Læknablaðið - 15.03.1991, Side 29
LÆKNABLAÐIÐ 1991; 77: 109-14.
109
Konráö S. Konráðsson
EYRNASUÐ: GREINING, MÖSKUN OG
MEÐFERÐ MEÐ SUÐARA
»Hví er það að suð í eyrunum dvínar þegar
gert er hljóð.
Er það vegna þess að hljómurinn meiri
rekur út hinn minni?«
Hippókrates, 400 f. Kr.
SAMANTEKT
Til Heymar- og talmeinastöðvar íslands,
Reykjavfk (HTÍ) voru fyrir nokkru keypt
tæki (WATICrAÍ TA3 og TM3) til greiningar
og meðferðar eymasuðs með möskun og
hömlunarleif'*. Tuttugu og þrír sjúklingar
með langvarandi eymasuð voru teknir
til greiningar og meðferðar á 12 mánaða
tímabili. Sjúklingamir voru á aldrinum 47
til 75 ára - miðgildi 66 ár og meirihlutinn
karlar (65%). Allir höfðu sjúklingamir meiri
eða minni heymardeyfu og orsök hennar
aðallega elli- og/eða hávaði. Suðgreining
tókst hjá flestum og möskun var jákvæð
hjá helmingi sjúklinganna. Sjö sjúklingar
fengu hömlunarleif og var úthlutað suðara
til reynslu. Suðarinn var stilltur ineð tilliti til
suðgreiningar sérhvers sjúklings.
Af öllum hópnum höfðu 9-27 af hundraði
vemleg eða nokkur not af suðara til deyfingar
eymasuðs með hömlunarleif. Er það
sambærilegt við niðurstöður athugana erlendis.
INNGANGUR
Skilgreina má eymasuð, sem meðvitaðan
hljóm eða suð, sem á upptök sín í höfði þess
er hljóminn heyrir. I sumum tilvikum myndast
hljómurinn í raunverulegum hljóðgjafa í höfði
eða hálsi. Má þar nefna kjálkaliðsbresti,
æðaþrengsl og vöðvasamdrætti. Slík hljóð
geta utanaðkomandi stundum greint með
eða án hjálpartækja. Staðreyndin er þó sú
Höfundur starfar nú sem aðstoöaryfirlæknir við HNE-deild
Háskólasjúkrahússins í Lundi, en var settur yfirlæknir
Heyrnar- og talmeinastöövar íslands í Reykjavik, þegar
rannsókn þessi fór fram.
WATIC™ TA3-tinnitus analyzer
WATIC™ TM3-tinnitus masker
að í meirihluta tilvika greinist enginn innri
hljóðgjafi, sem orsök eymasuðsins, þar sem
suðið á sér upptök í kuðungi, heymartaug eða
miðtaugakerfi.
Hjá Medical Research Council’s Institute of
Hearing Research í Nottingham í Englandi
hafa staðið yfir rannsóknir á algengi eyrnasuðs
frá 1978 (1). Niðurstöður benda til að 35-
45 af hundraði fullorðinna hafi fundið fyrir
eymasuði í einhverri mynd. Að minnsta
kosti 8 af hundraði lýstu eymasuði, sem
truflaði svefn og/eða ylli öðrum verulegum
óþægindum. Síðast er getið þeirra 0.5 af
hundraði, sem segja eymasuðið valda því að
þeir geti ekki lifað eðlilegu lífi. Samsvarandi
hópur hérlendis gæti því verið um 1200
einstaklingar! Valdi eymasuð ekki óþægindum
er meðferðar vart þörf, en vegna þess að
suðið getur verið einkenni sjúkdóms er nánari
rannsókn nauðsynleg.
Ýmsar kenningar eru á lofti varðandi uppruna
eymasuðs. Eyrað er afar nákvæmt skynfæri og