Læknablaðið - 15.05.1987, Qupperneq 12
152
LÆKNABLAÐIÐ
andlitsbeinaáverka á árunum 1971-1975 (2).
Á þessu fimm ára tímabili voru andlitsbeinbrot
greind hjá 1027 einstaklingum. Séu
niðurstöðurnar bornar saman við þær sem við
höfum um innlagða sjúklinga, kemur í ljós, að
aðeins þriðjungur sjúklinga er innlagður til
aðgerða. Þannig eru nálægt 70 af hundraði
andlitsbeinbrotinna meðhöndlaður á
slysavarðstofu, göngudeildum eða stofum lækna.
Samkvæmt heimildum frá Svíþjóð og Finnlandi
eru um 45% andlitsbeinbrotinna í þeim löndum
innlagðir til aðgerða. í Noregi eru 57% innlagðir
árið 1970 en 67% árið 1980 (3, 4, 12).
Ef miðað er við innlagða sjúklinga eingöngu, þá
er tíðni andlitsbeinbrota hér á landi 30 sjúklingar
á 100.000 íbúa árlega, en t.d. 27 í Finnlandi á
árunum 1970-1980. Sé hinsvegar talinn með sá
fjöldi sjúklinga, sem hlýtur beinbrot í andliti, en
þarfnast ekki innlagnar, þá er heildartíðni hér á
landi u.þ.b. 100 sjúklingar á 100.000 íbúa árlega.
Um það bil þriðjungur brota í miðandliti orsakast
af slagsmálum og barsmíðum. Þannig eru þessar
orsakir valdar að 35% brota á kinnbeinum og
33% nefbeinsbrota. Hins vegar eru einungis tæp
8% brota á efri kjálka orðin til vegna barsmíða,
en flest brot efri kjálkans (Le Fort I, II, III og
framhluti kinnkjálka) voru af völdum
umferðarslysa (47%) og vinnuslysa (14%), en
jöfn dreifing var milli annarra orsakaþátta.
í Finnlandi er svipuð tíðni barsmíðaslysa á
miðandlitsbeinum, en þar í landi valda
umferðarslys hins vegar um helmingi allra
miðandlitsbeinbrota, en hér á landi eru 27%
þessara brota orsökuð í umferðarslysum.
í sambærilegri rannsókn frá Lundi í Svíþjóð
kemur fram, að 35% sjúklingahóps þeirra slasast
í umferð en 27% vegna barsmíða (1). Um
andlitsbeinbrot vegna umferðarslysa hér á landi á
árunum 1970-1980 hefur verið fjallað áður (8).
Fallslys virðast hér all tíð (15%) og það sem vekur
ef til vill meiri athygli er, að megin þorri þeirra
sem brotna í téðum slysum, tilheyrir ekki eldri
hópum sjúklinga heldur aldurshópnum 31-40 ára.
Hjá konum valda fallslys liðlega 25% allra brota
í andliti, næst á eftir barsmíðum (33%).
Yfirgnæfandi meiri hluti brota af völdum
fallslysa hjá konum sem körlum voru
kinnbeinsbrot.
Þegar borin er saman kyndreifing
miðandlitsbeinbrotinna hér á landi og í nokkrum
öðrum löndum Vestur-Evrópu, kemur í ljós, að
hlutfall kvenna hér er hærra (1:2,7), en í Hollandi
(1:2,9) í Finnlandi (1:3,3), í Bretlandi (1:4,3) og í
Vestur-Þýskalandi (1:7,3) (5, 9, 10, 11). Sú
heildarmynd, sem fæst þegar horft er til hlutfalls
íslenskra kvenna af öllum andlitsbeinbrotnum,
þar á meðal þeirra, sem brotna á neðri kjálka, er
því all dökk (1:2,4), 29,4%, en eins og í fyrri grein
kom fram, voru konur 33% (1:2) af innlögðum
sjúklingum með brot á neðri kjálka árin
1970-1979 (7).
Aldursdreifingu þeirra, sem brotna í miðandliti er
þannig farið, að hlutfallslega eru flestir
sjúklinganna á aldrinum 16-20 ára, en marktækur
munur er ekki á tíðni slysa í þessum hópi og
hinum næstfjölmennasta, sem er aldurshópurinn
21-25 ára. Almennt dreifast miðandlitsbrot meira
á eldri aldurshópa en brot á neðri kjálka. í ljós
hefur komið við skoðanir á kjálkabrotum, að
aldurshópurinn 16-20 ára sker sig mjög úr og er
marktækt fjölmennari en aðrir og miðað við
rannsóknir frá öðrum löndum hvergi fjölmennari
(7).
Varðandi miðandlitsbeinbrot og i samanburði við
aðrar þjóðir, eru allir yngstu aldurshóparnir að
tvítugsaldri, einnig fjölmennari hér en annars
staðar, þó að munurinn sé minni en við brot á
neðri kjálka.
Af okkar sjúklingum með miðandlitsbeinbrot eru
til dæmis 25,5% tvítugir eða yngri, en í
sambærilegri rannsókn hjá Finnum eru 15% í
þeim aldurshópi (5).
Þegar litið er yfir efniviðinn allan, orsakir
beinbrota og aldur sjúklinga, kemur í ljós, að það
er viss tilhneiging til brota ákveðinna andlitsbeina
á tilteknu aldursskeiði við ákveðna orsök. Þannig
eru umferðarslys og fallslys helstu orsakir brota
hjá börnum að sextán ára aldri og beinin sem
brotna helst eru kjálki og nefbein. Frá sextán ára
til tvítugs taka slagsmál við sem helsti
orsakavaldur, og reyndar eru slagsmál og
barsmíðar tíðasta orsök andlitsbeinbrota áfram
til fimmtugsaldurs. Það er hins vegar marktækur
munur á því, hvaða bein brotna helst við slagsmál
á 16-20 ára aldri og í aldurshópum eftir
tvítugsaldur við. Kemur í ljós, að eftir slagsmál
brotnar kjálkinn frekar hjá yngri hópnum, en
kinnbeinsbrot eru tíðari eftir tvítugsaldur.
Rétt er að geta þess, að auk slagsmála eru
umferðarslys umtalsverður orsakavaldur
andlitsbeinbrota hjá fólki á aldrinum 16-20 ára.
Hefur meðal annars komið í ljós, að
aldursdreifing andlitsbeinbrotinna í
umferðarslysum er hin sama og aldursdreifing