Læknablaðið - 15.03.1987, Qupperneq 49
LÆKNABLAÐIÐ
105
og nýta sem best það sem í verður lagt bæði af
læknislist, hjúkrun og húsbúnaði.
Innlagnir veikra gamalmenna hafa aukist frá því
sem var og þótt reynt sé að gera eins vel og hægt
er, reynist iðulega ómögulegt að útskrifa gamla
fólkið úr bráðarúmum lyflækningadeildar.
Lyflækningadeildin á FSA hefur um langt árabil
verið mjög opin deild, en hún á orðið erfitt með
að sinna því hlutverki vegna þess að plássin
teppast. Vegna þessa er mjög brýnt fyrir
lyflækningar, að öldrunarlækningar verði efldar
og hjúkrunarrúmum fjölgað. Þá gæti
lyflækningadeildin notið sín betur en nú er.
Læknisfræðin þróast í þá átt að minni þörf er
fyrir legurými heldur en áður var. Á hinn bóginn
verður mannfjöldinn sem læknar þjóna bæði
eldri og veikari og sérstaklega margveikari. Það
Ieiðir til þess að hver sjúklingur þarfnast meira
sjúkrarýmis og meiri þörf verður fyrir
endurhæfingaraðstöðu.
Halldór Baldursson kvaðst telja að á Akureyri
ætti uppbygging endurhæfingar að vera
forgangsverkefni. Örugglega væri hægt að bæta
ástandið með því að setja upp skipulagða
endurhæfingardeild með starfandi læknum og
fulikominni aðstöðu til öflugrar sjúkraþjálfunar.
Fleiri tóku undir að vantað hefði sérhæfða,
þróaða endurhæfingu á FSA.
Talsverður áhugi hefur verið fyrir því að FSA taki
við rekstri Kristnesspítala og tryggi að Kristnes
verði rekið sem öldrunarlækninga- og
endurhæfingarsjúkrahús í tengslum við FSA.
TENGSL FSA VIÐ HEILSUGÆSLUSTÖÐINA
Á AKUREYRI
Gauti gat þess að stefnan hérlendis virtist hin
sama og víðar á Vesturlöndum, að draga frá
sjúkrahúsunum og auka starfsemina utan þeirra.
Yfirlýst markmið væri að koma í veg fyrir
sjúkdóma í stað þess að lækna hina sjúku. Menn
hafa gefið sér að þetta sé ódýrara en það er
ósannað mál og ósennilegt að svo sé á núverandi
þekkingarstigi læknisfræðinnar.
Vandséð er með hvaða rétti frískir menn neita
þeim um lækningu á sjúkrahúsi, sem hennar
þurfa. Á hinn bóginn er markmið
læknisfræðinnar að skilja svo vel eðli sjúkdóma
og orsakir, að unnt verði að koma í veg fyrir þá
sem eiga rætur að rekja til umhverfis og
lifnaðarhátta, en uppgötva aðra og lækna áður en
þeir ná að valda þjáningum og ótímabæru
örkumli eða dauða.
Til þess að tryggja samfellu í meðferð og
samvinnu lækna utan sjúkrahúss og innan er
spurningin ekki bara hvað hægt sé að gera inni á
sjúkrahúsi og hvað utan. Spurningin er miklu
fremur, hvort hægt sé að koma í veg fyrir að
læknar fari sér og sjúklingum sínum að voða með
því að fara opinberlega í hár saman um það
hverju skuli sinnt á heilsugæslustöðvum og hverju
á sjúkrahúsum.
Það sem best reynist til að koma í veg fyrir deilur
og illindi, er að fólk þekkist. Á Akureyri hefur
hjúkrunarfólk reynslu af þvi að koma inn á
sjúkrahúsið og hlaupa þar undir bagga. í
Sovétríkjunum mun vera til kerfi svipað þessu
fyrir lækna. Gauti taldi gott, ef unnt væri að
koma svipuðu á hjá læknum á íslandi. Það væri
vænlegt til þess að koma í veg fyrir að menn
berjist hver úr sínum kastala þar til allir liggja
dauðir. Núna koma heilsugæslulæknar á
stofugang síðdegis á lyflækningadeild FSA og
spurning er hvort þetta sé framkvæmanlegt og
nægilegur áhugi sé fyrir hendi einnig á öðrum
deildum.
Halldór Baldursson ítrekaði að það væri
grundvallaratriði að læknar tali saman og það
hafa þeir gert á Akureyri. Að vísu lentu menn í
smá hafvillum fyrir tveimur árum, en reynt var að
rétta stefnuna með fundum um samskipti lækna,
sem haldnir voru á vegum Læknafélags
Akureyrar. Haldið var málþing á vegum félagsins
og fengnir fyrirlesarar. Umræður urðu líflegar og
leiddu til betra ástands á eftir.
Læknar ræðast meira við en áður og hafa
töluverða samvinnu. Einnig er þess vendilega
gætt að svara alltaf fyrirspurnum og tilvísunum
og iðulega senda sjúkrahúslæknar skriflegar
upplýsingar um sjúklinga til viðkomandi
heimilislækna, jafnvel þótt sjúklingar hafi leitað
til sjúkrahúslækna án tilvísunar.
Tilvísanir hafa líka batnað, þannig að nú eru
almennt meiri upplýsingar í þeim. Á Akureyri
ríkir samhugur á milli heimilislækna og
sérfræðinga og er nauðsynlegt að vernda þetta
ástand.
Heilsugæslulæknar eru ætið velkomnir á
Fjórðungssjúkrahúsið. Þeir eru velkomnir til
samræðna og samráðs á skrifstofur
sjúkrahúslækna og margir koma, einkanlega þó
læknar sem starfa í nágrannabyggðum
Akureyrar. Einnig eru þeir velkomnir á
fræðslufundi sem haldnir eru á sjúkrahúsinu.