Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2007, Side 56
föstudagur 2. febrúar 200756 Tónlist DV
Bandaríska rokksveitin Incubus heldur tónleika í Laugardalshöll annað kvöld. Sveitin
á að baki 14 ára feril og hefur selt milljónir platna um allan heim. Nýlega sendi hún frá
sér sína sjöttu breiðskífu, Light Grenades, sem fór beint í fyrsta sæti á Billboard-vin-
sældalistanum.
Hljómsveitin Incubus var stofnuð í Calabasas í Kali-
forníu árið 1993, þegar meðlim-
ir hljómsveitarinnar voru einungis
15 ára. Eftir að hafa deilt um nafn á
hljómsveitina í nokkurn tíma lagði
gítarleikarinn Mike Enziger til nafnið
Incubus, sem kemur úr latínu og er
nafn á djöfullegri goðsagnapersónu
sem tældi konur á meðan þær sváfu.
Árið 1994 leit fyrsta plata drengjanna
dagsins ljós, Fungus Amongus. Með-
limir Incubus sáu sjálfir að mestu
um útgáfu hennar og borguðu allan
kostnað við hana sjálfir.
Framleiða slagara
Árið 1997 sendi sveitin frá sér
plötuna S.C.I.E.N.C.E og náði hún
töluverðum vinsældum í Bandaríkj-
unum og Evrópu, þrátt fyrir litla út-
varpsspilun. Platan inniheldur með-
al annars lögin A Certain Shade Of
Green og Deep Inside. Platan seldist
í 750.000 eintökum og er í uppáhaldi
meðal margra aðdáenda hljómsveit-
arinnar, en á henni ægir saman neu-
metal rokki, rappi og fönktónlist. Í
kjölfar plötunnar var sveitinni boð-
ið að taka þátt í Ozzfest- og Warped-
tónleikaferðunum.
Þriðja plata Incubus, Make Your-
self, var gefin út í október 1999. Plat-
an var mun hlustendavænni en fyrri
plöturnar og fékk sveitin í fyrsta
skipti almenna spilun á MTV og út-
varpsstöðvum.
Platan Morning View kom út
árið 2001 og kvað enn við nýjan tón
á henni. Morning View er melódísk
og róleg rokkplata og skaust beint í
annað sæti á Bilboard-vinsældalist-
anum. Lögin Wish You Were Here og
Are You In tryggðu sveitinni sess sem
ein mest spilaða hljómsveitin á rokk-
útvarpsstöðvum víða um heim.
Bannaðir fyrir að gagnrýna
Bush
A Crow Left to Murder kom út
árið 2004. Mörg lög á plötunni eru til-
raunakennd og svipar hljómi þeirra
að mörgu leyti til S.C.I.E.N.C.E og
Fungus Amongus. Á plötunni er þó
að finna hlustendavæn lög á borð við
Talk Shows on Mute og lagið Mega-
lomaniac, sem olli nokkru fjaðrafoki
í Bandaríkjunum. Boðskapurinn í
laginu var túlkaður sem gagnrýni á
George W. Bush, þrátt fyrir að Incu-
bus-menn lýstu því yfir að svo væri
ekki. MTV tók lagið úr spilun á dag-
inn og viðurkenndi Brandon Boyd
söngvari að hljómsveitin hefði verið
ánægð með þá ákvörðun.
Nýjasta plata sveitarinnar, Light
Grenades, kom út í nóvember á síð-
asta ári og í fyrsta skipti náði sveitin
fyrsta sætinu á Bilboard-vinsælda-
listanum. Hljómsveitin er um þessar
mundir að leggja af stað í heimstón-
leikaferð og eru tónleikarnir í Laug-
ardalshöll með þeim fyrstu á ferða-
laginu.
valgeir@dv.is
Hlustendavænir
rokkHundar
Incubus.
sveitin hefur gefið út 6 breiðskífur á 14 ára ferli.
Ekki með lifr-
arbólgu
Söngkonan
Beyonce Knowles
hefur ekki smitast
af lifrarbólgu A,
eins og óttast var.
En gestir í veislu
Sports Illustrated
voru allir beðn-
ir um að fara í skoðun, eftir
að upp komst að þjónustu-
stúlka í veislunni væri smituð
af sjúkdómnum. Beyonce hef-
ur ekki enn farið í próf til þess
að skera úr um hvort hún sé
með veiruna, en segir talsmað-
ur hennar að söngkonan hafi
hvorki bragðað vott né þurrt í
veislunni og því ekki í hættu á
að hafa smitast.
Fjölskyldu-
meðlimur
með HIV
Söngkonan og villingur-
inn Kelly Osbourne kom öllum
opna skjöldu þegar hún til-
kynnti að einn fjölskyldumeð-
lima hennar væri HIV-jákvæður.
Stúlkan tilkynnti þetta á góð-
gerðarsamkomu til styrktar mál-
efnum AIDS. Miklar vangaveltur
vöknuðu um hvort það væri fað-
ir hennar Ozzy eða annar náinn
fjölskyldumeðlimur sem væri
HIV-jákvæður. Það var hins veg-
ar Terry Londgen frændi Kelly
sem greindi frá því að hann væri
smitaður.
Platan klár
Ný platan frá White Stripes
er væntanleg. Ekki er kom-
in dagsetning ennþá en þau
Jack og Meg White sögðu á
heimasíðu sinni að þau gerðu
hvað sem þau gætu til að koma
henni frá sér sem fyrst. „Við
erum að gera okkar besta. Þótt
við séum þreytt, búin, buguð,
svöng, köld og án allrar orku
erum við að plana tónleikaferð
um heiminn.“ Platan mun heita
Icky Thump og luku þau nýlega
við upptökur og hljóðblöndun í
Nashville í Bandaríkjunum.
Jason Cheetman, eða Jay Kay for-
sprakki bresku sýru-fönksveitarinn-
ar Jamiroquai,er hættur í tónlist í bili.
Eftir að hafa nýlega losnað undan
stórum plötusamningi við SonyBMG
segist Jay Kay hlakka til að losna úr
tónlistarbransanum. „Þetta hefur
verið upp og niður í gegnum tíðina
en því miður meira niður undanfar-
ið. Ég þarf bara frí,“ segir Jay Kay en
hljómsveitin Jamiroquai sem er frá
London hefur verið starfandi síðan í
kringum 1990 og hefur selt rúmlega
27 milljónir platna um allan heim.
Jay Kay hefur lengi verið mjög
ósáttur við SonyBMG og hefur verið
að vinna í því að losna undan samn-
ingi í lengri tíma. Hann sagði með-
al annars í viðtali í fyrra að hann
væri orðinn dauðþreyttur á tónlist-
arbransanum þar sem þetta snérist
18% um tónlistina og 82% um mark-
aðssetningu.
„Ég útiloka ekkert að snúa aftur í
tónlistarbransann ef ég fæ innblástur
á ný,“ segir Jay Kay sem hefur þó þeg-
ar planað frítíma sinn næstu misseri.
„Ég ætla verja frítíma mínum í fljúga
þyrlunni minn og leita að réttu kon-
unni til að eignast börn með.“ as-
geir@dv.is
Jason Cheetman, betur þekktur sem Jay Kay í hljómsveitinni Jam-
iroquai, hefur sagt skilið við tónlistarbransann að sinni:
Jay Kay hættur í bili
Jay Kay
Langar að einbeita sér að því
að stofna fjölskyldu.