Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Side 25
Lesendur
DV Umræða
Endurfundir í miðborginni!
Fallegar innréttingar og fullkomin staðsetning Iðusala,
í Lækjargötunni, gerir þessa tvo sali sem um ræðir að
einum vinsælustu veislusölum borgarinnar. Salirnir rúma
250 manns í sæti eða 400 manns í standandi boði.
Lídó er glæsilegur nýr veislusalur sem byggir á klassísk-
um grunni Versala, upplagður fyrir stærri hópa til að
koma saman og fagna. Aðstaða er fyrir 300 manns í
borðhald og yfir 500 manns í standandi boði.
Veisluþjónustan okkar er rómuð fyrir fjölbreyttar og
spennandi veitingar, útbúnar af snjöllustu fagmönnum.
Við sjáum til þess að veislan verði eins og þú vilt hafa
hana: Ykkar ánægja er okkar markmið.
Kynntu þér þjónustu okkar og skoðaðu matseðla á
www.veislukompaniid.is eða hringdu í síma 517 5020
og veislan er í höfn!
Með kveðju,
Hafsteinn Egilsson
Er kominn tími á endurfundi hjá þínum árgangi?
Veislukompaníið býður glæsilega veislusali með
öllum tæknibúnaði og fyrsta flokks veisluþjónustu
í hjarta borgarinnar.
Lækjargötu 2a 101 Reykjavík s 517 5020 www.veislukompaniid.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fyrir skömmu keypti Bjarni Ármannsson, forstjóri
Glitnis, nokkur hlutabréf í bankanum á hagstæðu gengi,
sem hann hafði samið um í svonefndum kaupréttar-
samningi. Í morgun [í gær] vakti þessi frétt í Morgunblað-
inu athygli mína:
„Hagnaðist um 380 milljónir
Ranghermt var í fyrirsögn á viðskiptasíðu blaðsins í
gær að Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, hefði hagn-
ast um 420 milljónir króna á hlutabréfakaupum sínum í
bankanum. Fram kom í fréttinni sjálfri að söluhagnað-
urinn hefði verið 380 milljónir. Þá var misritað í fréttinni
að Bjarni hefði upphaflega keypt bréfin á 4,15 milljónir,
þar átti að standa 42,15 milljónir. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.“
Það er leitt að hagnaður Bjarna skuli einungis nema
380 milljónum króna. Í raun er málum þannig varið að
vegna aðstöðu sinnar sem einn af eigendum Glitnis og
forstjóri, hefur hann vart þurft að leggja eyris virði út fyrir
hlutabréfunum. Um leið og hann keypti þau seldi hann
bankanum þau aftur á tíföldu gengi.
Í Bandaríkjunum eru nú uppi miklar vangaveltur um
réttmæti svokallaðra kaupréttarsamninga og þessi frétt
Morgunblaðsins afhjúpar það siðleysi sem hér liggur á
bakvið. Í raun sé ég ekki, hvernig sem ég velti því fyrir mér
og hversu hlýtt sem mér er til Bjarna Ármannssonar og
Glitnis, að hér sé um annað en þjófnað að ræða.
Bjarni Ármannsson væri maður að meiri ef hann gæfi
allan þennan hagnað, að frádregnum fjármagnsskatti, til
líknarmála. Hér eru nokkrar tillögur:
Þjónustumiðstöð blindra og sjónskertra. Blindrafé-
lagið hefur af veikum mætti barist fyrir stofnun hennar
en litlar undirtektir fengið hjá stjórnmálaflokkum.
væntanlegur stjórnmálaflokkur aldraðra og öryrkja.
Flokkinn vantar tilfinnanlega fjármagn til þess að geta
hafið starfsemi sína, ef samstaða næst á meðal aldaðra á
fundinum sem verður haldinn á Grand hóteli í Reykjavík
kl. 14 á sunnudag, en engin ástæða er að ætla annað en
slík samstaða náist.
Stofnun atvinnuþróunarverkefna fyrir fatlað fólk til
þess að auðvelda því störf á almennum vinnumarkaði.
Glitnir hefur haft frumkvæði að því að gera heima-
síður bankanna aðgengilegar. Bjarni Ármannsson er
nú í aðstöðu til þess að verja umtalsverðum fjármun-
um til margvíslegra velferðarmála og reisa sér þannig
óbrotgjarnan bautastein. Þá munu men e.t.v. gleyma því
hvernig hann eignaðist þessar 380 milljónir króna.
www.arnthorhelgason.blog.is
Hagnaðist einungis um 380 milljónir.
Hvernig verða þær nýttar?
Arnþór HelgAson
Öryrki skrifar
Bjarni Ármannsson væri
maður að meiri ef hann
gæfi allan þennan hagnað,
að frádregnum fjármagns-
skatti, til líknarmála.
Öryrki skrifar:
Nú ræðst það um helgina hvort af fram-
boði eldri borgara og öryrkja verður.
Sömuleiðis hlýtur að fara að draga
til tíðinda hjá Margréti Sverrisdótt-
ur og henn-
ar stuðnings-
fólki. Svo gæti
farið að tvö ný framboð bætist í hóp
þeirra flokka sem bjóða fram fyrir al-
þingiskosningarnar í maí næstkom-
andi. En stöldrum nú við. Hvort er nú
líklegra til árangurs fyrir þá sem lök-
ust hafa kjörin, aldraða og öryrkja, að
bjóða fram undir eigin merkjum eða
lýsa yfir stuðningi við einhvern þeirra
flokka sem fyrir eru á fleti? Er líklegt
að sérframboð öryrkja og aldraðra
nái þeim árangri að það hafi eitthvað
að segja eftir kosningar? Mitt mat
er að vænlegra sé að fylkja liði um
þá sem raunverulega vilja vinna að
bættum kjörum aldraðra og öryrkja í
stað sérframboðs.
Flokkar og
flokksbrot