Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Page 51

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Page 51
DV Helgarblað föstudagur 2. mars 2007 51 Algjört möst í töskuna Nafn? Kitty von-sometime (aka: Kiki-Ow). Aldur? 29 ára. Starf? Plötusnúður og internetfíkill. Stíllinn þinn? Á daginn er það oftast bara gallabuxur og hettupeysur, en á kvöldin er það mixtúra af ælu Joan Collins og hrekkjuvökubúningar. Hvað keyptir þú þér síðast? fallegan goth- kjól úr gyllta kettinum. Hverju færð þú ekki nóg af? Íþrótta- göllum, ég gæti aldrei átt of mikið af íþróttagöllum. Hvað langar þig í akkúrat núna? mig langar rosalega mikið í sérsaumaðan íþróttagalla með leðurblökuvængjum og axlapúðum. mig langar líka í nudd, humar og kampavínsveislu. Hvað er möst að eiga? Leðurblökuvængi og herðapúða. spandex og pallíettur. Þér er boðið í partí í kvöld, í hverju ferðu? Einhverju af mínum mörgu varadressum sem ég geymi í fataskápnum. Hvenær hefur þú það best? Þegar ég fer í bað, ég elska að fara í bað. Ég get ekki lagt nógu mikla áherslu á það. Ég er ekki með bað heima hjá mér en fæ að skella mér í bað hjá einum vini mínum og elda í staðinn. Ég fer samt reglulega í heitu pottana, en það er ekki eins og að fara allsber í bað með gott vín sér við hönd. Afrek vikunnar? Það er weird girls-partíið sem ég hélt. Partíið var tekið upp á vídeó og teknar myndir fyrir tímarit sem ég er að hjálpa að reka. tímaritið heitir shut og er gefið út í Bretlandi. Ég bauð um 10 stelpum sem dönsuðu í myrkrinu með glowstick límd á sér. Eiginlega besta afrek ever. Persónan Kiki-Ow Strákar spilið rétt út Flott peysa fyrir alvöru gosa. Fæst í Top Shop og er á kjaraprís. Höfnin er svo ein og yfirgefin eftir að farand- búðin Comme des Garcons leið undir lok. Við minnumst góðra tíma og getum tekið ofan fyrir Rei Kawakubo, hönnuði Comme des Garcons. Rei Kawakubo sýndi fyrir Comme des Garcons á tískuvikunni í París á þriðju- daginn var. Heyr, heyr fyrir því. Við söknum Comme des Garcons JJeremy scott... rocks my worldVá, hvað hann er rosalega mikill tö ffari. Jeremy scott er s krautlegur og einstaklega sk emmtilegur hönnuður. Hann sýndi á tískuvikunni í Par ís sama dag og r ei Kawakubo. Libor ius á mýrargötun ni selur hönnun efti r Jeremy scott, svo það er um að gera að kíkja á þær slóðir og dæ sa af löngun. Jeremy scott í lok sýningar. Forvitnir ættu að kíkja á: http://www.myspace.com/nolimits90s. Það er 90‘s partí á NASA á laugardaginn. Hið fræga „flugfreyjumeik“ frá Chanel er nú komið í hagkvæmari umbúðir. meikið er vítamínbomba sem gefur húðinni mikla næringu og þar sem það inniheldur að mestu vatn, gefur það húðinni mikinn raka. Chanel-undirfarðinn jafnar út húðlitinn og dregur úr roða (frábær fyrir þær sem eru með rósroða eða háræðaslit). Einnig hægt að nota sem „highlight“ á kinnbeinin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.