Læknablaðið - 15.12.1988, Page 20
400
LÆKNABLAÐIÐ
Andersen og fleiri (14) einkennalausa hækkun
mótefna hjá 52% af 54 börnum á aldrinum eins til
sex ára sem mæld voru árlega. Muldoon og fleiri
(15) fundu 25% algengi mótefna gegn L.
pneumophila SG 1 í 126 börnum yngri en 10 ára.
Niðurstaða beggja var að sýkingar með L.
pneumophila eða náskyldri bakteríu væri algeng í
umræddu þýði og að L. pneumophila geti valdið
vægum öndunarfæraeinkennum í börnum. í
nýlegri rannsókn í Frakklandi fundu Couvreur og
fleiri (32) 2% mótefnasvörun gegn L.
pneumophila SG 1 í 278 börnum, 168 þeirra voru
yngri en 2ja ára. Mundel og fleiri (33) lýstu fyrstir
rannsókn á mótefnum gegn 11 mismunandi
Legionella species, mældum með glitprófi á 167
börnum í ísrael og voru fimm börn með mælanleg
mótefni. Tíðni mótefna sem finnst í slíkum
rannsóknum er háð þeim viðmiðunarmörkum
sem valin eru. í rannsókninni á íslensku
börnunum var > 1/32 valið sem viðmiðunargildi
með hliðsjón af niðurstöðum Klein og fleiri (18)
og Di Capua og fleiri (19). Viðmiðunartítri
> 1/64 eða > 1/128 hefðu gefið niðurstöður 8%
eða 2%. Algengi Legionella mótefna er einnig
háð fjölda tegunda sem prófað er fyrir. Að þessu
leyti er rannsóknin á íslensku börnunum eingöngu
sambærileg við rannsókn Mundel og félaga (33)
en hann prófaði fyrir 11 mótefnum og fann
svörun hjá 3% barnanna, þ.e. lægri tíðni en í
umræddri rannsókn. Beer og fleiri (34) sýndu
fram á að algengi mótefnasvörunar gegn L.
pneumophila meðal barna með astma var meiri en
í samanburðarhópi. í íslensku rannsókninni
fannst enginn slíkur munur.
Orsök fyrir hinni augljósu aukningu á tíðni
mótefna gegn Legionella ssp við þriggja til
fjögurra ára aldur er óljós. Hvort aukin virkni
barna á þessum aldri, leikir í sandkössum og
pollum, sundlaugaferðir, dvöl á barnaheimili og
fleira spilar þar með er ekki vitað. Jafnframt er
óvenjulegt að mun fleiri stúlkur hafa marktæk
mótefni en drengir. Þó enn hafi ekki verið
greindur faraldur af legionellosis á íslandi hafa
einstök tilfelli verið allalgeng á undanförnum
árum (35, 36). Vatn í Reykjavík, kalt sem heitt,
hefur enn ekki verið fyllilega rannsakað en gæti
hugsanlega átt þátt í hinni háu tíðni mótefna gegn
Legionella ssp meðal barna á íslandi.
ÞAKKIR:
Höfundar þakka læknum og starfsfólki
barnadeildar Landakotsspítala fyrir aðstoð við
töku sýnanna og söfnun upplýsinga, starfsfólki
rannsóknarstofu Landakots fyrir forvinnslu og
frágang sýnanna og Ellen Jörgensen fyrir
mælingarnar.
HEIMILDIR
1. Fraser DW, Tsai TR, Orenstein W, et al:
Legionnaires’ disease: Description of an epidemic
of pneumonia. N Engl J Med 1977; 297: 1188-97.
2. McDade JE, Shepard CC, Fraser DW et al:
Legionnaires’ disease: Isolation of a bacterium and
demonstration of its role in other respiratory
diseases. N Engl J Med 1977; 297: 1197-1203.
3. Fraser DW, McDade JE: Legionellosis. Sc Am
1979; 241: 82-99.
4. McDade JE, Brenner DJ, Bozeman FM:
Legionnaires’ disease bacterium isolated in 1947.
Ann Intern Med 1979; 90: 659-61.
5. Meyer RD. Legionella infections: A review of five
years of research. Rev Infect Dis 1983; 5: 258-77.
6. Editorial: How common is Legionnaires’ disease?
Lancet 1983; 1: 103-4.
7. Eickhoff TC. Epidemiology of Legionnaires’
disease. Ann Intern Med 1979; 90: 499-502.
8. Storch G, Baine WB, Fraser DW et al. Sporadic
community-acquired Legionnaires’ disease in the
United States. Ann Intern Med 1979; 90: 596-600.
9. Engeland AC, Fraser DW, Plikaytis BD et al.
Sporadic Legionellosis in the United States: The
first thousand cases. Ann Intern Med 1981; 94:
164-70.
10. Winn WC, Jr. Legionella and Legionnaires’
disease: A review with emphasis on environmental
studies and laboratory diagnosis. CRC Crit Rev
Clin Lab Sci 1985; 21: 323-81.
11. Collins MT, Cho SN, Reif JS. Prevalence of
antibodies to Legionella pneumophila in animal
pópulations. J Clin Microbioi 1982; 15: 130-6.
12. Poshni 1A, Millan SJ. Seroepidemiology of
Legionella pneumophila serogroup 1 in healthy
residents of New York City. NY State J Med 1985;
85: 10-14.
13. Edson DC, Harlan ES, Wenthworth BB, et al.
Prevalence of antibodies to Legionnaires’ disease.
Ann Intern Med 1979; 90: 691-3.
14. Andersen RD, Lauer BA, Fraser DW, et al.
Infections with Legionella pneumophila in children.
J Infect Dis 1981; 143: 386-90.
15. Muldoon RL, Jaecker DL, Kiefer HK.
Legionnaires’ disease in children. Pediatrics 1981;
67: 329-32.
16. Orenstein WA, Overturf GD, Leedom JM, et al.
The frequency of Legionella infection determined
in children hospitalized with pneumonia. J Pediat
1981; 99: 403-6.
17. Farshy CE, Cruce DD, Klein Gc, Wilkinson HW,
Feeley JC: Immunoglobulin Specificity of the
Microagglutination Test for the Legionnaires’
Disease Bacterium. Ann Intern Med 1979; 90: 690.
18. Klein GC, Jones W, Feeley JC. Upper limit of
normal titer for detection of antibodies to
Legionella pneumophila by the microagglutination
test. J Clin Microbiol 1979; 10: 754-5.
19. Di Capua A, Temperanza AM, Ciarrochi S, et al.
Upper limit of normal titer for Legionella