Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 17

Læknablaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ 1991: 77: 101-6. 101 Kjartan B. Örvar, Stefnir Guönason, Ólafur Gunnlaugsson, Tómas Á. Jónasson BRÁÐ BLÆÐING FRÁ EFRI HLUTA MELTINGARVEGAR: PRJÚ HUNDRUÐ FJÖRUTÍU OG NÍU TILVIK Á LANDAKOTSSPÍTALA 1976 TIL 1985 ÚTDRÁTTUR Afturvirk rannsókn var gerð á 310 sjúklingum með 349 blæðingar frá efri hluta meltingarvegar. Algengustu blæðingarorsakir voru magasár (32.2%), skeifugamarsár (18.7%), blæðandi magabólga (10.7%) og Mallory Weiss heilkenni (6.6%). Æðamisvöxtur, sem ekki fannst á fyrri helmingi rannsóknartímans, var greindur í 5.6% tilvika á seinni helmingi hans. Þetta gefur til kynna að æðamisvöxtur hafi stundum valdið magablæðingum, sem áður voru taldar af óþekktum uppmna. Æðahnútar í vélinda orsökuðu blæðingar í aðeins 3.1% tilvika og er það í samræmi við lága tíðni lifrarskorpnunar á íslandi. Af 310 sjúklingum dóu 30 (9.7%) og má rekja 20 (6.6%) dauðsföll beint til blæðinga. Aukin dánartfðni var tengd eftirfarandi áhættuþáttum: Háum aldri, fyrri sögu um hjarta- og æðasjúkdóma, byrjun blæðingar eftir innlögn á spítalann, viðvarandi blæðingu, þörf fyrir skurðaðgerð og slagbilsþrýstingi <100 mmHg og blóðrauða <10 g/dl við innlögn. INNGANGUR Blæðing frá efri hluta meltingarfæra er algeng ástæða fyrir innlögn á spítala. Tíðni hennar er ekki þekkt hér á landi, en í Bandaríkjunum er áætlað, að slíkar blæðingar leiði til 150 innlagna á 100 þúsund íbúa á ári (1). í Bretlandi er tíðnin áætluð lægri, eða um 50 innlagnir á 100 þúsund íbúa (2). Ef gert er ráð fyrir að um þriðjungur sjúklinga með bráðar blæðingar, sem urðu hjá 150 þúsund íbúum, hafi verið lagðir inn á spítala okkar á rannsóknartímanum, má álykta að tíðnin hér á landi sé milli 50 og 100 á hver eitt hundrað þúsund. Frá St. Jósefsspítala Landakoti. Fyrirspurnir, bréfaskipti: Kjartan B. Örvar Bráð blæðing frá efri hluta meltingarvegar er algeng og oft erfið í greiningu og meðferð. Dánartíðni hefur ekki lækkað að ráði síðustu 40 árin, þrátt fyrir skjóta og nákvæma greiningu, ef til vill vegna þess að sjúklingar með þessar blæðingar eru eldri en áður var og algengara, að þeir séu haldnir öðrum alvarlegum sjúkdómum (3). Hér á eftir fara niðurstöður úr afturvirkri rannsókn á 349 magablæðingum hjá 310 sjúklingum á 10 ára tímabili, 1976-1985. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR I rannsóknina voru teknir 310 sjúklingar, sem lagðir voru inn á Landakotsspítala með bráða blæðingu frá efri hluta meltingarvegar eða byrjaði að blæða á spítalanum. Blæðingartilvik voru 349. Þar af 212 (60.7%) hjá körlum og 137 (39.3%) hjá konum. Blæðing var ástæða fyrir innlögn hjá 304 (87.1%). Hjá 45 (12.9%) byrjaði blæðingin í legu á spítalanum, 25 körlum (55.6%) og 20 konum (44.4%). Meðalaldur var 60.2 ár (SD 18.3), heldur hærri hjá konum 63.7 (SD 17.0) en hjá körlum 58.0 ár (SD 18.8). Aldursdreifingin var frá einu ári í 95 ár. Blóðuppköst, tjöruhægðir eða blóð við magaskolun voru skilyrði fyrir þátttöku í rannsókninni. Sjúklingar voru nær allir í umsjá meltingarsérfræðings eða skurðlæknis, oft beggja. Blæðingarorsök var oftast greind með speglun sem tveir höfunda gerðu (OG eða TÁJ) og í sumum tilvikum með röntgenskoðun, skurðaðgerð eða krufningu. Blæðingarorsök var talin sönnuð, ef teikn fundust um blæðingu við speglun, til dæmis fersk blæðing, viðloðandi blóðkökkur eða æð sem skagaði upp frá sári (3). Væru þessi

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.