Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 4

Læknablaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 4
FLEMOXIN SOLUTAB® Amoxicillin Mjög gott aðgengi Hver tafla inniheldur: Amoxicillinum INN, trihýdrat, samsvarandi Amoxioillinum INN 250 mg, 375 mg, 500 mg eða 750 mg. Eiginleikar: Breiðvirkt beta-laktam sýklalyf með áhrif bæði á Gram-jákvæða og Gram-neikvæða sýkla, þó ekki staphylococca. Sérlega virkt gegn H. influenzae og gónókokkum. Er bakteriudrepandi. Frásogast vel, yfir 90% frá meltingarvegi. Helmingunartimi í blóði er u.þ.b. 1 klst. 50-70% útskilst óbreytt með þvagi. Há þéttni í galli. Ábendingar:,Sýkingar af völdum amoxicillinnæmra (ampicillinnæmra) sýkla, t.d. berkjubólga, þvagfærasýk- ingar. Lekandi. Frábendingar: Ofnæmi gegn penicillínsamböndum. Mononucleosis infectiosa og ýmsar aðrar veirusýkingar stórauka líkur á útbrotum viö töku lyfsins. Aukaverkanir: Húðútbrot. Meltingaróþægindi, svo sem niðurgangur eöa ógleði. Lyfjaform sem má: - gleypa - leysa upp í vökva Mllliverkanir: Sé lyfið gelið samtimis allópúrinóli, aukast likur á útbrotum. Skammtastærðir handa fullorðnum: Solutab má annaö hvort gleypa eða leysa upp í örfáum ml af vatni, jógúrt, súrmjólk, ávaxtasafa eða öðrum vökva. Venjulegur skammt- ur er 750-2000 mg á sólarhring, gefiö i þremur til fjórum jöfnum skömmtum. Við sýkingar í efri loftvegum, miðeyrum, þvagfærum og við lungnabólgu af völdum pneumococca og H.influenzae má gefa lyfið i tveimur jöfnum skömmtum á sólarhring. Vlð lekanda: 2 g gefið i einum skammti '/2-1 klst. eftir gjöf 1 g af próbeneciði. Skammtastærðlr handa börnum: Venjulegur skammtur er 25-50 mg/kg á sólarhring, gefið í þremur til fjórum jöfnum skömmtum. Við sýkingar i efri loftvegum, miðeyrum, þvagfærum og við lungnabólgu af völdum pneumococca og H.influenzae má gefa lyfið i tveimur jöfnum skömmtum á sólarhring. (jist-brocades Pakkningar: Solutab 250 mg: 20 stk. Solutab 375 mg: 20 stk. Solutab 500 mg: 20 stk. Solutab 750 mg: 20 stk. Einkaumboð á íslandi: PHARMACO H.F.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.