Læknablaðið - 15.09.1989, Síða 55
LÆKNABLAÐIÐ
269
Kára þegar hann blæs, verður að vera hluti af
námi hvers íslendings.
Og listin. Böm þurfa strax að fá að túlka
skynjun sína og fá hvatningu til að halda því
áfram svo lengi sem þau vilja og þurfa. Listin
hefur ævinlega fylgt manninum og verið
mótuð af umhverfi hans. í tónlistartímum þarf
að þjálfa böm í að hlusta á náttúmna, brimið,
rigninguna, vindinn, fuglasönginn og síðan
bætast við manngerð hljóð og vélarhljóð.
Getum við heyrt einhver þessara hljóða í
tónverkum meistaranna, getum við sjálf búið
til tónverk með þessum hljóðum? Hvemig er
umhverfinu lýst í ljóðum og sögum, myndlist
og leiklist og hvemig getum við gert það
sjálf?
Borgarbúar verða einnig að læra að meta
hið manngerða umhverfi, lesa það og skilja,
festa í því rætur. Saga Reykjavíkur er jafn
löng sögu íslensku þjóðarinnar. Uti í Viðey
er verið að grafa upp bæ frá landnámsöld og
klaustur frá miðöldum. Ungt fólk verður að
fá að fylgjast með því starfi sem þar er unnið,
taka þátt í því í smáhópum undir leiðsögn og
með teskeiðar að vopni. Finna sjálf og skilja
hvemig forfeður okkar og mæður lifðu, hvað
borðuðu þau, hver voru verkefni þeirra og
áhöld.
Reykjavík nútímans er byggð upp á stuttum
tíma og hefur vaxið svo hratt á síðustu
áratugum, að hús sem byggð em um eða
fyrir síðustu aldamót þykja gömul. Flest
eru þessi hús byggð úr timbri og með
hinni »séríslensku« bárujámsklæðningu.
Mörg þeirra em listaverk, unnin af góðum
handverksmönnum sem kunnu vel að nýta
efniviðinn. Aðalbyggingarefni var upphaflega
timbur og er fróðlegt að skoða hvemig
húsin hafa vaxið í takt við auknar þarfir.
Algengt var að húsin yrðu fallegri með hverri
breytingu. Upp úr 1915, eða eftir brunann
mikla, breyttist afstaða manna til timburhúsa
í þéttbýli og eftir að steinsteypan hóf innreið
sína í íslenska byggingarlist, lagðist bygging
timburhúsa að mestu leyti niður. A sjöunda
áratugnum, um það leyti er aðalskipulag
Reykjavíkur var unnið, náði niðurlæging
gömlu timburhúsanna hámarki og enn í dag
er talið ráðlegast að fjárfesta í steinsteypu.
Allt þetta má lesa úr húsunum þegar gengið
er um götur Reykjavíkur. Fræðsla um þessi
gömlu hús og sögu þeirra er nauðsynleg. Hún
hlýtur að vekja skilning á mikilvægi þess að
varðveita gömul hús. Því miður er enn verið
að »fleygja skinnhandritum« með því að rífa
hús sem segja sögu borgarinnar.
Það er bmðl að rífa allt gamalt og henda því, í
stað þess að byggja það upp og nota og njóta
þess. Að ganga götu þar sem standa hús frá
ýmsum tímum og að skynja aldur þeirra, efni,
byggingarstfl og fleira, örvar hugann og gerir
menn frjórri og hamingjusamari. Þegar öllu
er á botninn hvolft, er þá ekki mótsögn í því
að læra út í ystu æsar um bardaga og stríð
einhverra höfðingja fyrr á öldum, kannski í
útlöndum, en þekkja ekki sögu sinnar eigin
borgar? Margt hefur verið ritað um sögu
byggðar í þéttbýli og ennþá er hægt að ganga
Laugaveginn og skoða þar hús frá árinu 1848
og allt fram á okkar daga. Mikilvægt er að
handverkskunnátta fyrri tíma gleymist ekki og
í nútíma tækniþjóðfélagi er það nauðsynlegra
en nokkm sinni, þessi kunnátta tengir okkur
fortíðinni sterkum böndum. A íslandi er enn
ekki til skóli í húsagerðarlist. Eina leiðin til
að eignast okkar eigin hefð í þeirri list, er að
tengja nútíðina við fortíð og þar með byggja
upp framtíð okkar.
Umhverfið er hluti af einstaklingnum,
einstaklingurinn er hluti af umhverfi sínu,
hann setur sín spor, spor sem ekki mega
gleymast. Umhverfi okkar, bæði náttúmlegt
og manngert er þjóðinni nauðsynlegt, þjóð
sem vill halda sínum sérkennum. En tíminn
er naumur. Fræðslustarfið þarf að hefja sem
fyrst.
Skólar
Það starf sem nú er unnið í leikskólum,
gmnnskólum, skólagörðum og vinnuskólum
þarf allt að verða ein markviss, samfelld
heild. Við hvem skóla þarf að koma fyrir
gróðurhúsi, gróðurskála og vermireitum,
þ.e. gróðrarstöð þorpsins, þaðan sem öll
gróðurvemd og ræktun í þorpinu væri
skipulögð. Leiðbeinendur þar ynnu með
kennumm skólans að ýmsum verkefnum, með
matreiðslukennara væri sáð fyrir matjurtum
og séð um þær, með líffræðikennurum væru
gerðar ýmsar tilraunir og athuganir, t.d. með
ræktun nýrra tegunda o.s.frv. Sumarstarf við
ræktun og fegmn í þorpinu væri undirbúið í
skólanum og gróðrarstöðinni á vetuma, nám
og starf yrði samfellt allt árið.