Læknablaðið - 15.09.1989, Side 13
LÆKNABLAÐIÐ
235
Jafnframt þessu verður skýrt með
»skematískum« hönnunardæmum, hvemig
hönnunarverkefni yrðu útfærð samkvæmt
hinum nýju stefnumiðum.
Eftirfarandi er yfirlit yfir nýju stefnumiðin:
1. Hólfunartilhneigingunni sé mætt með
blöndun, tengingum og myndun heilda.
2. Vélrænu heimsmyndinni sé mætt með
lífrænum skipulagsmynstmm.
3. Fúnksjónalisma sé mætt með áherslu á
listræn og mannleg gildi.
1. Hólfunartilhneigingunni sé mœtt með
blöndun og tengingum
A síðustu 10 árum hafa komið fram merkar
bækur um rætur hinnar ríkjandi, vélrænu
heimsmyndar. J. Rifkin, höfundur bókarinnar
»Entropy - A New World View« (1981)
(12), segir t.d. um einkenni okkar tíma: »Öld
nútímans er öld vélarinnar. Nákvæmni, hraði
og óskeikulleiki eru æðstu gildin.« (Bls.
17). Önnur merk bók er eftir I. Prigogine
(fékk Nóbelsverðlaun í efnafræði 1977) og
I. Stengers. Utgangspunktur í þessari bók
er líka sá nýi og dýpri skilningur á óreiðu
(entropy), sem hefur komið fram nýlega í
skammtafræðinni (quantum physics).
Formáli bókarinnar »Order out of Chaos«
(1984) (13), byrjar á eftirfarandi hátt:
»Skilningur okkar á náttúmnni er að
breytast á róttækan hátt til hins margfalda,
hins tímabundna og hins flókna. f langan
tíma hefur vélræna heimsmyndin ráðið
lögum og lofum í vestrænum vísindum. í
þessari heimsmynd sýnist heimurinn stór
sjálfhreyfivél.« (Bls. XXVII).
Eitthvert helsta einkenni vestrænu
vísindaheimsmyndarinnar er
sundurskurðaraðferðin (dissection), og
mótaðist hún mest í starfi Bacons, Descartes
og Newtons um miðja sautjándu öld.
Aðferðarfræði þessi nálgast verk þannig að
fyrirliggjandi verkefni er skorið niður í búta
og hver hluti þess tekinn til meðferðar af
sérfræðingi.
Þessi aðferð skilaði (og skilar enn) gífurlegum
árangri innan margra vísindagreina,
sérstaklega í raunvísindum. Galli er aftur
á móti sá að í greinum þar sem hin ýmsu
sérsvið í raun hafa svo mikil tengsl að rangt
er að dæma um afmörkuð atriði án þess
að gæta að hvort önnur svið kynnu að vera
áhrifavaldar.
Oft er það t.d. nefnt sem dæmi að læknum
geti sést yfir að orsakir líkamlegra kvilla geta
verið komnir til vegna rangs fæðis eða slæms
andlegs ástands.
Vegna stórra sigra sinna í vísindum varð
sundurskurðaraðferðin smám saman að
fyrirmynd okkar í því hvemig skyldi taka á
fiestum málum, og heldur sú þróun áfram
þó nú sé víða unnið ötullega að því að
búa til þekkingu sem brúar bilin á milli
sérfræðigreinanna.
Mynd 4.