Læknablaðið - 15.03.1987, Síða 51
LÆKNABLAÐIÐ
107
tæki í stórum stíl, sérstaklega má þar nefna
Lions, Kiwanis og Sonta. Mest hefur verið gefið
til kvennadeildar og barnadeildar. Fyrstu
speglunartækin voru gefin og síðan bætt stöðugt
við þau. í heild má segja að Iangmestur hluti
tækja sé keyptur fyrir framlög almennings í
bænum og nágrannabyggðum.
Á undanförnum árum hefur verið mjög erfitt að
fá bæinn til að hlaupa undir bagga eða leggja sig
fram um að veita sjúkrahúsinu brautargengi.
Bæjarstjórn hefur haft tilhneigingu til að vísa á
ríkið sem stendur straum af mestum kostnaði við
sjúkrahúsið.
ÓMAKLEG EINOKUN REYKJAVÍKUR Á
FRÆÐSLUSTARFI
Skipulag hjúkrunarkennslu hefur verið til
umræðu að indanförnu og snerist talið inn á
þær brautir.
Halldór Baldursson sagði hart hve aðstaðan á
FSA er illa nýtt til fræðslu læknanema og
hjúkrunarnema. Sjúkrahúsið væri gott til að læra
klíníska læknisfræði enda beri aðstoðarlæknar
það sem starfað hafa á FSA.
Gauti minnti á að yfirleitt er málum þannig
háttað, að sá sem er ríkari og sterkari setur lögin
og ætíð sér í hag.
Eftir að ójafnvægið milli landshluta fór að
ágerast á íslandi þá varð það smám saman
(ó)siður að pamfílar í Reykjavík settu reglur um
alla hluti eftir sínum hagsmunum og geðþótta og
breyttu þeim þegar henta þótti. Þannig voru
læknanemar teknir af FSA snemma á síðasta
áratug, án þess að um það væri talað við nokkurn
mann fyrir norðan. Nú hefur þessu verið kippt í
lag og FSA hefur fengið læknanema á námskeið
aftur og er vonast til að það haldist framvegis.
Þegar eitthvað hefur verið tekið upp í Reykjavík
sem ekki hefur verið til annars staðar á landinu,
þá hefur það verið gert að skilyrði fyrir
viðurkenningu í viðkomandi fræðigrein. Það
hefði eins mátt setja sem skilyrði fyrir
viðurkenningu í hjartaskurðlækningum, að menn
hefðu hlotið þjálfun sína á Brompton.
Þótt margt sé til í Reykjavík, þá er hún raunar of
lítil fyrir læknakennslu og kannski fyrir alla
kennslu. Lækna- og hjúkrunarkennsla í landinu
má ekki við því að tiltækt kennsluefni sé ekki
nýtt. Kennsla í þessum greinum fer að miklu leyti
fram við sjúkrabeðinn. Þjóðin má ekki við því að
helmingur sjúklinga sé ekki tiltækur fyrir þá sem
eru að mennta sig á þessu sviði.
Þeir sem hlotið hafa kennslu á FSA bera
sjúkrahúsinu góða sögu, það sést líka á því að
þeir vísa oft sjúklingum frá fjarlægum
landshlutum til sjúkrahússins.
Sjúkrahúsið væri ekki það sem það er nema vegna
þess að það hefur lengst af haft stúdenta og hefur
alltaf haft námskandídata. Það er sú kynning
meðal verðandi lækna og unglækna sem tryggt
hefur sjúkrahúsinu framhaldslíf, annars væri það
ekki sérfræðisjúkrahús í þeim mæli sem það er,
heldur héraðssjúkrahús eins og fyrir 30 árum.
HJÚKRUNARKENNSLA Á AKUREYRI
VERÐUR HEILLADRJÚG
Hjúkrunarfræðingaskortur veldur miklum
vandræðum í heilbrigðisþjónustunni og mönnum
ætti að vera ljóst að námsbraut í hjúkrun við
Háskóla íslands mun ekki útskrifa nægilega
marga hjúkrunarfræðinga í fyrirsjáanlegri
framtíð. Hjúkrunarfræðingar sem útskrifast nú
og í náinni framtíð munu ekki vera nema um
helmingur þess sem þarf til að halda í horfinu,
hvað þá að fylla í þær 250 stöður sem telst að
vanti á öll stóru sjúkrahúsin í landinu.
Allt mögulegt er fundið upp sem rök gegn því, að
háskólakennsla verði tekin upp á Akureyri. Sagt
er að Háskóla íslands vanti peninga. Háskóli sem
ekki vantar peninga er dauðvona, vegna þess að
þar vantar þá hugmyndir og framtíðaráform.
Vonandi kemst Háskóli íslands aldrei á það stig
að hann vanti ekki peninga. Önnur röksemd er,
að það sé eitt og annað í Reykjavik sem ekki er til
úti á landi. Það er líka ýmislegt í London sem ekki
er í Reykjavík.
Gauti kvað það álit sitt að hjúkrunarbrautin í
Háskóla íslands verði aldrei mjög áberandi deild í
þeim skóla og aðdráttarafl hennar takmarkað.
Hjúkrunarbrautin á Akureyri verður hins vegar
líklegast eftirsóknarverðasta deild
háskólaútibúsins á Akureyri. Þess vegna mun
vegur hjúkrunarkennslunnar aukast við það að
sett verði upp háskólaútibú á Akureyri.
Einnig þarf að hafa í huga, að meðal þeirra
ungmenna sem hafa sérstaka hneigð og hæfileika
til þess að stunda líknarstörf eru tiltölulega
margir sem ekki hafa mjög hvassa olnboga.
Ungmenni sem ekki eru tilbúin til þess að flytjast
búferlum hætta kannski við háskólanám að loknu
stúdentsprófi á Akureyri, Sauðárkróki eða
svæðunum í kring vegna þess að þau þurfa að
fara suður til þess að stunda nám sitt. Ekki má
heldur gleyma þeim sem hafa einhverja félagslega