Læknablaðið - 15.05.1987, Side 34
170
LÆKNABLAÐIÐ
gríðarlega þýðingarmikið og hafi orðið Norðfirði
til mikils framdráttar að hér er gott lið
sérfræðinga sem sjúklingar treysta og við
treystum. Væru afleysingamenn til dæmis
áberandi lakari en föstu mennirnir, þá þýddi það
að miklu erfiðara væri að nýta sjúkrahúsið.
Uppbyggingin hér á Norðfirði hefur komið mjög
vel út hvað það snertir, að sjúkrahúsið er vel virkt
innan þeirra marka sem það ætlar sér að starfa.
Óskar Reykdalsson: í sambandi við þjónustuna
hér á Norðfirði, finnst mér mjög mikilvægt að
geta leitað til sérfræðinga, þótt ekki þurfi að
leggja sjúklinga inn og það hef ég nýtt mér þann
tíma sem ég hef verið hér fyrir austan.
Hér gætu verið sérfræðingar í fleiri greinum sem
hægt væri að nýta á þennan hátt.
Atli Árnason: Sjúkrahúsið í Neskaupstað þjónar
okkur margvíslega. Ég hef oft hringt hingað og
spurt hvort hægt sé að sinna ákveðnum
sjúkdómstilfellum. Það vekur þá spurningu hvort
hægt væri að gefa út lista yfir aðgerðir og annað
sem tæki og aðstaða réttlæta að framkvæmdar
séu hér á staðnum.
Ef vantar sérhæfða aðstoð þá skiptir til dæmis
miklu að vita á hvaða sviði meinatæknar sem hér
vinna hafa sérmenntun. Oft eru talsverðar
sveiflur á starfsfólki og i þetta litlum einingum
skipta slík atriði miklu, þegar verið er að leita
eftir ráðleggingum og aðstoð.
Það væri til bóta ef þessi umræða í dag gæti leitt
til þess að við skilgreindum þessa hluti og
áttuðum okkur á möguleikunum. Ég minnist þess
að fyrir fimm eða sex árum stóðum við hér og
ræddum þessi mál, hálf feimnislega að mér
fannst, en þetta framlag Læknablaðsins hefur
gefið okkur tækifæri til að opna umræðuna á
milli okkar.
HELSTU VANDAMÁL
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSSINS í
NESKAUPSTAÐ
Stefán Þorleifsson: Vandamálin eru ekki mikil
núna, þau voru einu sinni mikil og verða alltaf
einhver, annars verður engin framþróun.
Ég er mjög bjartsýnn á að heilbrigðisþjónustan
hér eigi eftir að vaxa og fylgja þróuninni annars
staðar. Auðvitað setjum við metnað okkar í það
að fá nauðsynleg tæki til þess að geta veitt
sæmilega þjónustu á sjúkrahúsinu, þótt þau verði
ekki hin alfullkomnustu á markaðnum, og við
munum ekki geta tekið hér á móti því sem er allra
sérhæfðast, það hlýtur alltaf að verða unnið á
einum eða tveimur stöðum á landinu.
Það hefur alltaf verið metnaður okkar að hafa
gott starfsfólk sem nýtur trausts og hafa lækna
sem njóta trausts kolleganna. Þessu höfum við
reynt að halda bæði með fasta starfsmenn og eins
afleysingafólk.
ER ÞÖRF FLEIRI SÉRGREINA Á
NORÐFIRÐI?
Magnús Ásmundsson: Ég álít að það þurfi að fá
hingað fleiri sérfræðinga og brýnast sé að fá
röntgenlækni. Röntgenlæknir getur hækkað
staðal sjúkrahússins verulega og á einnig að geta
þjónað nágrannabyggðunum. Hann gæti
auðveldlega farið á milli og verið til dæmis einn
dag í viku á Egilsstöðum og Seyðisfirði og ef til
vill farið á milli heilsugæslustöðvanna.
Eggert Brekkan: Þegar við íhugum hverju hægt
væri að bæta við á Norðfirði, þá verður að hafa í
huga, að í raun og veru er
hámarksþjónustusvæðið sem við getum hugsað
okkur um sjö þúsund manns. Það hlýtur að
takmarka þá möguleika sem við höfum til að
bæta þjónustuna.
Kannski er engin grein í læknisfræði í jafn mikilli
og örri þróun og sú sem kölluð hefur verið á
íslensku myndgreining. Þegar við ræðum um
slíka sérfræðinga, þá er ekki lengur verið að tala
um venjulega röntgenlækna heldur röntgenlækna
sem kunna almennilega að ómskoða og koma til
með að nýta sér þróaðri tækni sem er raunar alveg
við dyrnar.
Þess vegna er það fyrsti sérfræðingur sem við
myndum óska eftir að bættist hér við. Því miður
er útbúnaðurinn sem slíkur læknir þarf
afskaplega dýr. Samt er ég ekki að ræða um kaup
á tölvusneiðmyndatæki eða
segulendurómunartæki (magnetic resonance) til
Norðfjarðar.
Það væri ekki bara skemmtilegt fyrir okkur að fá
góðan röntgenlækni hingað á Neskaupstað,
heldur gæti hann gert Austfirðingum mikið gagn.
En það þýðir ekkert að fá góða menn eina sér,
þótt þeir séu skemmtilegir, þeir geta ekkert gert
nema þeir hafi tækjabúnað og þótt við höfum
nokkuð góðan tækjakost hér, þá er hann alls
ófullnægjandi til þess að nútíma
myndgreiningarsérfræðingur gæti unað við hann.
Hvað aðra sérfræðinga varðar sem gott væri að
fá hingað í húsið, þá höfum við rætt þetta mál
áður.