Læknablaðið - 15.05.1987, Side 9
LÆKNABLAÐIÐ
149
Tafla I. Fjöldi innlagðra sjúklinga með andlitsbeinbrot árin 1970-1979.
Beinbrot 1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 1979 Alls %
Kjálki . n 16 15 10 27 36 20 18 25 21 199 (30)
Kjálki og
miðandlit . . 3 4 2 3 3 4 6 3 4 7 39 (6)
Miðandlit.. . 41 23 34 40 52 35 54 53 42 50 425 (64)
Samtals 55 43 51 53 '82 75 80 74 71 78 663 (100)
Tafla II. Nefbrot: Orsaka- og kyndreifmg.
Orsakir
Slagsmál/
Umferð líkamsárásir Fall Vinna íþróttir Annað Alls
N m N (%) Nx (V.) N m N (%) N (%) N m
Karlar .. 35 24% 55 38% 14 10% 12 8% 15 10% 14 10% 145 100%
Konur .. 28 53% 10 19% 8 15% - - 2 4% 5 9% 53 100%
Samtals 63 65 22 12 17 19 198
þegar litið er til þeirra slysa, þar sem brot verður
samtímis á kinnbeinum og öðrum beinum
miðandlits. Einstæð kinnbeinsbrot af völdum
falls eru áberandi tíð eða 17% og var í nálægt
helmingi þeirra tilvika um konur að ræða.
Umferðarslys, líkamsárásir og fallslys valda
flestum kinnbeinsbrotum hjá konum og er tíðni
þessara orsakaþátta jöfn.
Hjá körlum voru slagsmál/líkamsárásir
langalgengasta orsök kinnbeinsbrota í öllum
aldursflokkum frá 16 ára aldri og allt að
sextugsaldri. Umferðarslys, íþróttaslys, vinnuslys
og fall af ýmsu tagi ollu svipuðum fjölda slysa
hjá körlum, milli 13-16% hver orsakaþáttur
(tafla III).
Þegar um fjölbrot í miðandliti var að ræða,
kinnbeinsbrot svo og annað eða önnur beinbrot,
voru umferðarslys og líkamsárásir tíðastir og
jafnvirkir orsakaþættir.
Tegundir kinnbeinsbrota og umfang þeirra. Af
samtals 297 sjúklingum höfðu 15 (5%) hlotið
kinnbeinsbrot báðum megin i andliti. í 37
tilvikum (13%) var um að ræða brot eingöngu á
kinnbeinsboganum, arcus zygomaticus. í 10
tilvikum (3%) voru greind augntóttarhöggbrot
eingöngu (blow out fracture). Langflestir, eða 235
einstaklingar (79%), höfðu hlotið kinnbeins- og
kinnkjálkabrotflækju (zygomaticomaxillary
complex fracture), en enska heitið hefur gjarnan
verið notað til þess að lýsa því ástandi, þar sem í
raun bæði kinnbein og hluti efri kjálka brotna
samtímis og greina má brotlínur á svæði ennis- og
kinnarsaums (sutura frontozygomatica), á
neðanaugntóttarröng (margo infraorbitalis) oft í
Fjöldi sjúklinga
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
Fjöldi sjúklinga
50
40
30
20
10
0
Kinnbeinsbrot
X' \
/ \ /
/ \ /’ "\ /
/ '■/ Nefbrot \ /
"---''' Kinnkjálkabrot
<5 11-15 21-25 31-40 51-60 71 +
6-10 16-20 26-30 41 -5C 61-70 Aldur
1970 71 72 73 74 75 76 77 78 79
Ár
Mynd 2. Hlutfallsleg aldursdreifing 464 sjúklinga með Mynd 3. Dreifing brota á miðandlitsbeinum eftir árum
brot á miðandlitsbeinum árin 1970-1979. 1970-1979.