Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.05.1992, Side 5

Læknablaðið - 15.05.1992, Side 5
LÆKNABLAÐIÐ 1992; 78: 163-9 163 Reynir Þorsteinsson 1,3), Ari Jóhannesson 2), Halldór Jónsson 1), Þórir Þórhallsson 1), Jóhann Ág. Sigurösson 3) LÆKKUN ÁHÆTTUÞÁTTA HJARTA- OG ÆÐASJÚKDÓMA MEÐAL VERKSMIÐJUFÓLKS Árangur tveggja ára íhlutandi heilsuverndar í Járnblendiverksmiöjunni á Grundartanga ÁGRIP Á árunum 1989-1991 tóku 155 starfsmenn í Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga þátt í íhlutandi heilsuvemd með það að markmiði að lækka áhættuþætti hjarta- og æðasjúkdóma, einkum blóðfitur. Breytt var fæðuvali í mötuneyti verksmiðjunnar og fræðsla um mataræði og heilbrigði aukin. Kólesteról lækkaði að meðaltali um 7,6% (p<0,001) á þessu tímabili. Háþéttniíituprótín (HDL) hækkuðu (p<0,001) og hlutfall lágþéttni- og háþéttnifituprótína (LDL/HDL) og kólesteról/HDL lækkaði marktækt. Lítil breyting varð á reykingum, hreyfingu og þyngdarstuðli (BMI) við íhlutunina. INNGANGUR Helstu áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma eru hár blóðþrýstingur, reykingar, háar blóðfitur og offita (1). Sýnt hefur verið fram á, að með því að minnka þessa áhættuþætti má draga úr líkum á sjúkdómum af þessu tagi (2,3). Þrátt fyrir ný og kröftug lyf til lækkunar kólesteróls, er undanhald hjarta- og æðasjúkdóma nú á dögum ekki síst undir markvissum breytingum á lifnaðarháttum komið. Þar gegnir mataræði lykilhlutverki. Fjölmargir hafa kannað áhrif fræðslu um mataræði á blóðfitur (4-6). Sameiginlegt flestum þessum rannsóknum er að áhrifin á kólesteról voru fremur lítil, einkum þegar frá leið. í »Oslóar rannsókninni« náðist þó að lækka kólesteról hjá körlum með hátt kólesteról um 15% fyrsta árið (2). í íslenskri rannsókn, þar sem karlar og konur nteð hátt kólesteról voru meðhöndluð með ráðleggingum um mataræði á göngudeild Landspítala, náðist 10% lækkun eftir eitt ár og 14% lækkun eftir tvö ár (7). Frá Heilsugæslustöð Akraness 1), Sjúkrahúsi Akraness 2), læknadeild Háskóla Islands / heimilislæknisfræöi 3). Fyrirspurnir, bréfaskipti: Reynir Þorsteinsson. í Jámblendiverksmiðjunni á Grundartanga hefur verið reglulegt eftirlit með heilsufari starfsmanna frá því verksmiðjan tók til starfa árið 1978. Síðustu níu árin hefur þetta eftirlit verið í höndum heilsugæslulækna á Heilsugæslustöðinni á Akranesi. Heilsufar starfsmanna hefur verið gott, og engir óvenjulegir atvinnusjúkdómar hafa komið fram á þessu tímabili. Starfsmenn eru þó haldnir hinum ýmsu kvillum sem fylgja lífsstíl og atvinnuháttum. Við reglubundnar læknisskoðanir hefur starfsmönnum verið veitt einstaklingsbundin fræðsla um heilbrigt líferni, meðal annars varðandi mataræði og reykingar. Oft virðist þessi fræðsla skila takmörkuðum árangri og er því stöðugt reynt að finna nýjar leiðir til að hafa bætandi áhrif á heilsu starfsmanna. Haustið 1988 vaknaði sérstakur áhugi á að breyta mataræði í mötuneyti verksmiðjunnar. í framhaldi af því var ákveðið að gera athugun á áhrifum þessarar breytingar ásamt íhlutun lækna á nokkra áhættuþætti hjartasjúkdóma, einkum blóðfitu. Aukalega voru einnig könnuð áhrif á reykingavenjur, líkamsþyngd, mataræði og hreyfingu starfsfólks verksmiðjunnar. EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR Jámblendiverksmiðjan á Grundartanga er í um 10 km fjarlægð frá Akranesi. Rúmlega 200 manns, þar af 87% karlar, starfa þar að staðaldri og fremur litlar breytingar hafa verið á mannahaldi undanfarin ár. Um 80% starfsmanna búa á þéttbýlissvæði (Akranes 76%, Reykjavík 5%), en aðrir í dreifbýli í grennd við verksmiðjuna. Allir starfsmenn neyta að minnsta kosti einnar heitrar máltíðar á dag í mötuneyti verksmiðjunnar, þar að auki er boðinn morgunverður og kvöldverður. í tengslum við starfsmannaheilsuvemd var mælt kólesteról í sermi hjá 193 einstaklingum

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.