Læknablaðið - 15.03.1991, Blaðsíða 25
LÆKNABLAÐIÐ
1991; 77: 107-8.
107
t
Úrsúla Lore Schaaber
17. ágúst 1946
27. nóvember 1990
Úrsúla Schaaber geðlæknir lést eftir stutta en
stranga sjúkdómslegu þann 27. nóvember.
Úrsúla var fædd í Göttingen í Þýskalandi
1946, og ólst upp á menningarheimili
foreldra sinna, hjónanna Eriku og Ottos
Schaaber. Faðir hennar var eðlisfræðingur
að mennt og veitti forstöðu stóru fyrirtæki
sem vann að rannsóknum á málmum. Hann
naut álits og virðingar og var eftirsóttur
fyrirlesari um sín fræði. Hann lést 1981.
Erika, móðir Úrsúlu, vann um skeið við
rannsóknarstörf, en eftir að hún giftist helgaði
hún sig fjölskyldunni og uppeldi bama
sinna. Þau hjónin eignuðust fjögur böm og
komust þau öll til góðra mennta og vegnaði
vel. Þau voru auk Úrsúlu, Regina sem er
lögfræðingur, Jörg þjóðháttafræðingur og Eva
sem er félagsfræðingur. Eru þau öll þekkt
fyrir áhuga sinn og störf að jafnréttis- og
mannúðarmálum.
Átta ára flutti Úrsúla með fjölskyldu sinni til
Bremen og tók þar stúdentspróf 1966. Var
eftir það í eitt ár skiptinemi í Bandaríkjunum.
Hóf síðan nám við læknadeild háskólans í
Bonn. Á stúdentsárunum var Úrsúla virk
í félagsmálum og stjómmálum og var um
tíma formaður frjálsra demókrata, F.D.P.,
innan háskólans. Lauk svo kandídatsprófi
með hárri einkunn 1972 og ári síðar
doktorsritgerð um blóðsjúkdóma. Var síðan
í Bandaríkjunum í tæp tvö ár við nám og störf
á sjúkrahúsum og fékk þarlent lækningaleyfi
að loknum tilskildum prófum. Upp úr því
fór hún til starfa og sémáms í Freiburg í
Þýskalandi og fékk réttindi sem sérfræðingur í
svæfingalækningum 1980.
Sama ár lá leið hennar hingað til Islands,
og hér var hún búsett æ síðan. Fyrsta
árið vann hún sem svæfingalæknir á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Ákureyri,
fluttist síðan suður og stundaði um skeið
almennar lækningar, bæði á Akranesi og í
Vestmannaeyjum og í framhaldi af því vann
hún við svæfingar á Borgarspítalanum og
síðar á Landspftalanum. Árið 1984 markaði
þáttaskil á ferli hennar, en þá réðist hún að
geðdeild Landspítalans sem var vinnustaður
hennar upp frá því. Ég hygg að aðdragandi
þessa tilflutnings Úrsúlu milli sérgreina, sem
virðast talsvert óskyldar, hafi verið sá að með
henni hafði kviknað mikill og einlægur áhugi
á áfengis- og vímuefnavandamálinu, meðferð
þess og fyrirbyggjandi aðgerðum. Það var
síðan stöðugt hugðarefni hennar að bæta við
þekkingu sína á því sviði. Hún réðist til að
byrja með að áfengisdeild geðdeildarinnar,
nánar tiltekið að Vistheimilinu að