Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.01.1987, Síða 30

Læknablaðið - 15.01.1987, Síða 30
16 LÆKNABLAÐIÐ nokkrar stöðvar eru þar reknar af læknum sjálfum. Þeir fá þó bágt fyrir hjá kerfismönnum sem ekki fást til að trúa því að læknar geti unnið sjálfstætt. Sjúkrahúsrekstur er einnig kominn í hendur ráðuneytis og hagsýslustofnunar án tillits til þess hver skráður eigandi er. Eftir eru þá aðeins sérfræðingar sem vinna á eigin stofum. Hve lengi þeir fá til þess leyfi er óvíst. Töluverður áhugi er á því að færa þessa starfsemi inn á göngudeildir sjúkrahúsanna og banna mönnum að starfa sjálfstætt. En er þetta þá ekki fyrirmyndarskipulag? Landsmenn allir skyldutryggðir hjá ríkinu sem síðan sér um og stjórnar þeirri heilbrigðisþjónustu sem það borgar fyrir. Lítum nú aðeins á hverjir eiga hér hagsmuna að gæta. Fyrst og fremst tryggingatakinn, sjúklingurinn. Fyrir hann er kerfið gert. í öðru lagi tryggingasalinn, ríkið, sem greiðir kostnaðinn. í þriðja lagi læknar og aðrar heilbrigðisstéttir sem sjá um framkvæmdina og loks mætti bæta við fjórða aðilanum, ríkinu, í hlutverki eftirlitsaðilans sem fylgjast á með hæfni heilbrigðisstétta og gæðum þjónustunnar. Hverjir eru svo hagsmunir neytandans hér? í fyrsta lagi að nægjanlegur fjöldi hæfra lækna og sjúkrastofnana sé fyrir hendi. í öðru lagi frelsi til að velja sér lækni og sjúkrastofnanir. í þriðja lagi að fá sannvirði þjónustu fyrir skattana sína. Hagsmunir ríkisins sem tryggingataka eru einfaldir. Sem sé að fá sem mesta þjónustu fyrir sem minnst fé. Þeir stangast á við hagsmuni ríkisins í eftirlitshlutverkinu sem á að sjá um að gæði þjónustunnar séu ávallt í hámarki. Hagsmunir lækna eru margþættir. Góð menntun, góð vinnuaðstaða með greiningar- og lækningamöguleikum í Iandinu, góð laun og frelsi til starfa og ákvarðanatöku með hag sjúklings fyrir brjósti. Öll þessi atriði stuðla að því að hæft fólk fáist í læknastétt og uppfylli þannig fyrsta skilyrði sjúklingsins um nægjanlegan fjölda góðra lækna. Hvort haldið þið að líklegra sé að þessi skilyrði verði uppfyllt undir stjórn lækna sjálfra eða annarra? Heilsugæslulæknar hafa nýverið fengið forsmekkinn af vinnubrögðum Tryggingastofnunar ríkisins í sambandi við námsferðir sínar. Hvorir haldið þið að séu líklegri til þess að gera sér fljótt grein fyrir hvar skórinn kreppir í rannsókna- eða lækningaaðstöðu, læknar eða embættismenn? Hvort er frelsi læknisins til ákvarðanatöku meira á stofnun sem Iæknar stjórna eða þar sem enginn læknir situr í stjórn? Hvað launin snertir þarf ekki að fjölyrða um kjör þeirra stétta sem eingöngu eru ríkisstarfsmenn. Koðnun kennarastéttarinnar er það fordæmi sem bíður okkar, kollegar góðir, verði haldið áfram á sömu braut. Ég leyfi mér í þessu sambandi að vísa til skýrslu launanefndar sjúkrahúslækna í ársskýrslu L.í. 1986. Hvað þá með frelsi sjúklinga til að velja sér lækna eða sjúkrastofnun? í lögum um heilbrigðisþjónustu er smuga fyrir sjúklinga til að leita annarra heilsugæslustöðva en selstöðuvaldið hefur skráð hann hjá. Lög um almannatryggingar má hins vegar túlka þannig að fólki sé óheimilt að leita sér sérfræðiaðstoðar að eigin vali. Þarna er um lagaákvæði að ræða sem óháð eru rekstrarfyrirkomulagi. Mér finnst þó sem flestir sjúklingar séu þeirrar skoðunar að fremur kjósi þeir að leita ákveðins læknis en stofnunar þar sem þeir vita ekki fyrirfram hvern þeir muni hitta. Og þá komum við að síðasta þættinum í þessu spjalli. Sameiginlegu markmiði tryggingataka og tryggingasala. Hvernig nýtist best það fjármagn sem til heilbrigðismála fer? Þarna er um verulegar upphæðir að ræða. Árið 1984 6,5% af vergri þjóðarframleiðslu. Hvernig er arðsemi þessarar þjónustu háttað? Er arðsemismunur á hinum ýmsu rekstrarformum? L.í. hefur tvívegis gert tilraun til að grafast fyrir um þetta. í fyrra skiptið var fenginn til þess sérmenntaður heilbrigðisrekstrarfræðingur. í seinna skiptið nefnd á vegum félagsins. Árangur varð enginn. Ómögulegt reyndist að fá hjá opinberum aðilum efnivið í rekstrar- eða efnahagsreikning. Virtist svo sem enginn hefði yfirsýn yfir þessa hluti. Við verðum þvi að láta okkur nægja að dæma af líkum hvort skila muni betri nýtingu opinber rekstur eða einkarekstur. Finnst ykkur sennilegt að ríkinu gangi betur að reka heilbrigðisstofnanir en til dæmis þörunga- eða heykögglaverksmiðjur? Ég held ekki. Skyldu sjúkrastofnanir reknar af sveitarfélögum vera jafn mikil fyrirmyndarfyrirtæki og bæjarútgerðirnar? Ekki finnst mér ólíklegt að svo sé. í ljósi þeirrar reynslu sem við höfum af opinberum rekstri á íslandi og með mörg viti til varnaðar hjá þjóðum sem búa við þjóðnýtt heilbrigðiskerfi sýnist mér að tímabært sé orðið að snúa við. Láta það fólk sem þekkir eðli

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.