Læknablaðið - 15.03.1991, Qupperneq 9
LÆKNABLAÐIÐ
95
%
100
75
50
25
0
Irritation of the mucous membranes %
General symptoms
Workplaces Buildings
n=3 Men Gsa Women a Men csa Women
Fig. 3. Prevalence (%) of irrilalion of the mucous membranes and general symptoms among smokers and non-smokers
in the ten workplaces.
mun meira af einkennum en karlar hvemig
sem loftræstingu er háttað. Mynd 3 sýnir
algengi slímhimnueinkenna og almennra
einkenna eftir húsum meðal reykingamanna
og þeirra sem ekki reykja. Ekki er hægt að
greina fylgni við reykingar.
Títer fellimótefna gegn mótefnavökum úr
rakagjöfum var athugaður hjá fólki á fimm
vinnustöðum. Ekki reyndist hærri títer hjá
fólki í húsum með vélrænni loftræstingu og
rakagjöf (vinnustaðir 6-9) en í húsi 10 sem
var gluggaloftræst og án rakagjafar (Mann-
Whitney próf p>0.05).
UMRÆÐA
Þessi rannsókn lýsir líðan fólks í íslenskum
húsum sem athuguð var með spumingalista.
Niðurstöðumar eru í megindráttum samhljóða
því sem fram hefur komið í erlendum
rannsóknum (3,5,8,23-25). Eins og þar hefur
verið gert, var tíðni kvartana í húsum með
vélrænni loftræstingu borin saman við það
sem gerist í gluggaloftræstum húsum (3-8).
Hér er ekki um slembiúrtak húsa að ræða
heldur voru nokkur húsanna athuguð vegna
þess að borist höfðu kvartanir og beiðnir
um athugun og úrlausn. Þess var hins vegar
gætt að taka hús til samanburðar þar sem
ekki hafði verið kvartað, eins og merkt er í
töflu I og eru einkenni þar fátíðari en í hinum
húsunum.
í rannsókninni var ekki unnt að athuga hvort
einkenni væru mismunandi eftir starfshópum,
til þess þarf stærri hópa. Konur höfðu
hlutfallslega fleiri einkenni en karlar og hefur
það einnig fundist í erlendum rannsóknum
(8,23,24).
Af niðurstöðum þessarar rannsóknar vérður
ekkert ákveðið ályktað um samband reykinga
og einkenna, en í danskri rannsókn virtust
reykingamenn fremur hafa einkenni en þeir
sem ekki reykja (24).
Niðurstöðumar sýna að fólki líður best
í húsum sem loftræst eru um glugga og
dyr. Þetta hefur einnig fundist í erlendum
rannsóknum á líðan fólks í húsum þar sem
ekki er iðnaðarstarfsemi (3,5,8) en þær
niðurstöður eru þó ekki einhlítar (25). I
húsunum með vélrænu loftræstingunni er
loftið endumýtt að hluta en fersku lofti
bætt við smám saman. Rakagjöf var í
öllum loftræstikerfunum nema í húsi 4. í
gluggaloftræstu húsunum var hins vegar
hvorki um að ræða hringrás loftsins né
rakagjöf.
Menn hafa áður veitt athygli rakagjöfum sem
geta verið mengaðir bakteríum, sveppum,
frumdýrum og þess háttar (3). Því hefur
verið sett fram sú tilgáta að örverumengun,
til dæmis frá rakagjöfum, valdi sumum
af þessum einkennum, hugsanlega vegna
ofnæmisviðbragða eða verkunar inneitra
(3,8,25-27). Þessi rannsókn á íslenskum
húsum virðist ekki styðja þá tilgátu. í fyrsta
lagi var mjög mikið af einkennum í húsi
þar sem ekki var nein rakagjöf. í öðru lagi
mældust fellimótefni í blóði fólks í fjórum