Læknablaðið - 15.05.1987, Qupperneq 42
176
LÆKNABLAÐIÐ
fyrir íbúana. Um árangur er best að spyrja
Seyðfirðinga sjálfa, hvort þeir séu ánægðir, það
er kannski endanlegur dómur um hvernig til hefur
tekist.
Þetta er heppilegt fyrirkomulag að mörgu leyti, til
dæmis gefst möguleiki til þess að vinna um tíma
annars staðar, erlendis eða á stærri sjúkrahúsum
hér og afla sér viðhaldsþekkingar.
Það er einnig rétt að fram komi, að við fórum út
í þetta einir og að okkar mati leit kerfið þetta
fremur hornauga, þannig að ég veit ekki hvort
þetta getur orðið fyrirmynd fyrir aðra. Að
minnsta kosti held ég að kerfið komi ekki til með
að hafa neitt frumkvæði í þá átt.
TILHÖGUN í ÖÐRUM HÉRUÐUM
Auðbergur Jónsson: Á Eskifirði erum við búnir
að vera tveir í héraðinu í tvö ár. Það hefur orðið
til þess að ég hef spurt mig hvað hafi valdið því að
ég var að asnast þetta einsamall svona lengi. Það
er alveg fáránlegt og ætti enginn maður að gera.
Magnús Ásmundsson: Á Norðfirði höfum við
nokkra sérstöðu. Við rekum lítið sjúkrahús og hér
eru þrír læknar, lyflæknir, skurðlæknir og
svæfingalæknir sem jafnframt vinna á
heilsugæslunni. Ég álít að þetta hafi ýmsa kosti í
för með sér. í fyrsta lagi getum við samnýtt vaktir
á sjúkrahúsinu og i héraði. í öðru lagi getum við
haft drög að verkaskiptingu í móttöku og í þriðja
lagi kemur ekki upp afbrýðisemi á milli
sjúkrahúslækna annars vegar og heimilis- og
heilsugæslulækna hins vegar sem sums staðar að
minnsta kosti hefur verið rót að alls konar
leiðindum. Ég álít að þetta fyrirkomulag hafi
gefist mjög vel og er spurning hvort mætti taka
það upp víðar.
Gunnsteinn Stefánsson: Vinnutilhögun
sjúkrahúslækna í Neskaupstað er eðlileg þar sem
íbúar í héraðinu og fjórðungnum í heild eru
tiltölulega fáir, þannig að sjúkrahúsmönnun
hlýtur að vera þungamiðjan. Ég er hins vegar ekki
viss um að þetta sé fyrirmynd fyrir aðra staði.
Sérfræðingarnir á Fjórðungssjúkrahúsinu í
Neskaupstað eru mjög reyndir læknar og
fjölhæfir og ég held að læknar sem hér starfa
þurfi að vera það og ekki sérhæfðir á alltof
þröngu sviði. Norðfirðingar hafa síðan vandað til
vals á afleysurum, þótt erfitt sé að ganga í föt
heimamanna varðandi sjúkrahúsþjónustu, hvað
þá varðandi ýmis almenn vandamál utan
sjúkrahússins.
Eggert Brekkan: Við Magnús erum af þeirri
kynslóð þegar menn voru ekki með þrönga
sérmenntun. Við höfum báðir mjög breiða
menntun á sjúkrahúsum. Við höfum verið í
hinum og öðrum undirgreinum og sé litið á okkar
pappíra erum við í raun og veru ekki bara
sérfræðingar í skurðlækningum og
lyflækningum, heldur höfum við almenna
læknismenntun alveg sambærilega við þá lækna
sem nú eru nefndir sérfræðingar í
heimilislækningum. Svona læknar menntast ekki
lengur vegna þess að menn hafa ekki tækifæri til
þess.
FJÁRMÖGNUN
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTUNNAR ER
ÓTRYGG
Stefán Þorleifsson: Hvað framtíðina varðar þá
hef ég lang mestar áhyggjur af fjármálum
heilbrigðisstofnana úti á landsbyggðinni. Verið er
að undirbúa nýtt fjármögnunarkerfi fyrir rekstur
þessara stofnana. Áætlunin er að setja þær á
fastar fjárveitingar. Hingað til hefur
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað verið rekið á
daggjöldum eins og flestar sjúkrastofnanir. Það
hefur verið dálítið erfitt, en þó vil ég ekki skipta á
því fyrirkomlagi og fastri fjárveitingu, miðað við
löggjöfina sem ennþá stendur þar á bak við.
Við á landsbyggðinni megum gæta okkar alveg
sérstaklega verði þessar stofnanir settar inn á
fjárveitingar án þess að stafur sé fyrir því í lögum,
að fjárveiting á hverjum tíma skuli nægja fyrir
eðlilegum rekstrarkostnaði.
Þróunin getur orðið sú að farið verði að líta á
fjárveitinguna sem rekstrarstyrk og vandanum
verði smám saman ýtt yfir á sveitarfélögin eins og
var áður en daggjaldakerfið var tekið upp 1969.
Þá var rekstrarhallinn orðinn allt að 40% og
sveitarfélögin urðu að bera hann. Að sjálfsögðu
stöðvaðist öll framþróun, og viðhald og annað
slíkt var í algjöru lágmarki.
Þarna er hættan og þarna verðum við að knýja á
löggjafann, að um leið og þessi breyting taki gildi,
þá verði ákvæði sett inn í lögin, sem tryggi rekstur
sjúkrastofnana úti á landsbyggðinni.
Atli Árnason: Á aðalfundi Læknafélags
Austurlands, sem var að ljúka, vorum við einmitt
að ræða um fyrirhugaðar breytingar á
rekstrargrunni sjúkrahúsa og höfum talsverðar
áhyggjur af þessu.
Breytingarnar fela í sér öfugþróun gagnvart
landsbyggðinni og það er ekki nýtt því að í raun er