Læknablaðið - 15.03.1987, Blaðsíða 35
92
LÆKNABLAÐIÐ
Blöðrur á yfirborði lungna eru taldar vera tvenns
konar, meðfæddar og áunnar. Meðfæddar
blöðrur eru taldar mjög sjaldgæfar eins og fram
kom i ritgerð Weaver og von Haam (2), en þeir
fundu einungis tvö tilfelli í sex þúsund
krufningum hjá nýburum og börnum. Orsakirnar
eru aftur á móti þekktar að nokkru leyti hjá eldra
fólki þó margt sé enn óljóst og ósannað. Spjótin
beinast óneitanlega að mengun og þá fyrst og
fremst reykingum. Tíðni loftbrjósts fer vaxandi í
heiminum og styður þessi könnun að svo sé einnig
hérlendis.
í könnun Jóns G. Hallgrímssonar (1) kemur
fram, að loftbrjóst án þekktra orsaka er fimm
sinnum algengara hjá körlum en konum og var
þetta í samræmi við erlendar rannsóknir á þeim
tíma. Hér koma hins vegar fram nokkrar
breytingar á þessu hlutfalli. Konum hefur fjölgað
og er hlutfallið nú um 5: 3 (sjá töflu II). Þetta er
marktækur munur.
Loftbrjóst er sennilega algengara en komið hefur
fram, þar eð kvillinn greinist ekki alltaf vegna
vægra einkenna (3). í þessum efniviði er
meðaltímalengd einkenna fyrir greiningu 4,8
dagar og algengustu einkennin eru verkur í
loftbrjósti, mæði og hósti (tafla VIII).
Loftbrjóst er algengara hægra megin, hvort sem
uppruni er þekktur eða ekki (tafla VII). Munur er
ekki marktækur. Það kemur fram í heimildum að
30% þeirra sem fá loftbrjóst, fá það aftur, en í
okkar efniviði voru það 19,2%. Sýnt hefur verið
fram á að hjá þessum sjúklingahópi kemur
loftbrjóst enn aftur í um það bil helmingi tilvika.
Loftbrjóst getur orðið lífshættulegt ef um
þrýstingsloftbrjóst er að ræða (tension
pneumothorax). í þessum efniviði eru þó einungis
þrjú slík tilfelli, en byrjandi þrýstingsloftbrjóst
sást þó á röntgenmynd ellefu sjúklinga.
Dánartíðni þessa sjúkdóms er lág, yfirleitt talin
vera innan við 0,5%. Dánartíðni er aftur á móti
hæst þegar lungnasjúkdómur er að baki, einkum
lungnaþan (4). í þessum efniviði var dánartíðni
engin, þegar um var að ræða loftbrjóst án þekkts
lungnasjúkdóms.
Meðferð við loftbrjósti er í fyrsta lagi, að fylgjast
með sjúklingi (observation), ef um lítið loftbrjóst
er að ræða, en oftast þarf þó að gera
brjóstholsástungu og leggja inn kera, sem settur
er í samband við sog.
Ef loftleki heldur áfram, þrátt fyrir sogmeðferð,
eða ef um endurtekið loftbrjóst er að ræða,
mælum við yfirleitt með skurðaðgerð, sem fólgin
er í því að fjarlægja blöðrur á yfirborði lungans
og einnig að erta brjósthimnuna, sem klæðir
fleiðruholið, en þetta er gert til að örva
samvaxtamyndun milli yfirborðs lungans og
brjóstveggjarins, en samvextirnir koma í veg fyrir
endurtekningu sjúkdómsins.
SUMMARY
A retrospective study was done on spontaneous
pneumothorax in Landspitalinn during 1975-1984
(children and newborns are not included). There were 73
patients with idiopathic spontaneous pneumothorax for
the first time. 21 patients had an underlying lung disease
and 20 patients had a history of an earlier attack.
It is known from other studies that the frequency of
spontaneous pneumothorax has been increasing and
according to this study it still continues to do so.
Other studies have revealed a male: female ratio of 5: 1,
but in this study it is 5: 3 and this is statistically
significant.
HEIMILDIR
1. Jón G. Hallgrímsson. Spontaneous pneumothorax
in Iceland, with special reference to idiopathic type.
Scan Thorac Cardiovasc Surg 1978; (Suppl 21, 33).
2. Weaver RG, von Haam E. Cystic disease of the
lung. Surgery 1938; 4: 917.
3. Jorstad Sö, Nygaard IH. Spontan peumothorax.
Tidsskr Nor Lægeforen 1982; 29: 1497.
4. Dines DE, Clagett OT, Payne WS. Spontaneous
pneumothorax in emphysema. Mayo Clin Proc
1970; 45: 483.
Jafnvægi
»Vid neurosbehandling leder dessa nye typer av medicinering inte
endast till symtomreduktion och minskad oro, utan man ser áven hurdenna
anxiolytiska effekt medför att mánga patienter tar itu med sin
livsproblematik.«1)
1) Bengt-Goran Fasth.: Psychological reports, University of Gothenburg, Sweden. 1980, no. 2.
Lexotan
Kviðastillandi lyf með hagstætt jafnvægi milli kvíðastillandi verkunar og
sljóvgunar2)
2) Harris. P. A.: Bromazepam, a new anxiolytic: a comparative study with diazepam in general practice.
Royal Coll Gen Pract 34, 509-12 (1984).
Lexotan (bromazepam)
Lexotan (Roche, 1711) R.E. Töflur: N 05 B A 08. Hver tafla inniheldur:
Brómazepamum INN 1,5 mg, 3 mg eða 6 mg. Eiginleikar: Brómazepam er
bensódiazepínsamband meö svipaöar verkanir og díazepam og önnur
skyld lyf. Brómazepam frásogast hægar en díazepam og nær blóðþóttni
hámarki eftir um 2.klst. Lyfiö skilst að mestu út í þvaai sem umbrotsefni.
Helmingunartími í blóöi er um 12 klst. Ábendingar: <5tti, kvíöi, óróleiki og
svefntruflanir við neurósur og geðdeyfð Frábendingar: Myasthenia gra-
vis. Meðganga og brjóstagjöf. Aukaverkanir: Notkun lyfsins hefur f för
með sór ávanahættu. Þreytu og syfju. Slappleiki, ósamhæfðar hreyfingar
(ataxia), svimi, ógleði, útbrot, minnkuð kyngeta, höfuðverkur og aukin
matariyst. óvenjuleg viðbrögð eins og æsingur og vellíðan koma fyrir.
Sjaldgæfar aukaverkanir eru sjóntruflanir, lækkaður blóðþrýstingur, þvög-
lumælgi, minnistap, skjálfti, laust þvag og haagðatregða. Varuð: Vegna
ávanahættu á einungis að nota lyfið stuttan tima í senn. Sérstakrar
varúðar þarf að gæta hjá sjúklingum sem misnota áfengi eða lyf. Einnig
þarf að gæta varúðar hjá öldruöum, sjúklingum með heilaskemmdir eða
mikið veikum sjúklingum sem stundum þola lylið illa. Eftir langvarandi
notkun geta komið fram fráhvarfseinkenni, t.d. krampar. - Vara ber
sjúklinga við stjórnun vólknúinna Ökutækja samtímls notkun lyfsins. Milll-
verkanlr: Lyfið eykur áhrif áfengis, svefnlyfja og annarra róandi lyfja.
Skammtastærðlr handa fullorðnum: Venjulegir skammtar eru 1,5-3 mg
þrisvar sinnum á dag. Stundum getur þurft að auka þessa skammta i 6-12
mg tvisvar eða þrisvar sinnum á dag Skammtastærðir handa börnum:
Lyfið er ekki ætlað börnum Pakkningar: Töflur 1,5 mg: 30 stk. (þynnu-
pakkað): 100 stk./Töflur 3 mg: 30 stk. (þynnupakkað): 50 stk.: 100 stk./
Töflur 6 mg: 20 stk. (þynnupakkað): 50 stk.: 100 stk./
ROCHE A;S
Industriholmen 59
2650 Hvidovre
Tlf. 01 78 7211
Stefan Thorarensen Ltd.
Siðumóli32,108 Reykiavik