Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.10.1984, Side 23

Læknablaðið - 15.10.1984, Side 23
LÆKNABLADID 255 þriðjungur af nýgengi í sama aldurshópi kvensjúklinga. Kannaðar voru skýrslur flestra sjúklinganna sem greindust á árunum 1973 og 1979 (tafla II). Samkvæmt mynd 6 var meiri háttar áverki orsök langflestra pessara brota meðal karla (88,7 %) og gildir pað um alla aldurshópana. Meðal kvenna var meiri háttar áverki hins vegar orsök minni hluta brotanna (35,4 %) sérstaklega í efri aldurshópunum, en í yngri aldurshópunum er pessu öfugt farið. Þannig var hlutfallið meiri háttar/minni háttar áverki hjá körlum 8,7 undir fertugu, en 7,0 yfir fertugu. Hjá konum var sama hlutfall 1,6 undir fertugu, en 0,3 yfir fertugu. Tafla IV sýnir að flest brotanna í hryggsúlu voru staðsett í neðri hluta brjósthryggjar og lendhrygg og voru langflest peirra samfalls- brot á liðbolum. Meðal kvenna var einnig stór hluti brotanna í spjaldhrygg og rófubeini og reyndar flest brotin í peim flokki í rófubeini. Tafla IV sýnir einnig að brot staðsett í hálshrygg og efri hluta brjósthryggjar greind- ust aðallega í yngri aldurshópunum og voru slík brot sérstaklega áberandi meðal karla. Þar sem um var að ræða brot í fleirum en einum liðbol var brotið flokkað til pess svæðis, sem innihélt flesta brotna liðboli. Greining allra pessara brota byggðist m.a. á röntgenmyndum, að undanskildum brotum í rófubeini, sem langoftast greindust við klíníska skoðun. Mikill munur milli kynja reyndist í greindum brotum í spjaldhrygg og rófubeini, bæði í efri og neðri aldurshópnum. Tafla V sýnir hvernig brotin skiptast milli slysstaða, flokkað eftir kyni og aldri sjúklinga. í yngri aldurshópum beggja kynja áttu 74- 75 % brotanna sér stað utan heimilis og án tengsla við vinnu. í yngri aldurshópi karla voru 22,2 % brotanna tengd vinnu, en 45,8 % í efri aldurshópnum, og í peim hópi áttu 25 % brotanna sér stað á heimili sjúklings. í kvenna- hópunum voru aðeins 4,1 % brotanna tengd vinnu, en 21,4 % yngri kvenna brotnuðu á heimilum sínum. Hins vegar hljóta 58,6 % eldri kvennanna í pessum hópi brotin á heim- ilum sínum, en 37,1 % peirra utan heimilis og án tengsla við vinnu. Brot í framhandlegg Árin 1973-1981 voru greind brot í framhand- legg 3838 sjúklinga Slysadeildarinnar og voru konur 2389 en karlar 1449 (tafla I). Hlutfallið konur/karlar er pví 1,65. Mynd 7 sýnir kyn- og Tafla IV. Dreifing brota innan hryggsúlunnar árin 1973 og 1979 eftir kynjum og aldri. 1973 og 1979 H Be Bn L SR Karlar <40 ................. 4 5 11 26 3 >40 ................. 1 1 5 15 2 Konur <40 ................. 1 4 2 5 14 >40 ................. 2 1 27 24 16 Samtals 8 11 45 50 35 H: hálshryggur Be: brjósthryggur efri(Th 1-6) Bn: brjósthryggur neðri (Th 7-12) L: lendhryggur SR: spjaldhryggur og rófubein Tafla V. Flokkun hryggsúlubrota eftir slysstad. 1973 og 1979 V H UH Karlar <40 6 i 20 >40 11 6 7 Konur <40 1 6 21 >40 3 41 26 Samtals 21 54 74 V: Slys tengd vinnu H: Slys á heimili sjúklings UH: Slys utan heimilis og vinnu aldursdreifingu brotanna og er greinilega veru- legur munur á kynjunum. Sjúklingafjöldi begg- ja kynja var mestur á aldrinum 10-14 ára og minnkar síðan mjög mikið upp að 25 ára aldri. Kvensjúklingum fjölgar verulega uppúr fer- tugsaldri og nær fjöldi peirra hámarki milli 55 og 65 ára en fer minnkandi úr pví. Þegar litið er á aldursbundið nýgengi (fjöldi/lO.OOO/ár) (mynd 8), sést að mynstur beggja kynja er svipað fram til fertugs. Eftir fertugt er ný- gengið í aldurshópum karla nokkuð jafnt til æviloka. Meðal kvenna fer pað hins vegar vaxandi eftir fertugt og nær hámarki á aldrin- um 65 til 70 ára, u.p.b. 143/10.000/ár. Eftir pað lækkar nýgengið lítils háttar til æviloka en er nokkuð sveiflukennt. Mynd 9 sýnir hlutfallið minni háttar/meiri háttar áverki í framhandleggsbrotum 1973 og 1979. Þar kemur greinilega fram að meiri háttar áverkar voru algengari hjá yngri sjúk- lingunum en minni háttar áverkar algengari meðal kvenna eftir prítugt og meðal karla eftir fimmtugt. Myndin sýnir glögglega hversu miklu algengari minni háttar áverkar voru

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.