Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Page 23
DV Fréttir föstudagur 2. mars 2007 23
hverfi sem hann hefði ekki fyrir sitt
litla líf hætt sér í fyrir jól.
Strangari reglur
Útgöngubann skellur á klukk-
an átta á kvöldin og gildir til sex
um morguninn. Ríkisstjórnin set-
ur endalaust af reglum, sem dæmi
má nefna að stjórnmálahreyfingar
mega ekki lengur eiga þungavopn
á skrifstofum sínum, bílar og bygg-
ingar sem skotið er úr eru gerðir
upptæk og byssumennirnir hand-
teknir. Númerslausir bílar eru líka
teknir úr umferð. Lögreglan hefur
einnig stíft eftirlit með bensínsölu
í borginni og er á góðri leið með
að uppræta blómlegt svartamark-
aðsbrask með eldsneyti. „Fyrir ör-
yggisátakið beið ég oft lengi til að
geta fyllt á bílinn minn,“ segir Ali.
„Stundum komst ég ekki að en sá
menn fara fram fyrir röðina og fá
afgreiðslu. Það var ljóst að það voru
meðlimir vígahópa. Núna er búið
að uppræta svartamarkaðinn og
gera manni kleift að kaupa þetta
á löglegum stöðum, þó að maður
þurfi enn að bíða í röð. Verðið hefur
líka lækkað um helming.“
Er á meðan er
Fólkið hefur hins vegar áhyggj-
ur af því að her og lögregla springi
á limminu. „Fólk er ánægt núna en
veit ekki hvað verður. Það er hrætt
um að eftir nokkrar vikur eða mán-
uði slaki herinn á klónni og þá fari
allt í sama farið aftur. Við viljum
ekki að þeir slaki á. Helst viljum við
að öryggisátakið standi í hálft ár, ár,
bara svo lengi sem þarf.“
Í símanum heyrist þegar
þyrla flýgur yfir en skothríðin og
sprengjurnar sem maður ímyndar
sér að heyra daginn út og inn á göt-
um Bagdad er mun minni í bili.
Ógnin hefur ekki enn verið tek-
in úr umferð, heldur flúðu flestir
vígamennirnir út fyrir borgina eða
í öruggt skjól. Þeim hefur hins veg-
ar verið líkt við kakkalakka, sem
hverfa um leið og einhver labbar
inn í herbergi, en skríða jafnharð-
an fram aftur um leið og litið er af
þeim.
© GRAPHIC NEWSMyndir: Associated Press Heimildir : GlobalSecurity.org, International Organisation for Migration
1
2
3
5 64
8
9
10
7
Sadr City: 2 milljónir sjíamúslima
búa í þessu fátækrahver. Allar
ölskyldur voru beðnar um að
senda einn karlmann til að þjóna í
Mahdi-hernum. Þannig hefði al-Sadr
getað fengið 100.000 manna liðsstyrk.
Rusafa: Mahdi-herinn
hafa reynt að reka
alla súnnía af
austurbakkanum.
Grænt
svæði
Tígrisáin
Grænt
svæði
Flugvöllurinn í
Bagdad.
Camp Victor,
Camp Cropper
B A G D A D
Camp
Falcon
146.322 íbúar
Bagdad hafa
osnað upp frá
heimilum
sínum frá því í
febrúar 2006.
Íbúaöldi: 6.7 milljónir
Sjía: 72%
Súnní: 27%
Hættulegustu hvern:
Vígamenn súnnímúslima hafa
reynt að reka alla sjía burt frá
Vestur-Bagdad.
1. Kadhamiya
3. Hurriya
5. al-Adal
7. Al-Amariya
9. Jihad
Adhamiya
Ghazaliya
al-Ammal
Qadissiya
Doura
2.
4.
6.
8.
10.
Sjía-
hver
60.000 menn í Mahdi-hernum
í Sadr City. Stuðningsmenn
hans hafa 30 af 275 sætum
á þinginu.
Muqtada al-Sadr: Leiðir
Sjíar í
sókn
Kristin
hver
Súnní-
hver
Súnníar í
sókn
Herstöðvar
BNA
5km
Ofbeldi í Bagdad
Sjía- og súnnímúslimar hafa að undanförnu
ekki hætt sér yr í hver sem hin fylkingin ræður. Ítök
trúarherja hafa hins vegar minnkað mjög undanfarnar
vikur síðan íraskir her- og lögreglumenn, með aðstoð
Bandaríkjamanna, tóku upp öugt eftirlit á götunum.
Íbúarnir anda léttar en óttast að vígaklerkarnir
muni snúa aftur þegar minnst varir.
Haifa Street
draugastarfsmanna í
samgöngu-, heilbrigðis- og
landbúnaðarráðuneytum
ármagna trúarherina.
Fjáröun : Laun svokallaðra
145 þúsund manna leyni-
þjónusta, sem stofnuð var af
Bandaríkjamönnum. Hefur
tengsl við dauðasveitir.
Verndarþjónustan FPS:
Leiðtogi SCIRI. Stjórnar innan-
ríkisráðuneytinu og Badr
sveitunum sem sagðar eru taka
þátt í trúarbardögum.
Abdel Aziz al-Hakim:
Samkvæmt sjálfstæðu rannsókn-
arsamtökunum Iraq Body Count,
sem heldur úti samnefndri vefsíðu,
hefur líkfundum í Bagdad fækkað
um helming. Þessir líkfundir eru
yfirleitt taldir tengjast trúarofbeldi
á milli sjía- og súnnímúslima. Fyr-
ir öryggisátakið voru fastir liðir hjá
lögreglunni að finna að meðaltali
30 lík á götunum, oft illa farin eftir
ofbeldi og jafnvel pyntingar. Morð-
um á óbreyttum borgurum í seinni
hluta febrúar hefur einnig fækkað
um 40% miðað við fyrri hluta febrú-
ar. Þrátt fyrir árangurinn fundu lög-
reglumenn samt ennþá að meðal-
tali 14 lík á dag seinnihluta febrúar.
Þá féllu samtals 118 manns í tveim-
ur stórum sprengjuárásum 18. og
24. febrúar.
Vígaklerkur spáir hrakförum
Þriðja sprengjuárásin drap 40
manns á sunnudaginn var. Flestir
þeirra voru námsmenn sem biðu í
röð eftir að komast inn í skólastof-
ur til að taka miðannarpróf í sjía-
háskólanum Mustansiriya. Víga-
klerkurinn Muqtada al-Sadr, sem
hefur rótsterk ítök í þessum háskóla,
hreytti því í ráðamenn að öryggisá-
ætlunin væri misheppnuð því sjía-
múslimar væru jafnberskjaldaðir
fyrir árásum eftir sem áður. Hann
bætti því við að íraska lögreglan og
herinn ættu að reka innrásarmenn-
ina – þar átti hann við Bandaríkja-
menn – úr landi.
Lýðhylli al-Sadrs stafar mest-
megnis af því að faðir hans var
vinsæll og virtur sjíaklerkur, sem
féll fyrir öryggissveitum Saddams
Husseins árið 1998. Þó Muqtada
þyki ekki föðurbetrungur nýtur
hann engu að síður mjög mikils
fylgis í austurhluta Bagdad.
Annar varaforsætisráðherra
landsins, sjíinn Abdul Mehdi, slas-
aðist í sprengjutilræði gegn honum
á þriðjudag. Fimm manns létust í
árásinni.
Gagnrýni frá báðum hliðum
Hinn varaforsætisráðherrann,
súnníinn al-Hashemi, kvartaði hins
vegar yfir því að súnníar yrðu frek-
ar fyrir barðinu á öryggiáætluninni,
þeir væru undir meiri þrýstingi og
frekar væri ráðist á þá. Þetta rímar við
orðróm sem hefur gengið fjöllunum
hærra, meðal annars á bloggsíðum
frá Bagdad, sem segir að lögreglu-
menn í aðgerðum gegn hryðjuverka-
mönnum hafi fengið skipanir beint
frá skrifstofu forsætisráðherrans
Nuris al-Maliki, sem er sjíi.
Al-Hashemi sagðist einnig hafa
varað bandaríska embættismenn
við því þegar hann heimsótti Wash-
ington í desember að trúarofbeldi
hefði lamað samvinnustjórnina.
Hvíta húsið þyrfti því að huga að
öðrum leiðum ef núverandi örygg-
isátak virkar ekki: „Ég hvatti þá til að
huga að áætlun B,“ sagði al-Hash-
emi. „Hvaða varakosti höfum við
í framtíðinni ef svo fer að þetta ör-
yggisátak klikkar?“
Yfirmenn íraska hersins, sem stjórnar öryggisátakinu í Bagdad, eru ánægðir með
árangurinn. Strax má merkja árangur í fjölda morða og andrúmsloftið virðist hafa
breyst. Tvær stórar sprengjuárásir hafa engu að síður verið gerðar á síðustu tveim-
ur vikum og vígaklerkarnir eru enn kokhraustir.
Helmingsfækkun morða
Sprengjur mikið magn
sprengiefnis og vopna
hefur verið gert upptækt
og hundruð vígamanna
handteknir á undanförn-
um tveimur vikum.
Betri tíð í Bagdad