Læknablaðið - 15.10.1984, Blaðsíða 35
LÆK.NABLAÐIÐ
261
meðal miðaldra fólks samkvæmt nýlegri könn-
un Manneldisráðs (14) og er það hærra en
meðal flestra vestrænna þjóða. Þátt fyrir pað
virðist tíðni áðurnefndra brota síst minni hér
en annars staðar. Kalkinntaka þeirra einstak-
linga sem brot hlutu er hins vegar óþekkt og
kann að hafa verið verulega minni. Vera kann,
að mikil eggjahvítuneyzla hérlendis hafi sitt að
segja þar sem rannsóknir benda til þess að
vissar tegundir eggjahvítuefna auki kalkút-
skilnað í pvagi og valdi neikvæðum kalkbú-
skap (35). Þess ber þó að geta að fæða, sem
inniheldur mikið af eggjahvítu samfara miklu
fosfati svo sem mjólkurafurðir og kjötafurðir
hefur minni áhrif á kalkútskilnað en sumar
aðrar tegundir eggjahvítuefna (35).
Öllum ber saman um að osteoporosis sé
margpátta sjúkdómur par sem ekki aðeins
næringarástand og hormónar gegna ákveðnu
hlutverki, heldur einnig aðrir pættir, svo sem
hreyfing og líkamsáreynsla, erfðir og fleira
(36). Einnig virðist beinmassi einstaklinga um
Mynd 12. Nýgengi lærleggshálsbrota hjá körlum
skv. nokkrum könnunum.
30 ára aldur, þegar hámarki er náð, skipta
verulegu máli m.t.t. beintaps síðar á ævinni
(37). Varðandi tíðni brota ber einnig að hafa í
huga hina fjölmörgu mismunandi orsakapætti
brotanna meðal aidraðra s.s. falltíðni, svefnlyf
og fleira (38). Það er að sjálfsögðu mikilvægt
að vita sem bezt hvaða þættir eru að verki til
að unnt verða að draga úr tíðni peirra brota
sem hér eru til umræðu og valda einstak-
lingum óþægindum og þjóðfélaginu búsifjum.
Einnig er það mikilvægt að unnt reynist að
finna þá hópa fólks, sem hættast er við
verulegri osteoporosis og þar með beinbrot-
um, en rannsóknir í þeim efnum eru enn
skammt á veg komnar m.a. vegna þess hve
erfitt hefur reynst að greina osteoporosis á
forstigi.
Beztu þakkir til allra þeirra læknaritara á sjúkrahúsunum í
Reykjavík sem veittu okkur aðstoð við öflun gagna og
einnig til starfsfólks á Tölvudeild Borgarspítalans. Enn:
fremur þökkum við Kristni J. Albertssyni og Höllu Björgu
Baldursdóttur fyrir veitta aðstoð við skriftir og frágang.
Mynd 13. Nýgengi lærleggshálsbrota hjá konum
skv. nokkrum könnunum