Læknablaðið - 15.05.1987, Qupperneq 24
162
LÆKNABLAÐIÐ
aftursýn hóprannsókn (retrospective cohort
study). Fylgst er með dánartíðni í ákveðnum hópi
í fortíðinni. í rannsóknarhópnum eru allir þeir
bókagerðarmenn, sem fæddir eru árið 1900 og
síðar, er numið hafa iðn sína hérlendis og tekið
sveinspróf eða hlotið sveinsréttindi.
í rannsóknarhópnum eru 769 karlar. Þeir koma
inn í hópinn, þegar þeir hafa lokið prófi eða
fengið iðnréttindi. Athugað var í Þjóðskrá
Hagstofu íslands, hverjir þessara einstaklinga
voru á lífi 1. desember 1985. Leitað var í Skrá yfir
horfna að þeim, sem ekki fundust í Þjóðskránni.
Hópurinn er ekki jafn stór allan
rannsóknartimann, þar sem bókagerðarmönnum
fjölgar með árunum, nýir sveinar bætast við, en
hinir eldri deyja. Þeir, sem skráðir voru á lífi en
búsettir erlendis, voru athugaðir nánar, þar sem
ekki þótti víst að upplýsingar um lát þeirra hefðu
borist til Hagstofunnar. Grafist var fyrir um
afdrif allra þessara manna hjá nánum ættingjum
og vinum, sem staðfestu, hvort þeir voru lífs eða
liðnir.
Upplýsingar um dánardag og dánarmein fengust
af dánarvottorðum, sem geymd eru á Hagstofu
íslands, en tvö dánarvottorð voru fengin erlendis
frá. Dánarmein eins manns fékkst ekki staðfest
með dánarvottorði. Hann fórst af erlendu skipi
við strendur Ameríku, samkvæmt frásögnum
ættingja og sonar. Þannig voru örlög allra í
rannsóknarhópnum rakin.
Dánarmeinin voru öll flokkuð til samræmis við 7.
útgáfu Hinnar alþjóðlegu sjúkdóma- og
dánarmeinaskrár (19).
Þar sem staðfesting dánarmeina fyrir árið 1951 er
ekki eins áreiðanleg og síðar, var byrjað að
fylgjast með afdrifum hópsins frá því ári. Þeir,
sem létust fyrr, voru felldir úr hópi dáinna, alls 10
manns.
Reiknuð voru út mannár alls hópsins. Það er gert
þannig, að talin eru saman þau ár, sem hver og
einn er í hópnum frá sveinsprófi til 1. desember
1985 eða til dánardægurs. Mannárin eru lögð
saman innan hvers 5 ára aldursflokks fyrir hvert
ár og þannig mynduð mannáratafla.
Samkvæmt gögnum frá Hagstofu íslands voru
reiknaðar dánartölur fyrir hverja 100.000 íslenska
karla. Út frá þeim og fjölda mannára í
Table I. The time-weighted average (TWA), number of
breathing-zone samples and duration of total time for
different organic solvents measured in seven printing
offices in 1986.
Solvent TWA mg/m3 Number of Samples Time, minutes
White spirit . 45.8 51 5677
Xylen 7.4 4 165
Toluen . 12.6 8 307
Isopropyl alcohol.... . 46.4 43 4100
1,1,1-trichloroethane . . 29.7 14 1910
N-propyl alcohol .... . 149.2 14 678
Ethanol . 554.6 9 892
Ethylacetat . 39.5 9 459
Methylene chloride .. . 37.4 14 796
Table II. Observed and expected number of deaths, standardized mortality ratio (SMR) and 95% confidence limits
for 769 printers, bookbinders and photoengravers, through 1951-1985.
Causes of death (ICD, 7th revision) Observed deaths Expected deaths 95% confidence limits
SMR Lower Upper
All causes (001-E985) . 113 123.75 0.91 0.66 0.97*
Malignant neoplasms (140-205) . 26 24.18 1.08 0.70 1.58
-of stomach (151) 8 5.58 1.43 0.62 2.82
-of large intestine (152, 153) 3 1.50 2.00 0.41 5.82
-of trachea, bronchus and lung (162, 163) 4 4.07 0.98 0.27 2.52
-of kidney (180) 1 1.11 0.90 0.02 5.02
—of brain and other parts of nervous system (193) 1 1.22 0.82 0.02 4.57
Other neoplasms of lymphatic and hematopoetic tissue
(202, 203, 205) 1 0.44 2.27 0.06 12.66
Other neoplasms [155, 156, 157, 177, 178, 194] 8 10.26 0.78 0.34 1.54
Cerebrovascular diseases (330-334) 8 7.44 1.08 0.46 2.12
Ischemic heart disease (420) . 32 35.42 0.90 0.62 1.28
Respiratory diseases (470-527) 8 4.97 1.61 0.69 3.17
Accidents, poisonings and violence (E800-E985) . 21 22.77 0.92 0.57 1.41
All other causes [260, 345, 350, 355, 364, 422, 442, 443,
451, 463, 466, 594, 600, 754, 792, 795] . 18 28.97 0.62 0.37 0.98*
') p< 0.05, two-tailed.