Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 42

Læknablaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 42
120 LÆKNABLAÐIÐ í augnbotnum sem stafar af of háum þrýstingi í heilabúi. Þó ekki væri í þá daga vitað um orsök ýmissa slíkra breytinga, má af lýsingum ráða, hvaða sjúkdóm er um að ræða. Til dæmis er æðabreytingum lýst, sem hljóta að eiga við hækkaðan blóðþrýsting, en blóðþrýstingsmæling þekktist ekki um síðustu aldamót. Verður hér tilfært eitt dæmi, sem gefur vissulega tilefni til að ætla að um breytingar í augum samfara hækkuðum blóðþrýstingi sé að ræða: »Papillan á hœgra auga er nokkuð hyperæmisk, mjóar arteríur, digrar og bugðóttar venur, ofan og utan við papilluna er hvítur blettur og nokkrir hvítir smádeplar.« Bjöm veitti athygli arfgengi ýmissa augnsjúkdóma. I sumum sjúkrasögum telur hann upp ættmenni með sömu einkenni og sama sjúkdóm svo sem hvítingja, hægfara gláku og litarefnahrömun sjónu (retinitis pigmentosa), sem hann greinir ótrúlega oft. Eins og fyrr er frá sagt varð Bjöm fljótt landsþekktur fyrir skurðaðgerðir sínar á augum. Þar sem sjúkraskrár hans fyrstu tvö starfsárin eru glataðar er ekki vitað um fyrstu aðgerðir hans, nema þær sem varðveist hafa í munnlegri geymd. Bjöm gerði allmargar aðgerðir á augum, er hann var héraðslæknir á Akranesi. Fyrsta skráða aðgerðin er gerð 24. júlí 1892 á 70 ára karlmanni frá Skálholti. Var það skapnaðaraðgerð á augnalokum vegna innhverfingar augnhára. Hann gerir þar dreraðgerðir meðal annars á 39 ára gamalli konu frá Kalastaðakoti, er hafði alltaf verið mjög sjóndöpur vegna meðfædds drers (ský á augasteinum). Aðgerðin tókst með ágætum og fékk hún líka gleraugu, sem við áttu eftir slíka aðgerð. Var sjónmælingin það nákvæm, að sjónskekkja, sem gjaman kemur fram eftir dreraðgerð var leiðrétt með sýlinderglerjum. Á Akranesi framkvæmdi Bjöm fyrstu glákuskurði á íslandi og verður nánar vikið að glákulækningum hans síðar. Þar gerði hann sínar fyrstu skjálgaðgerðir og að minnsta kosti tvær aðgerðir vegna augnvöðvalömunar. Eru færðir til augnvöðvar og þeir saumaðir við hvítuna, er var sjaldgæft að gera í þá daga, en sinaskurður (tenotomia) var þá ríkjandi skjálgaðgerð. Er Bjöm flyst til Reykjavíkur í janúarbyrjun árið 1894 mætti ætla að aðstaða hans til skurðlækninga hafi batnað þar eð í höfuðstaðnum var sjúkrahús, sem jafnframt var kennslustofnun fyrir læknanema. En svo var þó ekki. Aðbúnaður á sjúkrahúsinu í Reykjavík var mjög lélegur eins og áður er getið, sjúkrarúm fá og aðsóknin dræm, enda stunduðu læknamir fæsta sjúklinga sína þar. Bjöm hélt því áfram að gera aðgerðir sínar heima hjá sjúklingum, enda því vanur frá Akranesi. Það er ekki fyrr en St. Jósefsspítalinn tekur til starfa nær níu árum síðar að Bjöm gerir aðgerðir á sjúkrahúsi. Frá því á miðju ári 1892 þar til hann andast 1909 gerir Bjöm að minnsta kosti 355 aðgerðir á augum, er stóraðgerðir mega kallast en öllum minni háttar aðgerðum er sleppt svo sem táragangsaðgerðum, enda teljast flestar þeirra vart til stóraðgerða og voru nær daglegur viðburður. Langflestar aðgerðimar gerði hann árið 1894, fyrsta árið í Reykjavík og 1909, síðasta árið, sem hann lifði, enda þá byrjaður á nýjum glákuskurði, sem gaf góðar vonir eins og síðar verður skýrt frá. Algengustu skurðimir voru drer- og glákuskurðir. Bjöm gerði ekki marga skjálgskurði fremur en starfsbræður hans erlendis, vegna óvissunnar um bata, enda skurðtækni hvarvetna á því sviði á bemskuskeiði. Var lækning augnskekkju á frumstigi og aðgerðir nær eingöngu gerðar vegna útlitsbreytinga og þá einkum á ungu fólki. Athyglisvert er að Bjöm gerir auk sinaskurðar bæði styttingu og lengingu á augnvöðvum og saumar vöðvann við hvítuna. Var sjaldgæft að gera slíkan tilflutning á vöðvum í þá daga, en einfaldur sinaskurður (tenotomia) var ríkjandi skjálgaðgerð og reyndar nokkuð fram eftir þessari öld. Bjöm beitti oftast aðferð van Graefes við dreraðgerðir. Oft náði hann góðum árangri við þessa skurði, enda þótt aðstæður til slíkra aðgerða væru hinar frumstæðustu. Það eru einmitt þessar aðgerðir er gefa blindum sýn, sem bera hróður hins fyrsta augnlæknis um landið. Þegar hefur verið sagt frá því að bólga í augnslímhúð og augnalokum hafi verið algengir kvillar og þrálátir og leiddu þeir oft til örvefsmyndunar og úthverfingar á augnalokum (ectropion), svo að sjúklingamir gátu ekki lokað augunum. Bjöm gerði allmargar aðgerðir til lagfæringar á þessum

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.