Læknablaðið - 15.10.1984, Page 43
LÆKNABLADID
267
70 nm í þvermál. í henni er ríbókjarnasýra
meö innri og ytri prótínhjúp (capsid). Nafn sitt
dregur veiran af latneska oröinu rota ( = hjól),
enda gefur útlitið tilefni til pess. Innri hjúp-
urinn virðist geyma mótefnastýri (antigenic
determinants) sameiginleg öllum rótaveirum,
en sá ytri sérhæfða (type specific) stjórnhluta
mótefnavaka.
Tegundahópar rótaveira hafa mjög flókin
og fjölbreytt mótefnavakakerfi og pess vegna
hefir mönnum ekki tekist að koma á samein-
urðu kerfi sermiflokkunar.
Einkenni rótaveirusýkingar eru vægur hiti,
uppköst og niðurgangur. Ná einkennin há-
marki prem til fjórum dögum eftir byrjum veik-
inda. Alvarlegasti aukakvillinn er vessaþurrð,
einkum hjá ungbörnum 12 til 18 mánaða. Fyrir
koma blæðingar um endaþarm. Einkenni frá
öndunarfærum (nefrennsli, hósti, eyrnabólga)
eru venjulega undanfari meltingartruflananna.
Getur kvillinn komið fyrir sem farsótt, er
líkast kvefsóttum. Parf því að hafa rótaveiru-
sýkingu í huga sem mismunagreiningu bráðrar
öndunarfærasýkingar.
Fyrir kemur, að rótaveirur valda heilkenni
skyndidauða ungbarna (sudden infant death
syndrome), sem eingöngu hefir verið tengt
sýkingu í efri hluta öndunarfæra (7).
Frumsýking er oftast á unga aldri. Með-
göngutími sóttarinnar eru þrír dagar. Nýgengi-
hlutföll eru misjöfn eftir heimsálfum. í hita-
beltinu er talið, að rótaveirusýkingar séu or-
sök innlagna vegna niðurgangs hjá börnum
fimm ára og yngri í 20 til 30 % allra tilvika.
Tilsvarandi tölur í tempraða beltinu eru 40 til
60 af hundraði. Sjúkdómurinn er mjög smit-
næmur. A einangruðum eyjaklasa í Kyrrahaf-
inu sýktust í afmörkuðum faraldri 62 % barna
eins til fimm ára (8).
Rótaveirur berast einkum með saur milli
og valdið dropasmitun á íbúðasvæðum. Verð-
ur vikið að pessu síðar.
sjó. Komið hefir í ljós, að a.m.k. 12 til 14 daga
parf til pess að þúsundföld fækkun (Iog 3
reduction) verði par (9). Bendir pað til pess, að
veiran sé mjög stöðug í vatni.
Rótaveirur berast einkum með saur milli
manna, en önnur möguleg smitleið er dropa-
smit með menguðu vatni. Sé loftið rakt og
hitastig lágt, getur veiran prifist í margar
klukkustundir. Skolp, sem rennur í sjó, getur
flotið upp fyrir áhrif eðlispyngdar og hitastigs
og myndað punnt yfirborðslag. Sterkur vindur
getur gripið með sér vökvann úr yfirborðinu
og valdið dropasmitun á íbúðasvæðum. Verð-
ur vikið að pessu síðar.
1.3 Adenóveirur (adenoviruses)
Adenóveirur eru stöðugar við mismunandi
sýrustig og pær standast vel áhrif sólarljóss og
sótthreinsiefna. Af pessum sökum vegnar peim
vel í umhverfi mannsins.
Tengsl tiltekinna veira við niðurgangssóttir
ungbarna hafa orðið ljós á síðustu árum (10).
Pessar veirur eru í ýmsu frábrugðnar algeng-
ustu sermigerðunum og er litið á pær sem
sérstakan undirflokk.
Einkennin, sem þessi undirflokkur veldur,
eru eingöngu frá meltingarfærunum. Mest ber
á niðurgangi, en börn kasta einnig upp og eru
lystarlaus. Kvillinn stendur að jafnaði fjóra til
níu daga. Afturbati er venjulega viðburðalaus.
Kvillann fá einkum börn átta mánaða til
tveggja ára. Eldri systkini og foreldrar eru
einkennalaus og útskilja ekki adenóveirur.
1.4 Bikarveirur (caiiciviruses)
Saga bikarveiranna hófst í Kaliforníu 1932,
pegar borin voru kennsl á útþotasótt í svínum
(vesicular exanthema) og nýverið hefir þeim
verið skipað í ættina Caliciviridae (11). Stærð
veirunnar er 30 nm. Hún hefir sérkennilega
Davíðsstjörnuásýnd, sem greinir hana frá öðr-
Fig. 1. Viruses pathogenic to man occurring in
water.
Genus Species
Enterovirus Calicivirus Juman poliovirus types 1-3 Human coxsackievirus A1-A22, 24 Human coxsackievirus B1-B6 Human echovirus types 1-9, types 11-27, types 29-34. Human enterovirus type 72
Parvovirus Adeno- associated Norwalk-virus
virus (AAV) Reovirus AAV types 1-4
subgroup Mammalian Human roatvirus Reovirus types 1-3
adenovirus Papilloma Human adenovirus types 1-33
virus Polyoma Human papilloma virus
virus Astrovirus*) BK virus
*) Not yet classified