrópu í dagvöruversluninni.“ Rannsókn og réttarhöld í Baugs- málinu hafa haft áhrif á viðskipti og viðgang fyrirtækisins. Hans bendir á að kaupin á Arcadia keðjuni hafi spillst, ásamt fleiri viðskiptum. „Já, þetta hefur valdið erfiðleikum allt frá tilrauninni til að kaupa Arcadia. Það var fysti vandinn sem tengdist þessu máli. Við urðum líka að hverfa frá kaupunum á Somerfield keðjunni vegna þess að málinu var ekki lokið,“ segir Hans. Hann tekur jafnframt upp hansk- ann fyrir Jóhannes Jónsson og fjöl- skyldu hans. „Þetta hefur skapað afar mikinn þrýsting, sérstaklega á Jón Ásgeir Jóhannesson og fjölskyldu hans. Málið hefur snert alla starf- semina og stjórn félagsins. Þannig að Baugsmálið, sem hefur dregist allt of mikið á langinn, hefur snert okkur öll með einum eða öðrum hætti. Það er erfitt að segja hvar Baugur Group væri á vegi statt í dag ef þetta mál hefði ekki komið upp. En svo mikið er víst að ásýnd félagsins hefði verið allt önnur ef Baugsmálið hefði ekki komið til sögunnar. Ég er algerlega sannfærður um að málareksturinn hefur verið dragbítur á þróun og vöxt félagsins.“ Mistök í rekstrinum Hans segir að vissulega hafi ver- ið gerð mistök í rekstri Baugs. Það sé eðlilegur hluti af viðskiptum. „Við gerðum mistök rétt eins og aðr- ir. Fyrsta fjárfesting Baugs erlend- is, kaupin á Bill‘s Dollar Stores voru mistök, alveg afdráttarlaust. Það er auðvelt að sjá eftirá. Ákvarðan- ir um nýjar fjárfestingar eru rædd- ar ítarlega innan stjórnarinnar áður en þær eru teknar. Þegar búið var að taka stefnumarkandi ákvarðanir hugsuðum við með okkur að vissu- lega ætluðum við okkur að vaxa. Og þegar sú stefna hafði verið mörkuð var jafnframt augljóst að Baugur varð að hasla sér völl erlendis, hefja útrás. Við gátum ekki aðeins haft íslenskt land undir fótum ef félagið átti að stækka í samræmi við stefnu þess.“ Yfirheyrslurnar Í vitnaleiðslum í vikunni var Hans Kristian fyrst og fremst spurð- ur út í vinnubrögð stjórnar fyrirtæk- isins. „Menn vidu fá vitneskju um það hvernig stjórn Baugs vinnur. Í vitnaleiðslunum skýrði ég frá því að í stjórn Baugs værum við ekki upptek- in af bókhaldi,“ segir hann. Hann segir stjórnina fyrst og fremst leita að yfirsýn yfir reksturinn. „Við vinnum á öðru plani, hefjum okkur upp í þyrlu ef svo að segja, til þess að ná heildarsýn á málin. Mikil- vægasta hlutverk stjórnarinnar er að styðja við bak þeirra sem stjórna dag- legum rekstri, huga að stefnumörk- un og áætlunum og fara yfir þær sem og að fylgjast með fjárstreymi, vinna að ársuppgjöri og afgreiða fjárhags- áætlanir.“ En hvað skyldi verða næsta skref fyrirtækisins þegar málaferlunum lýkur? „Þegar Baugsmálinu lýkur verður það verkefni og skylda stjórn- ar félagsins að leggja mat á stöðuna og skoða hvernig hagsmunum þess verði best borgið.“ Norðmaður í stjórn Baugs Hans Kristian Hustad hefur í tvígang komið til landsins til þess að bera vitni í Baugsmálinu svokallaða. Hann telur málið vera komið langt út úr eðlilegum hlutföllum. Hann er stoltur af íslenskum viðskiptamönnum sem hann segir að eigi ekki sína líka, allavega ekki á Norðurlöndunum. Hans Kristian Hustad stjórnarmaður í Baugi er sannfærður um að málið eigi sér pólitískar rætur. Hann einnig á að Íslend- ingar hafi ofverndað landbúnaðinn með þeim afleiðingum að vöruverð sé ónauð- synlega hátt, á svipaðan hátt og í heima- landi hans, Noregi. Auðvitað gerðum við mistök “Þegar Baugsmálinu lýkur verður það verk- efni og skylda stjórnar félagsins að leggja mat á stöðuna og skoða hvernig hagsmunum þess verði best borgið.“ Hans Kristian Hustad er Norðmaður sem setið hefur í stjórn Baugs frá því árið 1999. hann hefur einnig gegnt lykilstöðum í stórum fyrirtækjum á borð við Nora Industries, Orkla og Reit- an Narvesen. Hann er stjórnarformaður Booker og situr í stjórn Hamleys og Wyevale. Hans Kristian var hér á landi í liðinni viku til þess að bera vitni í Baugsréttarhöldunum í Héraðsdómi Reykja- víkur. Hann ræddi við DV um íslenskt viðskiptaumhverfi og áhrif Baugsmálsins á gang fyirtækisins. sigtrYggur ari jóHaNNssoN blaðamaður skrifar: saj@dv.is Staðsetning ráðstefnunnar eða fundarins er ekki síður mikilvæg en fyrsta flokks aðbúnaður og þjónusta.Við bjóðum allt þetta; frábæra staðsetningu í hjarta borgarinnar, þrjá glæsilega sali með öllum nauðsynlegum tæknibúnaði og fyrirtaks veisluþjónustu. Kynntu þér þjónustu okkar og skoðaðu matseðla á www.veislukompaniid.is eða hringdu í síma 517 5020 og veislan er í höfn! Fundur í miðborginni Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is F í t o n / S Í A
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.