Læknablaðið - 15.03.1991, Side 32
112
LÆKNABLAÐIÐ
breytilegar eftir kyni (sjá mynd 3). Allir
sjúklingamir reyndust hafa mismunandi
mikla heymardeyfu, þ.e. lakari heym en
25dB við tónheymarmælingu á tíðnisviðinu
0.250 til 8 kHz. Eins og sést á mynd 4 var
heym sjúklinganna mun betri á talsviði
(meðalgildi heymarmarka við 0.5, 1 og 2
kHz) en á hátónasviði (meðalgildi 4 og 6
kHz). Er það sem vænta má eftir orsökum
heymardeyfunnar.
Hvað varðar niðurstöður rannsóknanna tókst
suðgreining hjá tuttugu einstaklingum (87%)
(mynd 5). Styrkur suðsins mældist frá 33
til 87dB (mynd 6). Meðalstyrkur var 68dB,
staðalfrávik 13.7. Möskun hafði áhrif hjá
um helmingi sjúklinganna (52%). Af þeim
tólf, sem möskun hafði áhrif á, fengu sjö
hömlunarleif. Þessir sjúklingar fengu allir
suðara til reynslu. Einn þeirra hafði engin not
af suðaranum og skilaði tækinu strax, fjórir
sjúklingar höfðu takmörkuð not af suðaranum
og skiluðu tækinu eftir þrjá til fimm mánuði.
Tveir sjúklinganna voru það ánægðir að þeir
óskuðu eftir að fá suðarann til eignar.
UMRÆÐA
I ritstjómargrein British Journal of Audiology
var fyrir nokkru vikið að þeirri algengu
afstöðu að fyrir sjúklinga með eymasuð
sé lítið hægt að gera. Margir sjúklingar fái
einvörðungu þá »úrlausn« að þeir verði að
læra að lifa með mein sitt (18).
Eymasuð getur verið einkenni alvarlegs
sjúkdóms, sem þarfnast meðferðar og
því er ávallt þörf nákvæmrar læknis- og
heymarrannsóknar. Æskilegt er að greina suð
sem flestra sjúklinga eftir því sem við verður
komið. Þá er unnt að láta sjúklingnum í té
snældu með hljóðdæmi um eigið eymasuð.
Snælduna getur sjúklingurinn notað til að lýsa
einkennum sínum hlutlægt fyrir fjölskyldu
og aðstandendum, en slíkt hefur mörgum
reynst erfitt með orðum einum og skilningur
nákominna á vanda sjúklingsins því oft
takmarkaður.
Til ýmissa ráða hefur verið gripið gegn
eymasuði. Níasín, lídókaín, karbamasepín
og fenýtóín eru meðal þeirra lyfja, sem
reynd hafa verið með misgóðum árangri.
Breytt mataræði sjúklinga hefur einnig verið
reynt, dáleiðsla, heymartæki, skurðaðgerðir,
Ears:
— Mean: 0,5/1/2kHz
.j.- '-- Mean: 4/6kHz
Fig. 4. Hearing levels
Hearing level
in dB
Ears:
A
% í
! \
/ \
/
&
/ ’í 'ý"-
j *
<50 55 60 65 70 75 80 85 90
dB
Fig. 5. Tinnitus level
Patients:
Identif ication
Fig. 6. Analysis - results
Masking
Rl-test