Læknablaðið - 15.09.1989, Side 35
LÆKNABLAÐIÐ
251
Reyndar er umhverfi borga víða að verða
meira einsleitt og minna heillandi og hvetjandi
en það var, t.d. þegar gömul hús með mikla
sögu eru rifin og ný hús eru byggð í staðinn
með sama svipmóti og nýju húsin í kring.
Lífríki borga er oft harla einsleitt eða er
gert það. Gott dæmi um þetta er Reykjavík.
Hún er byggð í mjög fjölbreyttri náttúru,
fjallasýn er mikil og falleg, langar fjörur,
iðandi af óvenju fjölbreyttu lífi, landið
mishæðótt, ýmist votlend fífusund eða
þurrar klappir og holt, og borgarlandið á
bæði tjamir og ár. Borgin sýnist hafa verið
byggð nær algjörlega óháð því hvort íbúar
hennar fái notið útsýnis eða ekki. A bestu
útsýnisstöðunum hafa verið byggð verslunar-
og verksmiðjuhverfi. Dæmi um þetta eru
t.d. Múlahverfið ofan Suðurlandsbrautar og
hverfin báðum megin Elliðavogs. Strandlengja
borgarinnar hefur verið eyðilögð, ýmist með
uppfyllingu eins og í Elliðavogi og meðfram
Skúlagötu eða með mengun eins og við
Ægissíðu og Nauthólsvík. Um leið hvarf
náttúrulegt lífrfki fjörunnar og einhver besti
skóli borgarinnar. Gróðurlendi borgarlandsins,
sem einu sinni var fjölbreytt, verður nú æ
einsleitara. Við skipulag nýrra hverfa er hvorki
hlíft lyngmóum holtanna né fífu og störum
mýranna. Opin svæði eru ýmist skrúðgarðar,
rennisléttar grasflatir með blómum og trjám í
beinum röðum eins og Hljómskálagarðurinn,
eða þeim er breytt í samfelldan skóg eins
og Oskjuhlíð og Elliðaárdal. Skógurinn
þurrkar upp votlendið og breiðir sig yfir
jökulsorfnar klappir. Um leið fækkar bæði
blómategundum og fuglategundum þ.e.
umhverfið verður einsleitara, fábreyttara
hvað varðar alla skynjun, sjón, heym, ilman,
smekk og tilfinningu. Talið er víst að forvitni
bama, könnunarfýsn og hugvitsemi sé miklu
frekar kæfð í fábreyttu umhverfi en fjölbreyttu
og fábreytt umhverfi er á allan hátt minna
heillandi en fjölbreytt, fyrir alla aldurshópa.
Hættulegast er þó, að böm í borg alast ekki
upp í þeirri skynjun, að þau séu hluti af
hringrás lífsins, að »af jörðu ertu kominn
og að jörðu skaltu aftur verða«. Mjólk og
annar matur kemur úr búðinni og ruslabfllinn
fjarlægir sorpið.
Orkuneysla
Talið er, að menn hafi kunnað að fara með
eld fyrir um 500 þúsund ámm síðan (Peking-
maðurinn). Sú kunnátta gerði þeim kleift að
breyta umhverfi sínu á annan og afdrifaríkari
hátt en aðrar lífvemr gerðu.
Menn fóm að nota kol til eldiviðar fyrir um
3000 ámm, en þau vom yfirleitt óaðgengileg
og það var ekki fyrr en á síðustu öld sem
þau urðu algengara eldsneyti en viður. Arið
1857 er fyrst vitað til að olía hafi verið seld
til eldsneytis. Nú er henni dælt upp úr iðmm
jarðar í því magni að flestu venjulegu fólki er
ofraun að skilja það magn túlkað í tölum.
Allar heimildir sem kannaðar hafa verið eru
sammála um það, að draga muni vemlega úr
olíuframleiðslu fljótlega eftir næstu aldamót
og verð hækka vemlega. Olía er mikilvægt
hráefni í ýmis konar iðnaðarframleiðslu, allt
of mikilvægt til þess að skynsamlegt sé að
brenna henni svo gegndarlaust sem nú er
gert. Með sömu orkunotkun áfram og nú
er í heiminum, munu nýtanlegar olíulindir
heimsins vera uppumar eftir 50-60 ár.
Brennsla á kolum og olíu hefur eftirfarandi í
för með sér:
* Magn koltvísýrings í lofti eykst.
Frá því fyrir iðnbyltingu hefur magn
koltvísýrings í lofti aukist um 21% og því
er spáð, að um miðja næstu öld verði það
orðið tvöfalt meira en það var þá. Aukning
koltvísýrings í lofti hefur s.k. gróðurhúsaáhrif
og talið er, að lofthiti jarðar muni hækka
um 1,5-4,5° C á næstu 60 ámm og e.t.v.
tvisvar til þrisvar sinnum það við pólana. Slík
hitaaukning mun aftur auka svo bráðnun jökla,
að sjávarmál hækkar um 25-140 cm og margar
borgir og stór svæði af frjósamasta og mest
ræktaða landi heimsins fer undir sjávarmál
(Our Common Future, bls. 175-176).
* Staðbundin mengun andrúmslofts eykst,
sérstaklega í þéttbýli vegna iðnaðar og bfla.
Þegar mengunar fór að gæta mjög vemlega
í borgum, jafnvel svo að fólk lést af völdum
hennar s.s. í Lundúnum í byrjun desember
1952, var farið að byggja háa skorsteina til að
fjarlægja mengun frá yfirborði jarðar. Þá fór
að bera á annars konar mengun:
* Súrnun umhverfis.
Mengunarefnin ganga í samband við vatn
í andrúmsloftinu og mynda sým sem síðan