Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1984, Side 7

Læknablaðið - 15.10.1984, Side 7
LÆK.NABLAÐID 70, 247-252, 1984 247 Jón Karlsson,1) Rögnvaldur Porleifsson,1) Ragnar Jónsson,1) Þröstur Finnbogason2) MEÐFERÐ Á LÆRHNÚTUBROTUM MEÐ ENDERNÖGLUM Aðgerðir á slysadeild Borgarspítalans 1978-1981 INNGANGUR Meðferö á lærhnútubrotum (fractura pertro- chanterica) er talsverðum vandkvæðum bund- in Yfirleitt er um að ræða eldra fólk, sem illa polir langvarandi rúmlegu eða langar að- gerðir. Bezta meðferðin er innri festing brots- ins og fótaferð svo fljótt sem unnt er. Fylgikvillar aðgerðar hafa verið tíðir, svo sem sársýkingar, síðgróin brot (delayed union), storka í bláæðum, lungnarek, viðvarandi verkir í mjöðm og lök göngugeta. Dánartíðni hefur yfirleitt verið há (1). Mörgum aðferðum hefur verið beitt til meðhöndlunar á pessum brotum en algengast var að nota nagla og plötu, t.d. að hætti McLaughlin (2). Tæknileg vandkvæði og há tíðni sársýkingar hafa hins vegar verið ann- markar á þeirri aðferð (2, 3, 4). Árið 1966 tók Kuntscher (5) að negla lærhnútubrot með mergholsnagla, sem rekinn var frá neðri enda lærleggs og upp í lærleggs- haus. Þessi aðferð var talin einfaldari fyrri aðferðum og gefa betri stöðugleika, auk þess sem blóðmissir og sýkingarhætta væru minni. Gallar aðferðarinnar voru fyrst og fremst taldir að naglinn væri of stífur og hindraði ekki nægilega snúning í brotinu. Árið 1970 (6) var tekið að nota marga sveigjanlega nagla, svokallaða Endernagla (mynd 1), sem reknir voru frá innri hnjákolli (condylus medialis femoris) og upp í lærleggs- haus. Meginkostir Endernaglanna hafa verið taldir góður stöðugleiki á brotstað, óveruleg ígerð- arhætta og lítil vefjaröskun. Aðgerðartími hefur almennt verið talinn stuttur (7) og dánartiðni lág (8). Þessi aðferð ruddi sér tals- vert til rúms á áratugnum 1970-1980 (6, 8). Á Slysadeild Borgarspítalans í Reykjavík var þessi aðferð fyrst notuð árið 1978 og var Slysadeild Borgarspítala. Barst ritstjórn 06/01/1984. Samþykkt og send í prentsmiðju 27/06/1984. meginaðferð við neglingu slíkra brota fram yfir mitt ár 1983. Markmið þessa yfirlits er að gera grein fyrir árangri Enderneglinga á iærhnútubrotum á Slysadeild Borgarspítalans á tímabilinu 1978- 1981, að báðum árum meðtöldum. MEÐFERÐ Notuð var tækni Enders (6). Aðgerðin er framkvæmd á strekkborði, í svæfingu eða mænudeyfingu. Brotið fært í viðunandi skorð- ur og nöglum komið fyrir með aðstoð skyggni- magnara. Með fremur stuttum skurði er opnað inn á innri hnjákoll (condylus medialis femoris) og gluggi gerður á merghol leggsins ofanvert á hnjákollinum. Naglarnir síðan rekn- ir inn um gat þetta, upp mergholið og upp í lærleggshausinn. Reynt var að snúa nöglunum þannig, að efri endar þeirra dreifðust sem mest í lærleggshálsi og lærleggshaus. Reynt var að koma efri endum naglanna fyrir nærri liðbilinu. í sumum tilvikum voru naglaendarnir sveigðir fram á við áður en þeir voru reknir inn, til þess að draga úr hættu því á að sjúklingur yrði útskeifur. Oftast voru notaðir þrír naglar en stundum fjórir. Neðri endi naglanna stóð yfirleitt nokkra millimetra, út úr beininu ofan hnés, í lok aðgerðar. Fótaferð og sjúkraþjálfun var hafin á fyrsta degi eftir aðgerð. Með því móti var reynt að draga úr hættu á segamyndun í bláæðum og lungnareki og fækka þannig dauðsföllum. Sjúklingar voru hvattir til að leggja þunga- álag á fótinn eftir því, sem sársauki leyfði. EFNI Kannað var hvernig sjúklingum, sem negldir voru vegna lærhnútubrota með Endernöglum á Slysadeild Borgarspítalans árin 1978-1981 reiddi af. Sjúklingarnir voru 51 með 53 brot samtals: Ellefu karlar og 40 konur (tafla I). í 48 tilvikum

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.