Læknablaðið - 15.09.1989, Blaðsíða 21
LÆKNABLAÐIÐ
241
Sigrún Helgadótir, Margrét Þormar, Bergljót Sigríöur Einarsdóttir
MANNVIST í ÞÉTTBÝLI
INNGANGUR
Hér verða settar fram nokkrar hugmyndir
að umbótum í húsnæðis-, skipulags- og
umhverfismálum er gætu stuðlað að betra
mannlífi, heilbrigði og bættu andlegu og
líkamlegu atgervi komandi kynslóða - eins
og segir í keppnisgögnum læknafélaganna. I
sömu gögnum er tekið fram, að ekki sé ætlast
til að teknir séu til umfjöllunar sögulegir
þættir þessara mála, það verður þó gert hér,
vegna samhengis og er beðið forláts á því.
í fyrstu er reynt að átta sig á því, hvað er
manninum nauðsynlegt til að halda góðu
andlegu og líkamlegu atgervi. Síðan er
reynt að horfa á söguna m.t.t. fyrirmynda
um framtíðina, því það er nú reyndar svo,
»að fortíðin getur verið lykill framtíðar«.
Núverandi aðstæður verða ræddar til að finna,
hvað í þeim hindrar ofannefnd markmið,
hverju þarf helst að breyta til að líf manna
geti verið sem best. Þá verða settar fram
megin hugmyndir um framtíðarskipulag í
þéttbýli, sérstaklega teknir fyrir einstakir
þættir þess, samgöngur og umhverfisfræðsla,
og að lokum getið sérstöðu Islands.
MAÐURINN
Lífsnauðsynjar
Líklega geta allir verið sammála um hverjar
séu hinar nauðsynlegu líkamlegu þarfir
mannsins: Hreint loft og vatn, næringarrík
fæða án eiturefna, gott og heilsusamlegt
húsnæði, næg hreyfing og aðhlynning
(hjúkrun, læknun). Væntanlega er eitthvað
umdeildara hvað fólki sé nauðsynlegt til
að öðlast sem bestan andlegan þroska og
heilbrigði. Aðhlynning eða umhyggja er í
þeim flokkinum líka, einnig virðast flestir vera
á þeirri skoðun að þar skuli vera: Fullvissan
um að vera að gera gagn, tilfinningatengsl við