Læknablaðið - 15.03.1987, Page 44
100
LÆKNABLAÐIÐ
svæfingadeild og gjörgæsludeild ásamt fleiri
deildum sem gera kleift að sinna margveikum og
mikið veikum sjúklingum.
FSA ER AÐALVARASJÚKRAHÚS
LANDSINS
Starfsemi FSA eykst stöðugt þótt erfitt sé að
finna staðal til að vega hvernig meðalþyngd
verkefna hefur vaxið á undanförnum árum.
Oft hefur skort skilning hjá ráðamönnum, meira
að segja á heimaslóðum. Fjórðungssjúkrahúsið
gæti verið betur sett hefðu forystumenn
sveitarfélaganna tekið ákveðnar á málum en raun
varð.
Nefnt var að menn virtust ekki ætíð hafa gert sér
grein fyrir því, að til þess að hlúa að sjúkrahúsinu
þá verður til dæmis að hlúa að samgöngum til og
frá Akureyri. Menn skildu ekki mikilvægi
Flugfélags Norðurlands á sínum tíma fyrir
sjúkrahúsið, ekki heldur hvers vegna læknar voru
að berjast fyrir því að Tryggvi Helgason fengi
þær flugvélar sem hann þurfti. Athugunarleysi af
þessu tagi hefur stundum verið FSA til trafala.
Sjúkrahús þurfa að vera vaxandi í víðustu
merkingu orðsins til þess að eiga tilvistarrétt, en
sjúkrahús eiga sér einnig ákjósanlega stærð. Þau
geta orðið of stór og úr sér vaxin.
Gauti Arnþórsson vitnaði í bók eftir breskan
taugalækni, Oliver Sacks að nafni, en bókin heitir
»A leg to stand on«. Læknir þessi slasaðist í
fjallgöngu í Noregi og var fluttur til Bretlands og
skorinn þar upp.
Hann segir: »1 suddenly felt what I have often felt
intensely before, but never thought to apply to my
own time in hospital: that one needs open-air
hospitals, with gardens, set in country and woods
- like some of the »Little Sisters« Homes I work
in in rural New York; a hospital like a home, not
a fortress or »institution«; a hospital like a home
- and perhaps like a village.«
Rósemislegt smábæjarandrúmsloft á Akureyri
getur sjálfsagt svarað til lýsingar dr. Sacks á
heppilegu umhverfi sjúkrahúss. Þótt FSA sé stórt
sjúkrahús og margbrotið á íslenskan mælikvarða
verður það ætíð lítið og »heimilislegt» mælt á
erlenda stiku.
Stundum er sagt að ísland sé svo lítið og þjóðin
svo fámenn, að skynsamlegt sé að safna allri
háþróaðri þjónustu á einn stað. Þá er látið í veðri
vaka að suðvesturhorn landsins sé sjálfkjörin
miðstöð allrar þjónustu við landsmenn.
Þá gleymist að það er ekki nema rúmur helmingur
landsmanna sem býr þar. Þar við bætist að þar
um slóðir má kannski helst búast við stórslysum í
öllum merkingum orðsins, vá sem gæti lamað alla
starfsemi, allt frá eldgosum til hernaðaraðgerða.
Minnst var á ræðu Jóhanns Sæmundssonar,
prófessors í lyflæknisfræði, er hann flutti eitt sinn
á hátíðisdegi stúdenta 1. desember. Hann lagði þá
til að Keflavíkurstöðin yrði flutt þaðan sem hún
er nú og henni komið fyrir á Kili, vegna þess að
kjarnorkuárás eða önnur meiriháttar
hernaðarárás á Keflavíkurflugstöðina myndi að
öllum líkindum leggja mesta þéttbýli landsins í
auðn.
Vegna þessa sagði Gauti skipta miklu að það yrði
lögfest að Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri sé
varasjúkrahús landsins, ekki bara Reykjavíkur
heldur varasjúkrahús islands.
Menn verða að gera sér grein fyrir, að ekki er
öðrum stöðum til að dreifa. Varasjúkrahús nýtist
ekki nema þar sé starfsemi í fullum gangi og
Eyjafjarðarsvæðið er eina þéttbýlið á landinu
utan Reykjavíkur, sem er það mannmargt að það
standi undir deildaskiptu, vel búnu sjúkrahúsi,
sem hægt er að leita til hvenær sem vá er fyrir
dyrum. Að öðrum kosti verður varasjúkrahús
ámóta tiltækilegt og ryðguðu og rykföllnu
lækningatækin og teppin sem ku vera geymd í
jarðhýsum einhvers staðar í eða við Reykjavík.
FSA FÆR EKKI AÐ RÁÐA NÆGILEGA
MARGT STARFSFÓLK
Stöðugt vantar FSA fé. Á síðasta ári var hallinn
27 milljónir króna og verulegur halli er
Sigmundur Sigfússon yfirlœknir á geðdeild, Sigurður K.
Pélursson yfirlœknir á svœfinga- og gjörgœsludeild og
Gauti Arnþórsson yfirlceknir á handlcekningadeild