Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.08.1984, Qupperneq 18

Læknablaðið - 15.08.1984, Qupperneq 18
188 LÆKNABLADID 10 ára (12, 57-61). Finsen áleit, að það hefði villt um fyrir Schleisner, hve fá börn voru meðal sjúklinga hans og héraðslæknanna, því að gamalt fólk hélt því fram, að sjúkdómurinn hefði verið algengur í æsku þess. En Finsen staðfestir, að lungnatæring sé mjög fátíð, hann sá alls 6 (0,07 % sjúklinganna) með þá veiki, og þar af voru 2 danskir sjómenn. Einn íslenzku sjúklingannna, sem jafnframt var lamaður frá mitti, krufði hann og fann kavernur í báðum lungnatopþum, auk berklaskemmda í efstu brjóstliðum. Finsen stóð þannig að rannsókn- um sínum, að taka verður fyllsta tillit til niðurstaðnanna, þar sem þær byggjast á sam- anburði á hlutfallslegum fjölda sjúklinga, sem hann sá í 10 ára starfi á íslandi og í 5 ára starfi sínu í sveitahéraði á Jótlandi. Með lungna- berkla reyndust 0,07 % á íslandi, en 1,7 % á Jótlandi, og þessi gífurlegi munur hlýtur að byggjast á miklum mun á tíðni sjúkdómsins í löndunum. Það fór ekki framhjá Finsen, að ósamræmis gætti milli kirtlaveikinnar og berkla í öðrum líffærum og hann segir: »Da Hofteledsbetændelse saa ofte skyldes Kertel- syge, og da jeg efterhaanden har paavist, at denne Sygdoms farlige Ledsagere, Lunge- svindsot og Hjærnebetændelse, enten saa at sige ikke, eller forholdsvis meget sjælden, forekommer i Island, medens Kertelsygen paa den anden Side er en forholdsvis hyppig Sygdom, maa dette betragtes som en mærke- lig Fremtoning« (12, 160-161). En hann gat ekki gefið fullnægjandi skýringu á ósamræm- inu, enda ritaði hann doktorsrit sitt fyrir fund berklasýkilsins, sem endanlega greiddi úr vaf- anum, er ríkti um tengsl hinna ýmsu forma berklaveikinnar. Sá þekkingarauki, sem síðan hefur fengist á veikinni, gerir óhugsandi að saman fari tíðir eitlaberklar og fátíðir berklar í öðrum líffærum. Kirtlaveikin, sem Finsen sá hér, mun yfirleitt ekki hafa verið af völdum berkla, enda bendir hin greinargóða lýsing hans á þeim sjúklingum á líklegar orsakir hennar, þ.e. hve oft þeir voru með útbrot í andliti og höfði, og lýsing hans á »den ejendommelige Skrofulose habitus« bendir til kok- og gómeitlaauka (vegetationes adenoi- des). Sigurður Magnússon var á annarri skoðun. Hann áleit kirtlaveikina aðallega berkla og læknum þá hafi yfirsést stórlega um berkla í öðrum líffærum, og segir: »Að berklaveikin hafi svo að segja allt í einu farið að vaxa stórlega og útbreiðast allstaðar á þessu strjál- byggða landi, má heita óhugsandi. Slíkt er ekki eðli og háttalag þessarar langvinnu og hæg- fara veiki,« (14, 31). Það fer væntanlega eftir aðstæðum hversu hægfara berklaveikin er, það þarf ekki að hafa verið eðli hennar ætíð, enda alkunn bráð form hennar, og þó að það sé útbreidd skoðun, að strjálbýli eigi mikinn þátt í að hefta útbreiðslu veikinnar, þá held ég eftir að hafa kynnst á hve skömmum tíma margar hinna fornu sótta bárust um allt landið (3, 275 og 320), að alltof mikið hafi verið gert úr þeim þætti. En það er svo annað mál, að ætla má, að án hægfara formsins geti berklar ekki náð umtalsverðri út- breiðslu í nokkru þjóðfélagi, og er það kjarni málsins viðvíkjandi hugsanlegri útbreiðslu veikinnar hér á umliðnum öldum, að gera sér grein fyrir skilyrðum fyrir viðhaldi hægfara (króníska) formsins. Með almennum orðum má orða það þannig: að hæfilegt jafnvægi ríki milli sýkingarmátts berklasýklanna og við- námsþróttar þess sýkta, svo að hvorugt nái yfirhönd skjótum hætti. Á árunum 1926-30 er berklaveikin tíðasta dánarorsökin hér á landi. Þá deyja 199 af 100.000 úr henni og þar af 133 úr lungnatæringu, miðað við aldur látast lang- flestir á 1. ári, eða 366 af 100.000 og af þeim flestir úr heilahimnuberklum, eða 220 af 100.000. (Það sem hér er sagt um háttu berklaveikinnar eftir 1911, er samkvæmt grein- um Sigurðar Sigurðssonar 15, 16). Árin 1921- 30 er manndauði hér á landi 12,7 °/oo og ungbarnadauði 53 °/oo, en á 18. öld og framan af þeirri 19., þegar ungbarnadauðinn var 300°/oo drepsóttarlausu árin, og hungurfellir fimmta hvert ár með heildar mannadauða yfir 39 °/oo (sjá töflu I), er ólíklegt að hafi verið jarð- vegur fyrir hægfara berkla. Það gæti hugsast innan efnamestu fjölskyldnanna, en þær voru of fáar til þess að geta haldið við líði umtals- verðri berklaveiki í landinu. Það er ekki fyrr en eftir daga Finsens hér á landi, að ungbarna- dauðinn kemst niður fyrir 200 °/oo og mann- dauðinn niður í 24 %o (1871-1880) þá virðist berklaveikin ná fótfestu hér, fara síðan ört vaxandi með lækkandi ungbarna- og mann- dauða og skal ekki gangur veikinnar rakinn eftir 1911, það hefur Sigurður Sigurðsson, sem bezt skil kann á þeirri sögu, nýverið gert. Þegar tak berklaveikinnar á þjóðinni linast, fara þeir sjúkdómaflokkar, sem nú eru tíðustu dánarorsakirnar að verða áberandi, fyrst ill- kynja æxli og síðan hjartasjúkdómar. Þessir tveir sjúkdómaflokkar ásamt heilasjúkdómum

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.