Læknablaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 26
88
1987; 73: 88-92 LÆKNABLAÐIÐ
Ragnhildur Steinbach, Grétar Ólafsson
SJÚKLINGAR MEÐ SJÁLFKRAFA LOFTBRJÓST
VISTAÐIR Á LANDSPÍTALANUM 1975-1984
INNGANGUR
Með sjálfkrafa loftbrjósti (spontaneous
pneumothorax) er átt við að loft hafi komist
óvænt inn í fleiðruholið. Loftbrjóst getur hins
vegar einnig orðið af völdum áverka eða af
læknavöldum. Sjálfkrafa loftbrjósti má svo
skipta í loftbrjóst í tengslum við þekkta
lungnasjúkdóma og loftbrjóst þar sem ekki er
vitað um neinn lungnasjúkdóm að baki
(idiopathic). Lungnasjúkdómar sem tengst geta
loftbrjósti eru lungnaþan, langvinnt berkjukvef,
lungnanetjuhersli (fibrosis), astma, lungnabólga,
lungnakrabbamein, o.fl. Einnig er vert að geta
loftbrjósts hvítvoðunga, sem er þá oft í tengslum
við öndunaraðstoð hjá fyrirburum með
glæruhimnukvilla (hyaline membrane).
Með langvinnu loftbrjósti er átt við ómeðhöndlað
loftbrjóst, lungað þenst ekki út af sjálfsdáðum,
heldur verður viðvarandi samfall.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Farið var yfir sjúkraskýrslur sjúklinga með
greininguna sjálfkrafa loftbrjóst á
Landspítalanum árin 1975-1984 að báðum árum
meðtöldum. Alls reyndust 126 vera innlagðir með
þessa sjúkdómsgreiningu. Þar af eru tvö börn og
er þá miðað við tólf ára aldur. Einnig eru sex
hvítvoðungar með loftbrjóst. Fjórar
sjúkraskýrslur fundust ekki og voru það allt
skýrslur fullorðinna.
Þegar ekki er getið um annað, er átt við
sjúklingahóp með loftbrjóst í fyrsta skipti, af
óþekktum orsökum.
Þegar börn og nýburar eru undanskilin reynast
vera 118 innlagnir vegna sjálfkrafa loftbrjósts á
þessu tímabili, en sjúklingar eru 112. Hér eru
taldir með fjórir sjúklingar, þar sem
sjúkraskýrslur fundust ekki, en þeir eru ekki með
í þessari rannsókn.
Frá handlækningadeild Landspítalans. Barst 11/07/1986.
Samþykkt 04/11/1986.
Alls reyndust 73 sjúklingar fá sjálfkrafa loftbrjóst
af óþekktum orsökum í fyrsta sinn á tímabilinu.
Tuttugu og einn sjúklingur, sem fékk slikt
loftbrjóst, reyndist með lungnasjúkdóm að baki.
Auk þess lögðust inn tuttugu sjúklingar með
endurtekin loftbrjóst. Tafla I sýnir skiptinguna
milli ára á tímabilinu. Myndin sýnir fjölda tilfella
á hverjum fimm árum og eru tölurnar bornar
saman við tölur Jóns G. Hallgrímssonar (1) frá
árunum 1950-1975. Þar sjást innlagnir á
Landspítalann á þessu tímabili og einnig tölur
Jóns G. Hallgrímssonar yfir allt landið.
Kynskipting sést í töflu II. Meðalaldur þeirra sem
fengu sjálfkrafa loftbrjóst í fyrsta sinn og ekki
fundust orsakir fyrir (idiopathic) var 29,6 ár, en
hjá þeim 21 sem höfðu lungnasjúkdóm var
meðalaldur 53,4 ár. Vngsti sjúklingurinn með
loftbrjóst af óþekktum orsökum reyndist vera 13
ára stúlka, en sá elsti var 62 ára. Yngsti
sjúklingurinn með þekktan lungnasjúkdóm að
baki reyndist 19 ára, en þar var um að ræða
heymæði og lungnanetjuhersli. Sá elsti með
þekktan lungnasjúkdóm var 88 ára.
Tafla I. Sjúklingar með sjálfkrafa loftbrjóst vistaðir á
Landspítalanum á tímabilinu 1975-1984, skipt eftir því
hvað að baki lá og hvort þeirfengu kvillann ífyrsta sinn
eða hvort um endurtekningu var að rceða.
Ár Fengu kvillann í fyrsta sinn Endurkominn kvilli
af óþekktum orsökum lungnasj.d. aö baki af óþekktum orsökum lungnasj.d. aö baki
1975 .... 5 í _ _
1976 .... 6 í - -
1977 .... 3 í í -
1978 .... 6 2 3 -
1979 .... 11 2 2 -
1980 .... 9 4 3 -
1981 .... 9 2 2 í
1982 .... 8 5 1 2
1983 .... 7 1 4 1
1984 ... 9 3 - -
Samtals 73 22 16 4