Læknablaðið - 15.08.1984, Síða 35
LÆKNABLADID
197
Number
of
samples
(xlO_15mol/mg)
Fig. 2. PR analysis of primary breast cancer cytosols. The dotted area denotes the number of negative
samples. n = 135.
ir lægri gildum í konum á frjósemisskeiði (22,
23). í konum á frjósemisskeiði skiptir máli
hvar konan er stödd í tíðahring, pegar sýni er
tekið (24), pví magn estrógens og prógester-
óns er mjög breytilegt (21). Vitað er að magn
ER og PR í legi er háð tíðahring (21). Einnig er
vitað að prógesterón hefur letjandi áhrif á
framleiðslu ER (24) og estrógenverkun örvar
framleiðslu á PR (25, 26).
Ekki er alveg ljós skýring pess að hérlendis
eru konur á frjósemisskeiði oftar með viðtaka
en erlendis gerist (töflur VI og V). Munurinn
virðist aðallega liggja í hópnum sem er með
minna en 50 fmól/mg. Spyrja má hvort okkar
mælingaraðferð sé næmari á sýni með fáa
viðtaka, t.d. á bilinu 10-30 fmól/mg, heldur en
aðferðir annarra, og benda má á að mælingar-
tæknin hefur próast mjög hin allra síðustu ár
(sérstaklega PR mæling). Önnur skýring á
pessu háa hlutfalli viðtaka í konum á frjósem-
isskeiði gæti verið sú, að konur greindust fyrr
hér á landi en annars staðar. Æxlin séu pví
minni og sérhæfðari við greiningu og pví oftar
jákvæð (15). Ekkert verður pó fullyrt um petta
par sem ekki hafa verið athugaðar niðurstöður
vefjarannsókna pessara æxla m.t.t. pessa, en
vert væri að gera pað. Enn ein skýring gæti
verið sú, að hér á íslandi sem annars staðar á
Vesturlöndum, greinist sjúkdómurinn nú fyrr
en áður vegna fullkomnari greiningartækni
(27), en tölur um jákvæðni í konum á frjó-
semisskeiði sem vitnað var til (1) eru orðnar
nokkurra ára gamlar.
Þessi munur, sem kemur fram á viðtökum
eftir frjósemisstigi, gæti bent til pess að tilurð
krabbameinsins (oncogenesis, carcinogenesis)
væri mismunandi í pessum tveimur hópum, t.d.
gæti upphaflegur fjöldi fruma sem breytast
yfir í illkynja ástand verið breytilegur.
Samanburður á sýnum með biopsiu og