Læknablaðið - 15.03.1987, Page 50
106
LÆKNABLAÐIÐ
Nú er kennt að mikið af sjúkdómum í
samfélaginu eigi rætur að rekja til vandræða i
umhverfi manna bæði andlegu og félagslegu.
Þessu umhverfi er unnt að breyta, hæfa það að
manninum, koma i veg fyrir að menn veikist og
einnig að ná betri árangri í lækningum þeirra sem
nú eru veikir með því að snúa sér einnig að
umhverfisþættinum. En það verður ekki gert
nema með því að heimilislæknar séu
heimilislæknar og þekki heimilin og starfi með
sérfræðingunum en læknar starfi ekki hver fyrir
sig, einangraðir og án samvinnu.
Sérfræðingar og deildir sjúkrahússins eiga í raun
að vera verkfæri heimilislæknisins. Hann getur
t.d. ómögulega verið jafn góður í kvenlækningum
og kvensjúkdómalæknir og það hlýtur að vera
betra fyrir konu, sem þarfnast slíkrar þjónustu,
að fá hana veitta af kvensjúkdómalækni heldur
en lækni sem gerir slíkt miklu sjaldnar og er
kannski ekkert sérstaklega hneigður fyrir þann
hluta lækningastarfsins.
Það að nýta sjúkrahúsið og sérfræðinga þess sem
verkfæri heimilislækna til að koma í veg fyrir
sjúkóma eða lækna þá á byrjunarstigi tekst ekki
nema komið verði i veg fyrir að læknar verði sem
tveir andstæðir herir, sem berjast um völd,
peninga og álit.
AFMARKAÐIR SAMSTARFSÞÆTTIR
Mæðravernd: Bjarni Rafnar yfirlæknir
kvensjúkdóma- og fæðingardeildar sagði að
sérfræðingar í bænum og læknar
Heilsugæslustöðvarinnar hafi hvorir tveggja lýst
því yfir að þeir vilja hafa samvinnu við
sjúkrahúslækna um mæðraeftirlitið og það er að
mörgu leyti æskilegt. Rétt er þó að nefna að
konurnar hafa verið óánægðar með þetta og hafa
fremur kosið að eftirlitið sé alfarið í höndum
sjúkrahúslækna.
Um er að ræða tiltölulega stuttan tima í ævi
konunnar og varla ástæða til að dreifa eftirlitinu
á margar hendur. Þetta er sérhæft starf og þess
vegna eðlilegt að flytja það inn á
fæðingardeildina og þar með sinntu
fæðingarlæknar þessari þjónustu.
Einnig væri eðlilegt að krabbameinsskoðun kæmi
undir einn hatt og sjúkrahúsið sæi um þá
þjónustu, þótt hún þyrfti ekki að vera staðsett
innan veggja þess.
Ungbarnaeftirlit: Magnús Stefánsson
sérfræðingur í barnalækningum kvaðst telja að
barnalæknar ættu að annast ungbarnaeftirlit,
þannig að það væri undir umsjá sérfræðinga í
greininni en ekki hluti af frumheilsugæslunni.
Samstarf við heimilislækna er æskilegt á þessu
sviði þótt ungbarna- og smábarnaeftirlit og
jafnvel skólaeftirlit væri undir umsjá
barnalækna.
Vísir að svona samstarfi er á Akureyri.
Barnalæknar önnuðust það frá upphafi og
framtil 1980, en urðu þá að hætta vegna
mannfæðar. Nú hafa þeir komist inn í þetta aftur
með góðu samstarfi við heimilislækna.
Bráðaþjónusta við börn á Akureyri er tvískipt.
Annars vegar er hún framkvæmd á
Heilsugæslustöðinni og hins vegar á barnadeild
sjúkrahússins.
Að undanförnu hefur aukist að bráðaþjónustan
fari fram á barnadeildinni eða á hennar vegum á
stofu sem læknar barnadeildar reka úti í bæ þar
sem barnalæknir er til viðtals alla virka daga.
Skýringin er trúlega sú að á síðasta ári hættu tveir
af barnalæknum sjúkrahússins starfi sem
heimilislæknar. Síðan hefur fólk leitað í mjög
vaxandi mæli á stofu til barnalæknanna.
Við barnadeildina hefur verið unnt að sinna
endurhæfingu og þar hafa sjúkraþjálfarar
sjúkrahússins getað fullnægt
endurhæfingarþörfinni í nánast flestum tilvikum.
Börn eru fljót að endurhæfast eftir slys, hins
vegar hefur hæfingu á andlegu og félagslegu sviði
lítið verið sinnt.
Gott samstarf hefur verið á milli sjúkrahússins og
sálfræðideildar skóla og eins
Félagsmálastofnunar til þess að hjálpa börnum og
unglingum sem hafa þarfnast aðstoðar til þess að
takast á við lífið þegar þau fá aldur til. Þetta er
hluti af hæfingu sem er fyrir hendi á Akureyri og
hægt er að sinna.
STUÐNINGUR BÆJARBÚA VIÐ
FJÓRÐUN GSSJÚKRAHÚ SIÐ
Læknar eru sammála um að
Fjórðungssjúkrahúsið sé óskabarn bæjarbúa.
Þetta kemur ekki síst fram í gjöfum til
sjúkrahússins. Barnadeildin sem stöðugt hefur
eflst frá 1961 hefur algerlega verið upp á
kvenhöndina komin um tækjakost, eins og áður
var nefnt. Tæki sem ráðuneytið hefur kostað til
barnadeildar Fjórðungssjúkrahússins eru teljandi
á fingrum annarrar handar.
Rétt er að taka fram að fleiri áhugamannafélög en
kvenfélögin á Akureyri hafa gefið sjúkrahúsinu