Læknablaðið - 15.03.1987, Side 12
80
LÆKNABLAÐIÐ
Population 43 years and older. Examined and refracted persons.
Examined Refracted
Age Population persons (°7o) persons (Vo)
43-52 years.............................................. 267 224 (83.9) 224 (83.9)
53-62 years.............................................. 262 202 (77.1) 198 (75.6)
63-72 years.............................................. 236 180 (76.3) 176 (74.6)
73-82 years.............................................. 117 102 (87.2) 93 (79.5)
83 years and older....................................... 43 43 (100) 39 (95.1)
Allages 925 751 (81.2%) 730 (78.9%)
Sjónskekkja: Við teljum sjónskekkju fylgja
reglunni, þegar minus öxull er frá 160°-15° og
vera á móti reglunni, þegar mínus öxull er frá
75°-105° og teljast þetta hvorutveggja
rétthyrndar sjónskekkjur. Allt annað skilgreinum
við sem skáhyrndar sjónskekkjur.
Hornhimnan er ljósbrotsflötur, en lóðrétta
sveigja hennar er yfirleitt öllu meiri á yngri árum
en lárétta sveigjan, en þetta veldur sjónskekkju
með reglunni. Á efri árum snýst þetta við þannig
að lárétta sveigjan verður meiri og veldur
sjónskekkju á móti reglunni (7). Síðan er
auðvitað í sumum tilvikum sveigjan mest þar á
milli.
Sjónlag var kannað hjá 730 einstaklingum (1446
augu), en þar af voru 310 með sjónskekkju eða
42,5% einstaklinga, en af 1446 augum 536 eða
37,1% augna (mynd 3). Flestir voru með litla
sjónskekkju eða 0,5D og ef þeim er sleppt, eru
202 augu eftir eða um 14% skoðaðra augna, en
hjá Fledelius (8) er þessi tala 16%. Þessi hópur
þarf á sjónskekkjuleiðréttingu að halda. Af
ofannefndum 536 augum höfðu 357 sjónskekkju
á móti reglunni eða 66.5%, 138 höfðu
sjónskekkju með reglunni eða 25,8% og
skáhyrnda sjónskekkju hafði 41 auga eða 7,7%.
Einnig er ljóst i okkar rannsókn, að því fjær sem
sjónlag er frá þvi að vera eðlilegt, þeim mun
líklegra er, að einnig sé um sjónskekkju að ræða,
en þessu var fyrst lýst af Kronfeld og Devney (9).
Sjónlagsmunur augna sama manns: Sjónlag var
kannað hjá 730 einstaklingum, og reyndust 152
einstaklingar hafa 0,5D eða meiri mismun milli
augna eða 20,8%. Þar af höfðu 90 einstaklingar
>0,75D mismun milli augna eða 12,3% og hefðu
því ekki getað notað stöðluð
stórmarkaðsgleraugu (mynd 4). Algengi
sjónlagsmunar (anisometropia) var svipað í öllum
aldurshópum nema 43-52 ára, þar sem það var
öllu minna og kann að nokkru að skýrast af
viðvarandi sæmilegri sjónstillingarhæfni
augasteinsins í þessum yngsta aldurshópi.
Starfræn sjóndepra: Starfræn sjóndepra
(amblyopia) er skilgreind sem minnkuð
sjónskerpa á öðru eða báðum augum vegna
afrækslu, truflaðs samstarfs augna eða
hvorutveggja, þar sem engin orsök tengd
líffærastarfsemi finnst við rannsókn augans og er
í flestum tilfellum hægt að laga þetta með réttri
meðferð á réttum aldri (10). Þeir sem sáu <6/12
af ofannefndri ástæðu voru taldir hafa starfræna
sjóndepru. Reyndust 23 hinna 730 einstaklinga
hafa starfræna sjóndepru eða 3,2%, en augun
voru 27, þ.e.a.s. um starfrænna sjóndepru á
báðum augum var að ræða hjá fjórum
einstaklingum. Algengasta orsök starfrænnar
sjóndepru var mismunandi sjónlag augna
einstaklingsins eða orsök í rúmlega helmingi
tilfella, en næst algengast var sjónskekkja
skilgreind > 1,5D, svo og sjúklingar með þetta
hvorutveggja - um fimmtungur hvor.
Stöðluð lesgleraugu nýtast ekki a.m.k. 32,1%
einstaklinga vegna sjónlags þeirra (mynd 5).
Fjarlægð milli ljósopa augna fyrir nærsjón var
mæld hjá 555 ofannefndra 730 einstaklinga eða
76% þeirra (mynd 6) og var á bilinu 51-72 mm,
meðaltal 60,7 mm, en hágildi var 60 mm. Við
skoðun staðlaðra lesgleraugna hjá einstaklingum
og í versluninni kom í ljós, að minnstu umgjarðir
voru ^3 mm of víðar fyrir 14,2% þessara
einstaklinga og hefði þetta væntanlega valdið
augnþreytu og höfuðverk.
UMRÆÐA
Það eru ekki ýkja margir áratugir síðan það
tíðkaðist hér á landi að hafa gleraugu til lestrar
liggjandi frammi í kassa í lyfjaverslun eða annarri
verslun. Menn völdu síðan vöruna sjálfir. Síðar
komu sjóntækjafræðingar til aðstoðar á staðnum
og þótti það framför.
Við athugun á stöðluðum lesgleraugum frá
fyrrnefndri stórverslun kom í ljós að styrkleikinn
var + 1.25DS til +3.25DS á 0,25DS bili,
styrkleiki talinn jafn í báðum glerjum í öllum